23/08/2023
Birtan – sálfræðiþjónusta Guðlaugar Ásmundsdóttur er fyrir fólk á öllum aldri. Viðtöl á Akranesi og á netinu.
Almenn og sérhæfð sálfræðiþjónusta eins og hentar hverjum og einum. Sérþekking á þroskavanda, einhverfu, ADHD, kvíða, vanlíðan, áföllum, flóknum áföllum og álagi ýmiskonar. Helstu meðferðarleiðir eru hugræn atferlismeðferð (HAM), EMDR og DBR.
Athugið að formlegar greiningar á þroskavanda, ADHD og einhverfu eru EKKI gerðar að sinni hjá Birtunni sálfræðiþjónustu.
Fagaðilum sem sinna börnum og unglingum býðst handleiðsla.