NAF á Íslandi

NAF á Íslandi Vörulínan frá NAF inniheldur fjölbreytt úrval fóðurbætis og annarra gæðavara fyrir hross 🐴🍃

Páskarnir eru komnir 🌼Fáðu 15% afslátt af öllum NAF vörum – bæði á netinu og í Kaupfélaginu.Ekki missa af tilboðinu 💛
01/04/2026

Páskarnir eru komnir 🌼
Fáðu 15% afslátt af öllum NAF vörum – bæði á netinu og í Kaupfélaginu.
Ekki missa af tilboðinu 💛

Uppgötvaðu NAF fóðurbæti fyrir hross í Íslandi – traust og náttúruleg efni til að bæta heilsu og vellíðan hrossa. NAF vörurnar eru fullkomnar fyrir keppnishross, vinnuhross og gæludýr, með áratuga reynslu og alþjóðlegri viðurkenningu kh vets Merch, Vörulína NAF samanstendur...

Q: Er einhver munur á ProFeet Pellets og ProFeet Liquid?A: Eini munurinn á ProFeet Pellets og ProFeet Liquid er formið...
01/04/2026

Q: Er einhver munur á ProFeet Pellets og ProFeet Liquid?

A: Eini munurinn á ProFeet Pellets og ProFeet Liquid er formið, ProFeet Pellets er á kögglaformi en ProFeet Liquid er á vökvaformi. Nú eru báðar vörur fáanlegar í vöruúrvalinu hjá okkur 🙌🏽 Innihaldslýsingin er sú sama og báðar vörur stuðla að góðum og heilbrigðum hófvexti

🔗 Kíktu í vefverslunina okkar: www.khvets.is/vefverslun.html

Ein af okkar vinsælustu vörum – Fertility for Stallions – fæst nú í 10 kg fötum hjá okkur. Fertility for Stallions er sé...
30/03/2026

Ein af okkar vinsælustu vörum – Fertility for Stallions – fæst nú í 10 kg fötum hjá okkur.
Fertility for Stallions er sérhæft fóður­bætiefni sem styður frjósemi stóðhesta á fengitíma. Það inniheldur lykil­vítamín, steinefni og náttúruleg innihaldsefni sem styðja gæði sæðis, hreyfanleika og kynhvöt, auk þess að stuðla að almennu heilbrigði og orku.

🔗 Kíktu í vefverslunina okkar:
www.khvets.is/vefverslun.html

Q: Get ég notað Instant Magic samhliða daglegri gjöf af Magic fóðurbætinum?A: Já, það er hægt.Instant Magic er ætlað t...
27/03/2026

Q: Get ég notað Instant Magic samhliða daglegri gjöf af Magic fóðurbætinum?

A: Já, það er hægt. Instant Magic er ætlað til að veita aukinn stuðning í aðstæðum þar sem hesturinn gæti upplifað meiri streitu, til dæmis við keppni, flutninga eða járningu. Vöruna er hægt að nota eina og sér eða samhliða daglegri gjöf af Magic fóðurbætinum. Í sumum tilfellum getur einnig verið gagnlegt að gefa eina sprautu af Instant Magic kvöldinu áður en streituvaldandi atburður á sér stað.

Vissir þú að við erum búin að fá inn nýja vöru sem heitir Sand Gard?Sand Gard Pellets frá NAF er fóðurbætir á formi kögg...
25/03/2026

Vissir þú að við erum búin að fá inn nýja vöru sem heitir Sand Gard?

Sand Gard Pellets frá NAF er fóðurbætir á formi köggla ætlaður hrossum. Sand Gard er ætlað hrossum sem eiga á hættu að fá uppsafnaðan sand í þarma, t.d. hross sem eru á niðurétnu beitilandi eða í sandgerðum. Sand Gard inniheldur Psyllium husk og hjálpar til við að losa hrossið við sandinn t.d. með því að viðhalda heilbrigðum þarmahreyfingum auk þess að draga sandkornin út með sér. Sand Gard inniheldur einnig góðgerla (probiotica) til að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru.

Sand Gard Pellets frá NAF er fóðurbætir á formi köggla ætlaður hrossum. Sand Gard er ætlað hrossum sem eiga á hættu að fá uppsafnaðan sand í þarma, t.d. hross sem eru á niðurétnu beitilandi eða í sandgerðum. Sand Gard hjálpar til við að losa hrossið við sandinn t.d. með ...

Metazone er komið aftur! 👏🏻Það gleður okkur að segja frá því að Metazone Liquid er komið aftur í vefversluninaokkar og n...
23/03/2026

Metazone er komið aftur! 👏🏻
Það gleður okkur að segja frá því að Metazone Liquid er komið aftur í vefverslunina
okkar og núna einnig í Hesta Kaupfélagið í Víðidalnum 🙌🏼

🔗Vöruna finnur þú hér:
https://khvets.is/products/metazone-liquid.html

Múkk í hrossum er algengur kvilli sem einkennist einna helst af bólgu í húð hestsins í hófhvarfinu. Algengast er að sjá ...
20/03/2026

Múkk í hrossum er algengur kvilli sem einkennist einna helst af bólgu í húð hestsins í hófhvarfinu. Algengast er að sjá múkk á framfótum hestsins, en það getur líka verið á afturfótum. Mismunandi ástæður geta verið fyrir múkki, en bæði fóður- og umhverfisþættir geta spilað þar þátt.

Einkenni múkks:
Eymsli
Skorpur
Bólgur
Sár
Helti

Að uppgötva múkkið snemma hjálpar hrossinu að ná skjótum og góðum bata, meðhöndlun verður auðveldari og minni líkur á að nota þurfi sýklalyf til meðhöndlunar.

Hvað getur eigandi gert til að meðhöndla múkk:
Raka svæðið - það sem oft gleymist!
Þrífa með sápu og skola vel með vatni
Þurrka svæðið vel
Halda mjúku með kremi - varist of feit krem
Í sumum tilfellum dugir það ekki til, sérstaklega þegar sýking er komin í múkkið. Þá skal alltaf hafa samband við sinn dýralækni 🤎

Vissir þú að mesti skráði hraði hests á stökki er 70,76 km/klst — sett af Winning Brew, Thoroughbred kappreiðarhesti.
18/03/2026

Vissir þú að mesti skráði hraði hests á stökki er 70,76 km/klst — sett af Winning Brew, Thoroughbred kappreiðarhesti.

NAF Five Star M Power kemur nú í 1,8 kg fötum! M Power veitir samverkandi næringarstuðning fyrir vöðvaheilsu og styður v...
16/03/2026

NAF Five Star M Power kemur nú í 1,8 kg fötum!
M Power veitir samverkandi næringarstuðning fyrir vöðvaheilsu og styður við styrk og frammistöðu. 🐴

🔗Vöruna getur þú nálgast hér:

Uppgötvaðu NAF fóðurbæti fyrir hross í Íslandi – traust og náttúruleg efni til að bæta heilsu og vellíðan hrossa. NAF vörurnar eru fullkomnar fyrir keppnishross, vinnuhross og gæludýr, með áratuga reynslu og alþjóðlegri viðurkenningu kh vets Merch, Vörulína NAF samanstendur...

Q: Hvar get ég keypt NAF vörurnar?A: NAF vörurnar getur þú keypt á eftirfarandi stöðum:🔹 Vefversluninni www.khvets.is🔹 H...
15/03/2026

Q: Hvar get ég keypt NAF vörurnar?

A: NAF vörurnar getur þú keypt á eftirfarandi stöðum:
🔹 Vefversluninni www.khvets.is
🔹 Hesta kaupfélaginu í Hestamannafélaginu Fák í Víðidal 🐴

Sár hjá hrossum geta verið mismunandi af stærð og umfangi en öll sár þarfnast a.m.k. skoðunar og í sumum tilfellum aðhly...
13/03/2026

Sár hjá hrossum geta verið mismunandi af stærð og umfangi en öll sár þarfnast a.m.k. skoðunar og í sumum tilfellum aðhlynningar dýralæknis. Sár sem geta virst lítil við fyrstu skoðun geta haft mikil áhrif á undirliggjandi vefi eins og t.d. sinar, vöðva og liði.

Það sem eigandi getur gert sem fyrstu hjálp:
🔹Koma hestinum á öruggan stað
🔹Ef hrossið neitar að labba eða stígur ekki í fót bíðið þá róleg með hestinum
þar sem hann stendur eftir að dýralæknir komi
🔹Ef blæðing er mikil setjið þá þrýsting á sárið á meðan þið bíðið eftir
dýralækni
🔹Ef sárið virðist lítið skal ávallt þukla varlega svæðið og best er að raka öll
hár allt í kring til að átta sig á umfangi sársins og hvort þörf sé á frekari
hjálp – stór sár geta virst lítil við fyrstu sýn vegna hára sem liggja yfir
🔹Skola sárið með vatni

Hin gullna “ 6-8 klukkustunda” regla snýst um að meðhöndla og loka sárum innan 6-8 klukkustunda frá því að sárið varð til. Innan þessara klukkutíma kallast sárið “hreint”, minni hætta er á sýkingu og þ.a.l. auknar líkur á góðum og skjótum bata. Ef hringja þarf á aðstoð dýralæknis skal því alltaf hafa 6-8 klukkustunda regluna í huga og hringja frekar fyrr en seinna 🤎

Address

Hvolsvöllur
861

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when NAF á Íslandi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share