Elísabet Ýrr - Fjölskyldufræðingur

Elísabet Ýrr - Fjölskyldufræðingur Fjölskyldufræðingur, starfa hjá Heilsu- og Sálfræðiþjónustunni. Einstaklings,para- og fjölskyldumeðf.

12/02/2025

Elísabet Ýrr skrifar um parasambönd og ráðgjöf fyrir pör 🩵✍🏻 Greinina má finna á heimasíðu stofunnar og á vikubladid.is

🩵
01/03/2024

🩵

28/02/2024

Laus pláss á námskeiðið:
Áfram og upp - ACT og núvitund 💙

🔹Hefst 5. mars næstkomandi
🔹8 skipti, stendur í 4 vikur, 2x í viku.

Við langvarandi veikindi, verkjavanda, tilfinningavanda, kulnun og aðra erfiðleika sem mæta okkur í lífinu fylgja oftast einnig erfiðar tilfinningar og hugsanir s.s. kvíði, sjálfsásakanir, depurð og áhyggjur. Algengt er að þessar tilfinningar auki enn á vandann og þannig verða áhrif hans oft til þess að einstaklingurinn takmarkar þátttöku í daglegu lífi. Í ACT er lögð áhersla á að gangast við slíkum tilfinningum án þess að leyfa þeim að taka stjórnina. Þess í stað eru skoðaðar aðferðir til að gera jákvæðar breytingar á eigin atferli og setja sér ný markmið sem auka lífsgæði og draga úr áhrifum vandans á daglegt líf.

Hafið samband við mottaka@heilsaogsal.is fyrir frekari upplýsingar 👋

15/11/2023

Óvissuástand ríkir vegna náttúruhamfaranna í Grindavík og stríðanna út í heimi.
Hvernig getum við hlúð að okkur? 🫂🤍

🔹Þegar reynir á okkur er mikilvægt að vera í sambandi við vini og fjölskyldu. Samskipti og tjáning tilfinninga geta hjálpað við að vinna úr streitu og áföllum.

🔹Upplýsingaráreitið á samfélags- og fréttamiðlum getur krafist mikils af okkur og því gott að leyfa sér hvíld frá þeim miðlum.

🔹Þakklætisskrif eru ein leið til að minna sig á hvað maður á margt til að vera þakklátur fyrir. Skrifa niður í dagbók eða á blað einn hlut á dag sem maður er þakklátur fyrir.

🔹Hvíld er nauðsynleg, sérstaklega þegar mikið bjátar á. Þá þurfum við að spara orkuna og auka hvíld. Misjafnt er fyrir fólki í hverju hvíld felst, sinntu því sem nærir þig á líkama og sál. Hvíld og svefn er ekki endilega það sama og að leggja sig á daginn getur haft neikvæð áhrif á nætursvefn. Hvíld getur verið: slökun, léttur göngutúr, sinna áhugamálum, púsla, lesa bók, hlusta á tónlist o.fl.

🔹Talaðu fallega til þín, klappaðu þér á öxlina fyrir að gefa þér rými til að hleypa tilfinningunum út.

12/11/2023

📣 Fyrsti þáttur í seríu tvö í hlaðvarpi Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar er kominn út!

Þáttinn má finna hér 👇 og á Spotify 🎧
https://www.heilsaogsal.is/hladvarp

Viðmælandi þáttarins er Elísabet Ýrr Steinarsdóttir, fjölskyldufræðingur á stofunni okkar. Í þessum þætti fer Elísabet yfir áskoranir í starfi fjölskyldufræðings ásamt því að ræða um parasambönd, hvað einkennir góð parasambönd og hvað gott er að fyrir pör að hafa í huga til að vinna í sambandinu.

Fræðandi fyrir alla 💗

✍️💙
04/11/2023

✍️💙

Fjögurra ára sonur minn hrópaði úr stórum kastala: ,,Mamma sjáðu mig ég er svo duglegur, ég g*t þetta!!"  Ég svaraði:  ,,Já ég sá það, þú klifraðir upp al

24/08/2023

Heilsu og sálfræðiþjónustan er með öflugan hóp fagfólks sem vinnur með heilsuefingu á víðum grundvelli. Bjóðum upp á ADHD greiningar, einstaklingsmeðferðir, hjóna og para ráðgjöf og ýmsar hópmeðferðir.

12/08/2023

Gleðilega hátíð!
Stuðningur skiptir öllu, tökum þátt í að efla hvort annað ❤️🧡🧡💚💙💜

10/08/2023

Langar þig að stunda nám í Bataskólanum í vetur?

Opið er fyrir umsóknir fyrir næstu önn sem hefst 19. september. Hér fyrir neðan má sjá stundaskrá fyrir næstu önn en lesa má nánar um námskeiðin á vefsíðu skólans https://www.bataskoli.is/

Hægt er að sækja um í gegnum vefsíðu skólans hér:
https://www.bataskoli.is/umsoknir

Það er líka alltaf velkomið að senda okkur póst eða skilaboð hér á Facebook síðu skólans ef þú ert með einhverjar spurningar.

Bataskólinn er fyrir einstaklinga sem glíma við (eða hafa glímt við) geðrænar áskoranir og aðstandendur þeirra. Fjölbreytt námskeið eru í boði sem öll snúast um bata og leiðir til bættra lífsgæða. Nám í Bataskólanum er ókeypis. Kennsla fer fram í húsnæði menntavísindasviðs HÍ í Stakkahlíð 1.

Framhald af fyrri pósti um skapofsaköst 🌱Tíminn eftir skapofsakast er afar mikilvægur til tengingar🌱Einnig getur tíminn ...
18/07/2023

Framhald af fyrri pósti um skapofsaköst

🌱Tíminn eftir skapofsakast er afar mikilvægur til tengingar

🌱Einnig getur tíminn eftir skipt máli ef lagfæra þarf misbrest í samskiptum, t.d. ef við sem foreldri misstum stjórn á okkur

🌱Skapofsaköst barna eru eins og tilfinningalegt fárviðri - sem tekur enda. Þau geta gefið rými fyrir dýpri tengsl foreldris og barns

🌱Skapofsaköst reynast oft foreldrum erfið, og stuðandi. Það er mikilvægt að líta inn á við á eigin tilfinningar og muna að sjálfsmildi er nauðsynlegt til þess að geta verið að fullu til staðar fyrir barnið

🌱Mundu að hrósa þér líka, þú ert mjög líklega að gera betur en þú heldur

🌱Tími inn er mikilvægari og margfalt gagnlegri en tími út
ATH efnið er aðeins ætlað til fróðleiks, ef þú þarft einstaklingsmiðaða aðstoð er hægt að hafa samband á elisabet@heilsaogsal.is eða bóka tíma á noona 😊
🔎https://www.heilsaogsal.is/starfsfolk/el%C3%ADsabet-%C3%BDrr-steinarsd%C3%B3ttir

Address

Glerárgata 34
Akureyri

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Elísabet Ýrr - Fjölskyldufræðingur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share