12/02/2026
🤍 Hvar sem þú ert, hvernig sem þér líður og hvað sem þú getur, hefur þú nú tækifæri til að stunda jóga nidra á eigin forsendum og í þínu eigin rými. Það eina sem þú þarft er að koma þér vel fyrir og tengjast.
🤍Á þessu námskeiði verður lifandi og opin jóga nidra æfing á miðvikudögum kl.12. Æfingin verður tekin upp og birtist hún á heimasvæði námskeiðsins samdægurs. Þú getur hlustað á þínum eigin tíma, eins oft og þú vilt næstu daga.
🧘♀️ Jóga nidra eða öðru nafni jógískur svefn er aðferð slökunar þar sem markmiðið er að koma líkamanum í draumkennt ástand milli svefns og vöku. Rannsóknir sýna að 45 mínútna jóga nidra iðkun jafnist á við þriggja klukkustunda svefn fyrir heila og líkama. Slökunin setur líkamann í heilandi ástand þannig frumur, taugar, bandvef, vöðva o.fl. fá tækifæri til að endurnýjast og laga sig á náttúrulegan hátt. Með því að gefa sér þennan tíma má segja að líkaminn fái pásu til að stinga sér í samband og heila sjálfan sig.
👉 Skráning:
Hvar sem þú ert, hvernig sem þér líður og hvað sem þú getur, hefur þú nú tækifæri til að stunda jóga nidra á eigin forsendum og í þínu eigin rými. Það eina sem þú þarft er að koma þér vel fyrir og tengjast. Þetta námskeið er sérstaklega ætlað þeim sem eiga erfitt ...