18/09/2016
Hvað er OrkuPunktaJöfnun “OPJ”.
Til að skilja grunnþátt OPJ þarf að hugsa sér manneskjuna sem hringrás þar sem
orkan er í sífeldri endurnýjun, þessi endurnýjun byggist fyrst og fremst á því
umhverfi sem hver og einn er í þ.e. ef manneskja hefur um skeið lifað óábyrgu líf
hvort sem er andlega eða líkamlega verður endurnýjun orkunar í samræmi við
það og öfugt, þegar einhver hefur um all langt skeið t.d.þjáðst af vöðvabólgum
(oftast í hálsi og herðum) er það vegna annars vegar rangra vinnubragða og
streitu eða neikvæðs hugafars hins vegar.
Allir eru byggðir upp af tveimur grunnþáttum, anda og efni, verði andinn fyrir
áfalli verður efnið fyrir áfalli í öllum tilfellum! Verði efnið fyrir áfalli t.d. slysi er
það ekki sjálfgefið að andinn verði fyrir áfallinu að sama skapi, þó fer það alltaf
eftir hverjum og einum, sumir styrkjast við veraldleg mein meðan aðrir standa vart undir þeim.
OPJ byggist á því að virkja orkuna með því að koma af stað eðlilegu flæði á milli orkupunktana.
l