Listakona, jógakennari, spilaframleiðandi og sjálflærð keramikkerling. www.irisosp.com
02/05/2023
ok ég er tilbúin að skríða rólega af bleika skýinu sem hefur fleytt mér um í heilt ár.
Ég veit að sumarið er ekki besti tíminn fyrir námskeið en vonandi næ ég bara samt að halda nokkur í Festa sjúkraþjálfun í sumar -(Það má líka ræða tímasetningar sem henta vinnandi og grillandi fólki betur á sumrin, til dæmis morgun- eða hádegistíma)
Það er pláss fyrir 12 manns á þessu "námskeiði" sem er samt ekki beint námskeið heldur bara 5 lokaðir jóg*tímar.
Svo er ég líka byrjuð að taka niður hópabókanir fyrir sumarið; við erum að tala um vinahittinga, gæsanir og steggjanir, vinnustaðakósí o.s.frv.
ok frábært. Sjáumst í jóga!!
Íris
16/12/2022
Á þessar og fleiri orginala úr spilinu, tilbúin í innrömmun og í plasti.
20.000 stykkið
Ath. það eru fleiri stöður til, á til 50stk (engin eins)
19/08/2022
Frábærar fréttir!! 💛
28/04/2022
Síðasti meðgöngu-mömmu-bumbu tíminn (í bili) verður á laugardaginn kl 11:00
Hér: Silfurtorg jóga studíó
Rólegt flæði með áherslu á grindarbotn, mjaðmir og brjóstbak með rosa djúsí slökun í lokin.
Verð 1500kr
Minimum 5 þátttakendur og nauðsynlegt að skrá sig.
Sjáumst
10/04/2022
Mömmur og bumbur
Það er jóga og hugleiðsla í dag!
Silfurtorg jóga studíó kl 11:00
Sjáumst þar ❤️
01/04/2022
Ísafjörður!
LOKSINS verður Bumbu- og mömmujóga á laugardögum í april kl 11:00 í Silfurtorg jóga studíó
Verð 1500kr (minnstakosti 5 þátttakendur)
Eða 5.000kr fyrir 4 tíma klippikort.
Engin skilyrði fyrir því að hafa prófað jóga áður eða eiga glænýjan hvítvoðung.
Allar mömmur velkomnar.
02/03/2022
Er áhugi fyrir spontant jóga á Ísafirði á morgun (fimmtudag 3. mars)?
Það losnaði tími í Silfurtorg jóga studíó kl 16:30 og mér býðst að taka hann.
Klukkustund og verðið er 2500 per þátttakandi.
Ólétt og öll hin meira en velkomin ❤
(mininum 5 þátttakendur)
Skráning fer fram í skilaboðum en það má líka senda mér sms 8451876 eða email iris@irisosp.com
Sjáumst við með stuttum fyrirvara?
23/10/2021
Ísafold Design Icelandic handbags og YOGER á Dokkan brugghús (Ísafirði) í dag 👏👏👏
15/10/2021
Vestfirðir! Yndislega Fanney - Stjörnuspeki verður með hugleiðslu á Þingeyri í næsta mánuði.
Nú er um að gera að taka sér bíltúr fyrir hugann.
Þetta verður eitthvað. 💛🧘♀️🧘♂️
07/10/2021
YOGER börn er svo skemmtilegt
og Sjoppan vöruhús líka!!
Hafa krakkarnir prófað Yoger börn?
12/09/2021
Allir á Ísó í jóga til Gunnhildar.
Byrjendanámskeið eru best ❤️
Be the first to know and let us send you an email when irisosp.com posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.
Ég útskrifaðist í maí 2019 úr 200 tíma alliance samþykktu yoga námi úr Yoga Teachers College í Barcelona (200RYT). Þar áður hafði ég stundað yoga af mikilli alúð í nokkur ár og skráð hjá mér fleiri hundruð jóga tíma. Ég hef alltaf haft áhuga á jóga en þá sérstaklega hugmyndinni á bakvið iðkunina, hugleiðslu og hugarró og langaði mig sérstaklega að læra að leiða yin jóga tíma.
Í nóvember 2019 gaf ég síðan út jóga spilið YOGER, jóga spil fyrir sjálfsiðkun og gekk framleiðsla og sala spilsins framar mínum björtustu vonum. Spilið er hægt að nálgast hér á síðunni og kostar 4.900kr
*********************************************************************
Til að geta hafið nám í skólanum í Barcelona þurfti ég að halda dagbók um iðkun mína og mæta í samtals 100 tíma sem að ég gerði yfir þriggja mánaða tímabil. Á þessu tímabili skráði ég hjá mér almenna hatha jóga tíma sem og yin jóga, Ashtanga og ýmsa aðra og fann aukinn áhuga á hreyfingu. Ég fann hvernig mig langaði að verða betri í ákveðnum stöðum og sá framfarir strax. Ég byrjaði að einbeita mér að líkamsstöðunni minni og fékk sérstakann áhuga á core æfingum og armbeygjum sem var samt sem áður afar ólíkt mér.
Námið var mjög fitness miðað sem gerði það að verkum að ég g*t einblínt á þennan nýja áhuga minn og yin iðkun fór í annað sæti.
Eftir námið fór ég síðan í nokkra mánaða ferðalag um Asíu þar sem ég einblíndi á jóga iðkun, lærði meira um sjálfa mig, jóga iðkun og hugmyndafræðina.
Fór í jóga retreat, Ashram og fleiri jóga námskeið.
Núna leiði ég jóga út frá Astanga þekkingu minni, leiði í gegnum andardrátt en einnig leiði ég yin yoga þar sem að djúpum stöðum er haldið í 90 sekúndur eða lengur.
Ég tek að mér einkatíma og hópatíma. Kem í heimsókn beint heim í stofu eða í þitt þægilegasta umhverfi eða jafnvel á skrifstofuna.
Ekki hika við að senda mér fyrirspurn um hvað sem er og ég svara eins fljótt og mögulegt er.
heidrunardottir@icloud.com