Heilsugæslan Höfða

  • Home
  • Heilsugæslan Höfða

Heilsugæslan Höfða Heilsugæslan Höfða opnaði þann 1. júní 2017

Árlegar bólusetningar fyrir inflúensu og Covid19 eru hafnar
09/10/2024

Árlegar bólusetningar fyrir inflúensu og Covid19 eru hafnar

Lokað verður fyrir fyrirspurnir í gegnum mínar síður á Heilsuveru frá 1. júní - 31. ágúst.
03/06/2024

Lokað verður fyrir fyrirspurnir í gegnum mínar síður á Heilsuveru frá 1. júní - 31. ágúst.

19/03/2024

Frá og með 19. mars verður breytt fyrirkomulag á dagvakt og síðdegisvakt.
Öll erindi þarf þá að bóka símleiðis í síma 591-7000.
Bráðatilfellum verður þó sinnt sem áður.

https://alfred.is/starf/starfsfolk-a-heilsugaesluna-hoefda-sudurnesjumHeilsugæslan Höfða opnar nýja heilsugæslu á Suðurn...
17/05/2023

https://alfred.is/starf/starfsfolk-a-heilsugaesluna-hoefda-sudurnesjum

Heilsugæslan Höfða opnar nýja heilsugæslu á Suðurnesjum þann 1. september og leitar að starfsfólki til að taka þátt í að byggja upp nýjan og spennandi vinnustað.

Heilsugæslan Höfða opnar nýja heilsugæslu þann 1. september og leitar af starfsfólki í móttöku og önnur störf heilsugæslunnar Helstu verkefni og ábyrgð - Móttökuritari - Læknaritari - Skrifstofustörf Menntunar- og hæfniskröfur - Reynsla af heilsugæslu æskileg - Góð almenn t....

Opið hús fyrir Inflúensubólusetningu laugardaginn 19. nóvember fyrir áhættuhópa
16/11/2022

Opið hús fyrir Inflúensubólusetningu laugardaginn 19. nóvember fyrir áhættuhópa

Boðið upp á bólusetningar á heilsugæslustöðvumHeilsugæslustöðvar bjóða nú upp á bólusetningar við bæði inflúensu og Covi...
24/10/2022

Boðið upp á bólusetningar á heilsugæslustöðvum

Heilsugæslustöðvar bjóða nú upp á bólusetningar við bæði inflúensu og Covid-19 auk hefðbundinna ferðamannabólusetninga.

Fólk 60 ára og eldri og yngra fólk með undirliggjandi sjúkdóma er hvatt til að þiggja bólusetningu við bæði inflúensu og Covid-19.

Bóka þarf tíma í bólusetningu í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða í gegnum síma hjá hverri heilsugæslustöð. Misjafnt er milli stöðva á hvaða tímum boðið er upp á bólusetningar og er hægt að finna nánari upplýsingar á vefsíðu hverrar heilsugæslustöðvar eða við tímabókun.

Hægt er að velja um að fá eftirfarandi bólusetningar:

Grunnbólusetningu við Covid-19.
Örvunarskammt af bóluefni gegn Covid-19.
Bóluefni við inflúensu.
Örvunarskammt gegn Covid-19 og bóluefni við inflúensu á sama tíma.
Bólusetningar fyrir ferðamenn

Heilsugæslustöðvar bjóða einnig upp á bólusetningar fyrir fólk sem hyggur á ferðalög erlendis.

Sóttvarnarlæknir mælir sérstaklega með því að fólk 24 ára og eldra sem ekki hefur fengið bólusetningu gegn barnaveiki og mænusótt á síðustu 10 árum fái slíka bólusetningu fyrir öll ferðalög erlendis. Nánar er fjallað um viðhald bólusetninga á Heilsuveru.

Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar veitir ráðgjöf um nauðsynlegar bólusetningar tengt ferðalögum og útbýr bólusetningaráætlun í gegnum netspjall á vefnum Heilsuveru.

04/10/2022

BOÐIÐ UPP Á BÓLUSETNINGU VIÐ INFLÚENSU Í LAUGARDALSHÖLL

Hefðbundin bólusetning við inflúensu fyrir 60 ára og eldri fer fram í Laugardalshöll að þessu sinni. Í Höllinni verður boðið upp á bæði örvunarskammt við Covid-19 og bólusetningu við inflúensu og er hægt að velja um að fá annað hvort eða bæði.

Bólusett verður alla virka daga fram til föstudagsins 7. október milli klukkan 11 og 15 í anddyri Laugardalshallar.

Þau sem þegar hafa fengið fjórða skammtinn af bóluefni við Covid-19 eru sérstaklega hvött til að mæta og þiggja bólusetningu við inflúensu.

Fyrir þau sem vilja þiggja bólusetningu við Covid-19 þurfa fjórir mánuðir að hafa liðið frá því þau fengu þriðja skammt af bóluefni. Einnig þurfa fjórir mánuðir að hafa liðið frá því viðkomandi jafnaði sig af smiti af Covid-19.

Notast verður við nýja útgáfu af bóluefni við Covid-19 og verður því ekki boðið upp á grunn bólusetningu fyrir þá sem ekki hafa verið bólusettir áður. Fólk er vinsamlegast beðið um að mæta í stuttermabol innst klæða til að auðvelda bólusetningu.

Eftir að bólusetningarátaki 60 ára og eldri er lokið er stefnt að því að bjóða yngri en 60 ára sem vilja örvunarskammt upp á bólusetningu á heilsugæslustöðvum. Þar verður einnig boðið upp á bólusetningu við inflúensu á sama tíma fyrir þau sem það vilja.

BÓLUSETNINGAR FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI HEFJAST Í LAUGARDALSHÖLL 27. SEPTEMBER Íbúum höfuðborgarsvæðisins 60 ára og eldri ve...
26/09/2022

BÓLUSETNINGAR FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI HEFJAST Í LAUGARDALSHÖLL 27. SEPTEMBER

Íbúum höfuðborgarsvæðisins 60 ára og eldri verður boðið upp á fjórða skammtinn af bóluefni við Covid-19 í Laugardalshöll frá og með 27. september.

Bólusett verður milli klukkan 11 og 15 alla virka daga frá þriðjudeginum 27. september til föstudagsins 7. október og eru allir sem geta hvattir til að mæta.

Samhliða örvunarbólusetningu við Covid-19 verður boðið upp á bólusetningu við inflúensu. Hægt er að velja um þrjá kosti:

Að fá eingöngu bólusetningu við Covid-19.
Að fá eingöngu bólusetningu við inflúensu.
Að fá bólusetningu við bæði Covid-19 og inflúensu.

Fjórir mánuðir þurfa að hafa liðið frá því einstaklingur fékk þriðja skammt af bóluefni eða smitaðist af Covid-19. Notast verður við nýja útgáfu af bóluefni við Covid-19 og verður því ekki boðið upp á grunn bólusetningu fyrir þá sem ekki hafa verið bólusettir áður. Fólk er vinsamlegast beðið um að mæta í stuttermabol innst klæða til að auðvelda bólusetningu.

Heilbrigðisstofnanir utan höfuðborgarsvæðisins munu annast bólusetningar fyrir sína skjólstæðinga.

Yngri en 60 ára bólusett á heilsugæslustöðvum

Þegar bólusetningarátaki 60 ára og eldri verður lokið er stefnt að því að bjóða yngri en 60 ára sem vilja örvunarskammt upp á bólusetningu á heilsugæslustöðvum. Þar verður einnig boðið upp á bólusetningu við inflúensu á sama tíma fyrir þau sem það vilja.

Upplýsingar um aukaverkanir vegna Covid-19 bólusetningar er að finna á vefnum

Góð ráð, traustar upplýsingar og nýjustu fréttir af COVID-19 og aðgerðum við að hefta útbreiðslu.

08/09/2022

60 ÁRA OG ELDRI FÁ BÓLUSETNINGU Í LAUGARDALSHÖLL

Boðið verður upp á örvunarskammt af bóluefni við Covid-19 fyrir 60 ára og eldri í Laugardalshöll í lok september. Samhliða verður þeim sem vilja boðið upp á bólusetningu við inflúensu.

Bólusetningin fer fram á tveggja vikna tímabili, frá 26. september til 7. október, í anddyri Laugardalshallar.

Þau sem hafa fengið þrjá skammta af bóluefni og hafa náð 60 ára aldri munu fá boð í bólusetningu. Minnst fjórir mánuðir verða að hafa liðið frá því viðkomandi fékk síðast bóluefni við sjúkdóminum.

Sóttvarnarlæknir hefur nú heimilað að gefa á sama tíma bóluefni við Covid-19 og bóluefni við inflúensu. Þau sem koma í bólusetningu hafa því val um hvort þau fá bæði bóluefnin á sama tíma eða aðeins annað þeirra.

Örvunarskammtar með nýju bóluefni

Stefnt er að því að nota nýjar útgáfur af bóluefnum frá Moderna og/eða Pfizer sem eiga að virka betur gegn því afbrigðum veirunnar sem nú eru í gangi. Ef einhverjir hafa ekki fengið grunnbólusetningu munu viðkomandi fá upprunalegu bóluefnin þar sem ekki hefur verið staðfest að nýju bóluefnin séu jafnvirk þeim eldri við þá notkun.

Bólusetning við Covid-19 verður landsmönnum áfram að kostnaðarlausu en innheimt verður hefðbundið komugjald fyrir bólusetningu við inflúensu.

Yngri en 60 ára bólusett á heilsugæslustöðvum

Þegar bólusetningarátaki 60 ára og eldri verður lokið er stefnt að því að bjóða yngri en 60 ára sem vilja örvunarskammt upp á bólusetningu á heilsugæslustöðvum. Þar verður einnig boðið upp á bólusetningu við inflúensu á sama tíma fyrir þau sem það vilja.

Address

Bíldshöfði 9

110

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heilsugæslan Höfða posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Heilsugæslan Höfða:

  • Want your practice to be the top-listed Clinic?

Share