Heilunarkofinn - Cranio & heilun.

Heilunarkofinn - Cranio & heilun. Heilunarkofinn
Einkatímar í orkuheilun, tónheilun og cranio höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð.

Heilunarkofinn er hlýlegt og friðsælt rými í náttúrulegu umhverfi rétt utan við Reykjavík. Hér er boðið upp á reiki, tónheilun og craniosacral meðferð sem stuðla að djúpri slökun og betra jafnvægi í líkama og sál. Við leggjum áherslu á nærgætna og persónulega meðferð þar sem þú færð að vera nákvæmlega eins og þú ert. Umhverfið er kyrrlátt og náttúran allt í kring hjálpar til við að skapa rými fyri

r ró, endurnýjun og vellíðan. About us
Heilunarkofinn is a warm and peaceful space located in a natural setting just outside Reykjavík. We offer reiki, sound healing and craniosacral therapy that support deep relaxation and greater balance in body and mind. Our approach is gentle and personal, meeting you exactly where you are. Surrounded by nature, the environment itself supports rest, renewal and wellbeing.

Spil dagsins ✨ 💛 Tími ljóssins✨Þú hefur undirbúið þig fyrir þetta frá fyrri lífum.Þetta er ekki nýtt fyrir þig. Sál þín ...
15/04/2026

Spil dagsins ✨ 💛

Tími ljóssins✨

Þú hefur undirbúið þig fyrir þetta frá fyrri lífum.

Þetta er ekki nýtt fyrir þig. Sál þín hefur safnað reynslu og visku frá fyrri lífum, og allt sem þú hefur gengið í gegnum hingað til hefur gert þig tilbúna/n fyrir þennan tíma. Það er engin tilviljun að þú sért hér núna.

Það er algengt að finna fyrir efa þegar maður byrjar að fylgja ljósi sínu. Þú gætir spurt sjálfa/n þig: „Get ég virkilega gert þetta?“ En í raun ertu tilbúin/n – einmitt vegna alls sem þú hefur upplifað.

Öll reynslan, allar áskoranirnar, allir sigrarnir – þau hafa öll verið hluti af undirbúningnum. Þau hafa mótað þig og gert þig að þeirri manneskju sem nú getur borið ljósið áfram.

Spurningin er því ekki „Er ég tilbúin/n?“ heldur: „Hvernig ætla ég að stíga fram?“

spurning ljóssins
Hvað hefurðu lært í gegnum lífið sem gerir þig tilbúna/n til að stíga fram núna?

Ljós og kærleikur til þín 💛✨

Spil dagsins 💛✨ Staldraðu við ✨Lífið er langt ferðalag. Þú þarft ekki að vera alltaf á hlaupum.Það er í lagi að stoppa a...
14/04/2026

Spil dagsins 💛✨

Staldraðu við ✨

Lífið er langt ferðalag. Þú þarft ekki að vera alltaf á hlaupum.

Það er í lagi að stoppa aðeins og njóta þess sem þú hefur skapað. Gefðu þér stund frá dagsins amstri. Taktu eftir því sem þú hefur gert, sleppt eða lært áður en þú heldur áfram í næsta skref. Vertu í augnablikinu og leyfðu þér að njóta þess sem er. Andaðu djúpt og safnaðu orku í líkama, huga og sál. Sýndu þakklæti og fagnaðu litlu sigrunum.

Kannski hefur þú nýlega lokið einhverju stóru, skapað breytingu í lífi þínu eða bara gengið á kraftinn þinn. Nú er tíminn til að hvíla áður en þú heldur áfram. Þú hefur staðið þig vel. Gefðu þér hlé til að næra þig. Það getur verið frí, nudd, göngutúr í náttúrunni eða hressandi helgarhlé til að fylla á orkuna.

Staldraðu við og andaðu djúpt.

Ljós og kærleikur til þín 💛✨

Spil dagsins ✨💛 LjóssúlaTíðnin þín er að hækka. Þú ert spáin.Þú ert himinn og jörð í jafnvægi. Ljósið streymir í gegnum ...
13/04/2026

Spil dagsins ✨💛

Ljóssúla

Tíðnin þín er að hækka. Þú ert spáin.

Þú ert himinn og jörð í jafnvægi. Ljósið streymir í gegnum þig frá himni til jarðar. Þú ert regnbogabrúin.

Gefðu þér stund til að setjast í kyrrð. Ímyndaðu þér að þú sért ljóssúla sem tengir ljós himinsins við jörðina. Þegar ljósið fer í gegnum orkustöðvar þínar virkjar það innri regnbogabrú sem nefnd er í fornum fræðum. Þannig hækkar tíðnin þín – og með henni hækkar tíðni jarðarinnar.

Þú tengir saman himneska sviðið og jarðneska. Englar, leiðsögumenn og forna viskan flæða í gegnum þig – þeir syngja og tala með þinni rödd. Án þín væri þessi rödd þögul. Lengst af höfum við trúað að Guð sé annars staðar, en sannleikurinn er að röddin er í hjarta þínu.

Þú ert spáin. Leitaðu ekki út á við – allt sem þú þarfnast býr í hjarta þínu og í hverri frumu líkamans. Sjáðu ekki englana sem eitthvað yfir þér, því án þín hafa þeir enga leið til að tala. Þú ert spáin. Þú ert regnbogabrúin. Þú ert ljóssúlan.

Ljós og kærleikur til þín 💛

Spil dagsins 💛 ✨ TunglorkaGefðu eftir fyrir hinu náttúrulega útfalli og flæði lífsins. Ef þér finnst þú ráðvillt/ur, kem...
12/04/2026

Spil dagsins 💛 ✨

Tunglorka

Gefðu eftir fyrir hinu náttúrulega útfalli og flæði lífsins. Ef þér finnst þú ráðvillt/ur, kemur þessi blómálfur til að róa tilfinningar og fullvissa þig um að friður í huga er mögulegur.

Við verðum öll fyrir áhrifum tunglsins, hvort sem við gerum okkur grein fyrir því eða ekki. Kannski finnst þér þú sérstaklega stillt/ur inn á tunglhringinn eða blómálfinn. Blómálfur Tunglsins birtist oft þegar við höfum of margar hugsanir eða finnst við ráðvillt. Þú getur kallað á þennan blómálf til að taka í burtu allar áhyggjur eða til að innblása þig til að koma upp með lausnir á þeim áskorunum sem þú stendur frammi fyrir.

Að vinna í samhljómi við tunglið getur magnað viljaeinkenni þín þegar þú reynir til að birta eitthvað í lífi þínu. Nýjatungls fasin er fullkominn tími til að sá fræjum óska sem þú getur haft. Eftir því sem tunglið stækkar, vex í gegnum sína fasa, mun óskin þín gera hið sama. Minkandi fasar tunglsins eru bestir til að sleppa hverju sem ekki lengur þjónar þinni æðstu þágju, svo sem ógeðfelldum hugsunum, heilsuvandamálum eða fólki sem er ekki hlið rétta fyrir þitt líf.

Þegar þú setur kristal í tunglsljósið mun hann drekka í sig hina töfrandi tunglgeisla, sem geta síðan verið notaðir fyrir blómálfaáköll. Tær bergkristall er sérstaklega góður í að drekka í sig orku tunglsins og mun hjálpa við að magna marga hluti í lífi þínu, frá heilsu að fjármálum. Ametyst er góður til að auka andlega orku, meðan rósakvars hjálpar að magna ást.

Blómálfur Tunglsljóss sendir einnig innblástur til þín til að skrifa niður hugsanir þínar, skáldskap eða lög, eða jafnvel til að skrifa bók. Að skrifa niður það sem er í huga þínum getur verið mjög græðandi. Ekki ritstýra hugsanir þínar: Um leið og hugsanir þínar eru á blaðinu hefurðu á táknrænan hátt sleppt þeim úr huga þínum. Þú getur svo grafið eða brennt pappírinn til að sleppa að fullu öllum kvölum, áhyggjum eða vandamálum.

Ljós og kærleikur til þín 💛

  Takk fyrir þátttökuna !💛🥰🙏Hér koma spilin ykkar 💛Ég verð svo aftur með vikuspá næstkomandi föstudag 🥰❤️🙏Yndislega helg...
10/04/2026



Takk fyrir þátttökuna !💛🥰🙏

Hér koma spilin ykkar 💛

Ég verð svo aftur með vikuspá næstkomandi föstudag 🥰❤️🙏

Yndislega helgi til ykkar 💛🙏

Kærleikskveðja
Svanhvít

Vikuspáin er mætt! 🥰✨🙏Hvaða spil kallar á þig? Treystu innsæi þínu 💛Svörin koma inn kl. 20:30 í kvöld!🥰Kærleikskveðjur
10/04/2026

Vikuspáin er mætt! 🥰✨🙏

Hvaða spil kallar á þig? Treystu innsæi þínu 💛

Svörin koma inn kl. 20:30 í kvöld!🥰

Kærleikskveðjur

Spil dagsins 💛 ✨ SLANGAN 🐍Falinn kraftur innra með þérSlangan táknar kraft sem býr innra með okkur og bíður eftir að vak...
08/04/2026

Spil dagsins 💛 ✨

SLANGAN 🐍

Falinn kraftur innra með þér

Slangan táknar kraft sem býr innra með okkur og bíður eftir að vakna.

Þó þú tengir ekki endilega við myndina, er gott að spyrja: Er einhver kraftur innra með þér sem bíður eftir að vakna?

Hvernig myndi lífið breytast ef þessi kraftur innra með þér vaknaði? Hvað gæti hjálpað þér að koma honum af stað?

Jóga eða hugleiðsla getur hjálpað þér að koma kraftinum á hreyfingu.
Slangan birtist þegar tíminn er kominn til að vakna og taka skrefið.

Í jafnvægi: Sköpunarkraftur, innri ró og sjálfsöryggi
Úr jafnvægi: Byrjar á mörgu án þess að klára, erfitt að halda einbeitingu
Til að komast í jafnvægi: jóga, hugleiðsla.

Ljós og kærleikur til þín 💛

Spil dagsins 💛Hreinleiki.Treystu alltaf á hreinleika hjarta þíns. Líttu inn í hjarta þitt og innan þess muntu finna svar...
07/04/2026

Spil dagsins 💛

Hreinleiki.
Treystu alltaf á hreinleika hjarta þíns.
Líttu inn í hjarta þitt og innan þess muntu finna svarið við spurningum þínum ❤

Spil dagsins: Stjörnubað ✨✨ Þú ert að tengjast ljósinu og alheiminum✨ Orka streymir til þín og hjálpar líkama og sál að ...
06/04/2026

Spil dagsins: Stjörnubað ✨

✨ Þú ert að tengjast ljósinu og alheiminum
✨ Orka streymir til þín og hjálpar líkama og sál að vakna
✨ Þú ert hluti af einhverju stærra

Taktu þér rólega stund – leggstu niður og ímyndaðu þér að þú baðir þig í mjúku ljósi stjarnanna.

Staðfesting:
Ég tengist ljósinu. Ég man hver ég er.

Ljós og kærleikur til þín 💛

Gleðilega páska 💛 Við vonum að þið hafið það sem allra best 💛🐣KærleikskveðjurSvanhvít og Kjartan
05/04/2026

Gleðilega páska 💛
Við vonum að þið hafið það sem allra best 💛🐣
Kærleikskveðjur
Svanhvít og Kjartan

Spil dagsins ✨ 💛 Lyfta hulunni✨Þegar hulunni er lyft sjáum við skýrar. Það sem áður var falið, bæði í okkur sjálfum og í...
04/04/2026

Spil dagsins ✨ 💛

Lyfta hulunni✨

Þegar hulunni er lyft sjáum við skýrar. Það sem áður var falið, bæði í okkur sjálfum og í kringum okkur, kemur í ljós. Þetta spil kallar þig til að staldra við og spyrja: „Er þetta í takt við mig? Er þetta í samhljómi við lífið og jörðina?“

Við lifum á tímum þar sem gamlir hlutir hrynja – sambönd, kerfi, og hugmyndir sem ekki byggjast á sannleika eða heilindum geta ekki staðið lengur. Það er ekki til að refsa, heldur til að færa okkur nær raunverulegum kjarna.

Leyfðu innsæinu að leiða þig. Skannaðu líf þitt og slepptu því sem er ekki lengur í takt við hjarta þitt. Það getur verið krefjandi að sleppa tökum, en þegar þú gerir það losnar orka og nýtt rými skapast fyrir sannleikann að flæða inn.

Þetta er boð um að lifa í meiri heiðarleika við sjálfa/n þig og að færa lífið þitt í dýpra jafnvægi. Litlu skrefin skipta máli – því hvert skref í átt að sannleikanum styrkir þig og hjálpar líka heildinni.
„Ég vel að sjá skýrar og sleppa því sem ekki þjónar mér lengur.“

Ljós og kærleikur til þín 💛✨

Takk fyrir þátttökuna 🌞Hér koma spilin ykkar 💛🙏Yndislega páska til ykkar 💛Kærleikskveðja Svanhvít
03/04/2026

Takk fyrir þátttökuna 🌞

Hér koma spilin ykkar 💛🙏

Yndislega páska til ykkar 💛

Kærleikskveðja
Svanhvít

Address

Reykjavík

Website

https://www.facebook.com/profile.php?id=61551985811077

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heilunarkofinn - Cranio & heilun. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Heilunarkofinn - Cranio & heilun.:

Share