13/12/2025
Vítamín- og steinefnataflan mín 💊🌾
Um leið og maður opnar síma eða sjónvarp dynja á manni skilaboð um alls konar bætiefni og drykki. Ég sjálf var farin að efast um eigin getu til að næra mig og ég held að margir kannist við tilfinninguna:
„Er ég að fá nóg af hinu og þessu vítamíni?“
Ég vildi minna sjálfa mig (og ykkur) á að flest næringarefni fáum við auðveldlega úr matnum sjálfum, ef við borðum fjölbreytt 🌈
Þess vegna setti ég saman þessar fjórar myndir sem sýna hvar helstu vítamín og steinefni leynast í fæðunni.
➡️ Styrkleiki næringarefnanna er mestur vinstra megin á myndunum og minnkar eftir því sem farið er til hægri. Athugið að listinn er ekki tæmandi!
🥕 Vatnsleysanleg vítamín B- og C-vítamín sem við fáum úr bæði jurta- og dýraríkinu (fyrir utan B12, sem finnst aðallega í dýraafurðum).
🥑 Fituleysanleg vítamín A, D, E og K. Það þarf aðeins að hafa fyrir því að uppfylla næringarþörf líkamans, en það er vel geranlegt með fjölbreyttu fæði úr bæði plöntum og dýraafurðum.
🧂 Aðalsteinefni Þau sem líkaminn þarf í meira magni, eins og kalk, kalíum, natríum og magnesíum. Við fáum þau bæði úr plöntum og/eða dýraafurðum. ⚠️ Sumar fæðutegundirnar sem eru ríkar af natríum eru merktar með upphrópun þar sem ekki er æskilegt að borða þær í miklu magni.
💎 Snefilefni tilheyra líka steinefnum en líkaminn þarf þau í mjög litlu magni. Þar má nefna járn, sink, joð, kopar og selen. Við fáum þau bæði úr plöntum og dýraafurðum.
🌈 Með þessu vildi ég sýna að hvort sem við borðum úr plöntu- eða dýraríkinu, þá eigum við fullt af næringarríkum fæðutegundum allt í kringum okkur.
💬 Vonandi hjálpar þessi yfirsýn ykkur að sjá hversu kraftmikill maturinn okkar er og að við getum treyst því að fjölbreytt fæði sé besta „bætiefnið“ sem til er. 🌿✨