STRAX Í DAG - Krefjumst aðgerða í geðheilbrigðimálum

  • Home
  • STRAX Í DAG - Krefjumst aðgerða í geðheilbrigðimálum

STRAX Í DAG - Krefjumst aðgerða í geðheilbrigðimálum Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from STRAX Í DAG - Krefjumst aðgerða í geðheilbrigðimálum, Health & Wellness Website, .

Við viljum tryggja úrræði sem grípa áður en allt fer úr skorðum. Þetta snýst um líf, reisn og raunverulega þjónustu fyrir fólk í neyð. Þetta er ekki hefðbundin vitundarvakning til almennings. Þetta er krefjandi samtal við þá sem bera ábyrgð!

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar Meira en bara hlaðvarp!Góður fundur í dag 13. Apríl með ...
13/04/2026

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar

Meira en bara hlaðvarp!

Góður fundur í dag 13. Apríl með vinkonu okkar á Alþingi. - Meira um það síðar.

Nýr þáttur af Týndu Strákunum er kominn á Spotify og Apple Podcasts.Þáttur  #4, Eitt af týndu börnunum um Stuðla, lyfin ...
10/04/2026

Nýr þáttur af Týndu Strákunum er kominn á Spotify og Apple Podcasts.

Þáttur #4, Eitt af týndu börnunum um Stuðla, lyfin og kerfi sem brást, fjallar um þunga reynslu ungs manns af kerfi sem hlustaði ekki, lyfjum sem leystu ekki vandann og úrræðum sem brugðust. Nonni rifjar einnig upp sambærilega reynslu úr lífi síns drengs sem síðar lést í brunanum á Stuðlum.

Týndu Strákarnir eru framleiddir af Samson.is fyrir Strax í dag og teknir upp í hlaðvarpsstúdíóinu Raddir.

Hlustaðu á nýjan þátt á Spotify og Apple Podcasts. - Hlekkur á þáttinn í fyrstu athugasemd.

Í þessari færslu finnur þú tenlga á alla þættina sem eru komnir út. Við hvetjum sem flesta að kynna sér þessa þætti sem ...
04/04/2026

Í þessari færslu finnur þú tenlga á alla þættina sem eru komnir út.

Við hvetjum sem flesta að kynna sér þessa þætti sem eru liður í okkar baráttur fyrir bættu geðheilbriðiskerfi, en í þeim leggjum við áherslu á Týndu Börninn.

Þáttastjórnendur er Steindór Þórarinsson stofnandi Strax í dag og Jón K. Jackobsen fíkniráðgjafi og faðir Geris Arnars Jacobsen sem lést í brunanum á stuðlum.

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar

Steindór Þórarinsson, stofnandi Strax í dag, birti í dag páskahugleiðingu á Vísi þar sem hann fer inn í eigin sögu, dimm...
03/04/2026

Steindór Þórarinsson, stofnandi Strax í dag, birti í dag páskahugleiðingu á Vísi þar sem hann fer inn í eigin sögu, dimman dal, uppgjör og þá vinnu sem þarf stundum að fara í til að ná aftur fótfestu, friði og tilgangi.

Pistillinn er þó ekki bara persónulegur. Hann er líka ákall um að samfélagið staldri við og horfi heiðarlega á stöðu týndu barnanna okkar og þess unga fólks sem fellur milli kerfa. Þar liggur líka kjarni baráttunnar hjá Strax í dag. Að grípa fyrr inn í. Að hlusta fyrr. Að styðja fyrr. Því með því að ná til barnanna strax er hægt að létta á geðheilbrigðiskerfinu síðar og draga úr þeim þunga sem annars endar of oft í miklum skaða fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið allt.

Það er ein af ástæðunum fyrir því að Steindór sameinaði krafta sína með Jóni K. Jacobsen (aka Nonni Lobo), föður Geris Arnars Jacobsen sem lést í brunanum á Stuðlum. Þeir vinna saman á bak við tjöldin að því að knýja fram umræðu, ábyrgð og breytingar. Hlaðvarpið Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar er aðeins einn hluti af þeirri vinnu.

Á næstu dögum eigum við fundi með alþingisfólki, meðal annars Ingu Sæland barna og menntamálaráðherra. Við höfum einnig boðið Ölmu D. Möller í þáttinn okkar, bæði formlega, í gegnum aðstoðarkonu hennar, með fundarbeiðni í tölvupósti og opinberlega í útvarpsviðtali 17. mars. Við höfum enn ekki fengið svar.

Baráttan heldur áfram. Ekki fyrir fyrirsagnir. Ekki fyrir sýndarmennsku. Heldur vegna þess að börnin sem týnast í kerfinu hafa ekki efni á meiri bið.

Við hvetjum fólk til að lesa pistilinn, deila honum áfram og staldra við á þessum degi.

Lesa hér:
https://www.visir.is/g/20262864765d/fostudagurinn-langi-spyr-stondum-vid-med-tyndu-bornunum-okkar-

❤️
03/04/2026

❤️

Föstudagurinn langi, upprisan og páskar sem minna okkur á ábyrgðina sem við komumst ekki undan, því týndu börnin þurfa á okkur að halda.

Á degi sem minnir á þjáningu, fórn og von er rétt að staldra við og spyrja erfiðra spurninga. Ekki bara um eigið líf, heldur líka um hvernig við stöndum vörð um þau börn og það unga fólk sem getur ekki borið sína baráttu eitt.

Á þessum degi vil ég hvetja sem flesta, og sérstaklega þau sem starfa að málefnum barna og ungs fólks með fjölþættan vanda, til að staldra við og líta í eigin barm.

* Er ég raunverulega að þjóna börnum og geri það heiðarlega?
* Er ég raunverulega að setja málefni þeirra framar mínum starfsframa og forréttindum?
* Get ég gert betur?
* Er ég hundrað prósent heiðarlegur í störfum mínum?

Þetta eru ekki þægilegar spurningar. En föstudagurinn langi er heldur ekki þægilegur dagur. Hann á ekki að renna framhjá okkur eins og enn einn frídagurinn. Hann á að kalla fram íhugun, auðmýkt og ábyrgð.

Og kannski þurfum við sem samfélag meira en nokkru sinni að staldra við og spyrja okkur hvort við séum raunverulega að standa með þeim sem minna mega sín. Börnin og unga fólkið okkar sem eru týnd, brotin eða þjást þurfa á okkur að halda. Ekki seinna. Núna.

Páskarnir hafa ekki alltaf þýtt hið sama fyrir mig

Fyrir rúmum tuttugu árum einkenndust þeir meira af vinnu, keyrslu og djammi en kyrrð, þakklæti og íhugun. Síðan komu ár þar sem ég var einfaldlega týndur. Ár þar sem ég var sífellt að reyna að þóknast öðrum, hlaupa hraðar, sanna mig meira og finna eitthvað fyrir utan mig sem g*t fyllt upp í tómið. Á slíkum tíma skipta hátíðardagar mann litlu máli. Ekki af því að þeir hafi enga merkingu, heldur af því að maður er búinn að týna sjálfum sér.

Kannski er það einmitt þess vegna sem páskarnir snerta mig öðruvísi í dag.

Ekki bara sem hefð eða frí, heldur sem áminning. Áminning um að maður þarf stundum að staldra við. Horfa inn á við. Þagna aðeins. Hugsa um það sem raunverulega skiptir máli. Saga Jesú hefur verið mér slík áminning. Ekki sem einhver samanburður, alls ekki, heldur sem hvatning. Hvatning til að gefast ekki upp. Hvatning til að horfast í augu við sársaukann í stað þess að hlaupa frá honum. Hvatning til að muna að það er engin upprisa án kross, engin dýpt án fórnar og engin raunveruleg breyting án uppgjörs.

Það er engin upprisa án uppgjörs

Föstudagurinn langi er ekki þægileg saga. Og á vissan hátt á hann ekki að vera það. Hann minnir okkur á þjáningu, óréttlæti, fórn og kærleika sem fór alla leið. Hann minnir okkur á að Jesús bar þjáningu og fórn sem hann átti ekki skilið að bera. Fyrir mig er ekki nóg að horfa á þá sögu sem eitthvað sem gerðist einu sinni. Spurningin er hvað við lærum af henni. Hvernig við lifum í ljósi hennar. Hvernig við tökum ábyrgð á eigin lífi, eigin brestum og eigin leið.

Því samfélagið okkar er alltof oft fast í einhverju endalausu kapphlaupi. Við hlaupum, berum okkur saman, leitum að viðurkenningu, eltum falskar hugmyndir um hamingju og kennum svo öðrum um þegar eitthvað brotnar innra með okkur. Við viljum helst forðast skuggann, loka á sársaukann og halda í ímyndina. En þannig finnur maður ekki frið. Þannig finnur maður bara meira tómarúm.

Mitt eigið ferðalag niður og upp aftur

Þegar ég fékk taugaáfallið 2023 hófst mitt erfiðasta ferðalag. Þá byrjaði raunverulegt uppgjör. Ég þurfti að berjast við eigin fordóma, eigin skugga og gamla verki sem höfðu fengið að liggja of lengi í myrkrinu. Ég þurfti að losa beinagrindur úr mínum eigin helli. Það var hvorki fallegt né auðvelt. En það var nauðsynlegt. Og stundum er það þannig að maður þarf fyrst að fara alla leið niður til að hætta loksins að ljúga að sjálfum sér.

Í dag lít ég ekki á það tímabil sem bara hrun. Ég lít líka á það sem upphaf. Upphaf að heiðarlegra lífi. Upphaf að dýpri þakklæti. Upphaf að lífi þar sem ég er ekki lengur að reyna að vera það sem aðrir vilja sjá, heldur reyni að vera ég sjálfur. Ekki fullkominn. Ekki gallalaus. Bara heiðarlegri, vakandi og meðvitaðri.

Að gefa af sér er leið út úr tóminu

Og það er kannski það sem páskarnir minna mig mest á í dag. Að besta svarið við fórn Jesú er ekki falleg orð eða heilög ímynd. Heldur að reyna af alvöru að vera betri maður. Að vera heiðarlegur við sjálfan sig. Að hætta að fela sig. Að bæta fyrir bresti sína þar sem það er hægt. Að gefa af sér. Að elska meira. Að þjóna frekar en að m***a sig. Að hætta að dansa við eigin púka og kalla það frelsi.

Ég finn meiri tilgang í því í dag að hjálpa öðrum en að elta tóma ímynd. Að fá að markþjálfa fólk sem er að elta drauma sína eða leita að tilgangi er forréttindi. Að fá að vinna með Jóni K. Jacobsen, Nonna Lobo, í Týndu Strákunum hefur líka gefið mér dýpri merkingu en margt það sem áður virtist stórt. Þar er eitthvað raunverulegt. Þar er þjónusta. Þar er barátta sem snýst ekki um egó heldur um að leggja eitthvað af mörkum.

Ég held í dag að maður öðlist mest þegar maður hættir að grípa og byrjar að gefa. Þegar maður hættir að spyrja hvað heimurinn eigi að færa sér og fer að spyrja hvað hann geti sjálfur lagt af mörkum. Því með því að gefa af sér öðlast maður oft það sem maður þarfnast mest. Ekki endilega það sem maður hélt að hann þyrfti, heldur það sem skiptir raunverulega máli.

Týndu börnin okkar þurfa á okkur að halda

Kannski er það þess vegna sem páskarnir skipta mig meira máli nú en áður. Þeir minna mig á að vonin fæðist ekki í yfirborðinu. Hún fæðist oft eftir sársauka, eftir uppgjör, eftir þögn og tár. En hún fæðist samt.

Og þess vegna vil ég í dag líka höfða til samvisku þeirra sem starfa að málefnum barna og ungs fólks. Ekki til að fordæma alla. Heldur til að minna á ábyrgðina sem fylgir því að vinna með viðkvæmustu sálum samfélagsins. Sá sem þjónar börnum þarf að gera það af heilindum. Ekki hálfum huga. Ekki með eigin stöðu í fyrirrúmi. Ekki með eigin þægindi ofar sannleikanum.

Við þurfum fleiri sem þora að líta í eigin barm.
Við þurfum fleiri sem þora að spyrja hvort þeir geti gert betur.
Við þurfum fleiri sem setja börnin raunverulega í fyrsta sæti.

Og við þurfum líka að standa saman. Ekki bara í orði, heldur í verki. Það er ekki veikleiki að styðja við fólk sem þarf á okkur að halda. Það er styrkur. Það er ekki tap að gefa af sér. Það er einmitt þar sem margt það besta í lífinu kviknar. Þar verður þjónustan að einhverju raunverulegu. Þar verður kærleikurinn meira en orð.

Týndu börnin okkar þurfa á okkur að halda.

Þau þurfa á heiðarlegu fólki að halda.
Þau þurfa á hugrökku fólki að halda.
Þau þurfa á samfélagi að halda sem hættir að horfa undan.

Og það er nóg ástæða til að staldra við, þakka og halda áfram.

Höfundur er Steindór Þórarinsson, annar af Týndu Strákunum sem berjast fyrir bætu kerfi fyrir börn með fjölþættan vanda, og ungt fólk sem fellur á milil kerfa

Sláandi frásögn um kerfið en líka fallegar minningar um einstakan mann 🎧Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og...
01/04/2026

Sláandi frásögn um kerfið en líka fallegar minningar um einstakan mann 🎧

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar

Nýr þáttur af Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar kemur á miðnætti á Spotify og Apple Podcasts.

Samson.is framleiðir Týndu Strákana í samstarfi við Raddir hlaðvarpsupptökuver fyrir samtökin Strax í dag, sem berjast fyrir bættu geðheilbrigðiskerfi.

Í þriðja þætti ræðir Rósa Ólöf Ólafíudóttir við okkur um bróður sinn, Lalla Johns, bókina sem hún skrifaði um líf hans og baráttu, og það kerfi sem braut ekki aðeins niður einn mann heldur líka fólkið í kringum hann.

Þetta er ekki létt spjall. Hér er farið inn í skjöl sem smættuðu manneskju, orðalag sem bar með sér fordóma og valdbeitingu, og kerfi sem skilaði ekki stuðningi heldur skaða. Rósa lýsir því hvernig hún fékk í hendurnar gögn um bróður sinn þar sem hann var metinn og afgreiddur með niðrandi hætti. Það sem stingur mest er að árið 2026 er þetta ekki bara saga úr fortíð. Mynstrin eru enn hér.

Í þættinum ræðum við einnig hvernig umræðan um Breiðavík opnaði á fleiri spurningar, hvað Rósa sá sjálf innan skólakerfisins og hvers vegna hún taldi nauðsynlegt að segja þessa sögu. Niðurstaðan er þung og skýr. Alltof lítið hefur breyst.

Rósa ræðir líka af hverju bókin varð til. Þar kemur fram ósk Lalla, óréttlætið sem hann varð fyrir, sú staðreynd að bati er mögulegur og hvernig saga hans varpar ljósi á baráttu venjulegs manns gegn valdbeitingu félagsmálakerfisins. Og það sem er verst, svipuð mynstur virðast enn sjást þegar drengir fara út af sporinu.

Í þessum þætti, í samtalinu við Sævar Hlyn í öðrum þætti og í því sem er fram undan, er farið að teiknast upp skýrt mynstur. Þetta eru ekki einstök mistök. Ekki einstök slys. Þetta eru mynstur. Fordómar í kerfinu. Fordómar í samfélaginu. Börn stimpluð áður en þau fá raunverulegt tækifæri.

Fylgdu Týndu Strákunum á Spotify og Apple Podcasts.
https://open.spotify.com/show/0XoNM0Nzz1Q2J5oQWKR9BL?si=29b9c7d9003a4bb6

Á næstunni koma til okkar meðal annars alþingiskona, kennari sem hefur barist við kerfið og einn týndur strákur sem segir frá reynslu sinni af Stuðlum og barnaverndarkerfinu. Hann kemur fram nafnlaust á meðan hann vinnur í sínum málum í dag.

Þetta er farið að tengjast. Og það sem er fram undan skiptir máli.

20/03/2026

Höfum hátt! Deilum og sýnum að við sem samfélag erum komin með nóg!

Týndu Strákarnir eru farnir í loftið.Þetta er hlaðvarp í tengslum við Strax í dag þar sem farið er í kerfið, veggina og ...
19/03/2026

Týndu Strákarnir eru farnir í loftið.

Þetta er hlaðvarp í tengslum við Strax í dag þar sem farið er í kerfið, veggina og afleiðingarnar. Ekki í gegnum sögusagnir heldur með því að setja raunveruleg dæmi á borðið og fylgja þeim eftir.

Í fyrsta þætti er farið í grunninn. Hvað þetta er. Af hverju þetta var sett af stað. Og hvað verður gert bæði í hlaðvarpinu, á gólfinu og á bak við tjöldin.

Þetta er vinna sem stoppar ekki þegar upptöku lýkur. Samtöl, gögn og eftirfylgni halda áfram á milli þátta.

Þáttur #1 er kominn í loftið. Hlekkur í fyrstu athugasemd.

Ef þú vilt hjálpa til við að halda fókus á málefninu, deildu færslunni. 👇🏻

Orðrétt úr skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar"Rannsókn HMS leiddi því í ljós að ef brunavarnir hefðu verið virkar ...
18/03/2026

Orðrétt úr skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

"Rannsókn HMS leiddi því í ljós að ef brunavarnir hefðu verið virkar í samræmi við brunahönnun, þ.m.t. rýmingaráætlun, hefði verið unnt að draga úr þeirri hættu sem skapaðist og þannig verið hægt að koma í veg fyrir mannslát."

Faðir drengs sem lést í eldsvoða á Stuðlum segir að kerfið sem átti að bjarga barninu sínu hafi drepið það. Í rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að koma hefði mátt í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið virkar. Níu eru með stöðu sakbornings í...

ÞÚ VILT EKKI MISSA AF ÞESSU!
18/03/2026

ÞÚ VILT EKKI MISSA AF ÞESSU!

Skýrsla HMS um brunan á stuðlum var birt í dag!

Týndu Strákarnir: verða á RÁS 2 kl. 17:30 að ræða um hvað er framundan!

Tilkynum væntanlegan gest! STÓR TILKYNING!

ÞÚ VILT EKKI MISSA AF ÞESSU!

Hjálpið okkur endilega að stækka, Allar deilingar muna miklu
17/03/2026

Hjálpið okkur endilega að stækka, Allar deilingar muna miklu

Ég fór í fyrstu yfirferð á skýrslunni Samþætt þjónusta við börn með vímuefnavanda og skrifaði pistil um hana. Það sem blasir við er alvarlegt. Í skýrslunni er viðurkennt að þjónustan hafi verið brotakennd, ábyrgðin óljós og skortur á sérhæfðum úrræðum raunverulegur gagnvart börnum með þyngstan og flóknasta vanda.

Þetta er ekki smáatriði. Þetta er margt af því sem hefur verið gagnrýnt lengi.
Ég skrifaði pistil um þetta og þess vegna ætlum við að ræða skýrsluna nánar í þætti 2 af Týndu Strákunum. Þar förum við ofan í hvað stjórnvöld eru raunverulega að viðurkenna, hvað er enn óljóst og hvaða spurningar þarf nú að leggja beint fyrir þá sem bera ábyrgð.

Og þetta stoppar ekki þar.
Mjög fljótlega birtist líka skýrsla Húsnæðis og mannvirkjastofnunar vegna rannsóknar á brunanum á Stuðlum í október 2024, þar sem Geir Arnar Jacobsen lést. Faðir hans, Jón K. Jacobsen, er annar af þáttastjórnendum Týndu Strákanna.

Þeirri skýrslu verður fylgt fast eftir. - hlekkur á pistil í fyrstu athugasemd

Við gefum ekkert eftir. - Eigum við að fá formann nefndarinnar í viðtal til okkar?

Steindór Þó.

Ertu ekki örugglga að fylgja síðuni Týndu Strákarnir? Stór tilkynning kl. 20:20
16/03/2026

Ertu ekki örugglga að fylgja síðuni Týndu Strákarnir? Stór tilkynning kl. 20:20

Address


200

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when STRAX Í DAG - Krefjumst aðgerða í geðheilbrigðimálum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to STRAX Í DAG - Krefjumst aðgerða í geðheilbrigðimálum:

  • Want your practice to be the top-listed Clinic?

Share