Meðferðir bæði á bekk eða í vatni. Í Reykjavík en fer líka út á land að meðhöndla. Meðferð á bekk
Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð fer fram með þeim hætti að í flestum tilvikum liggur sá er þiggur meðferðina á bekk og er fullklæddur. Meðferðaraðilinn byrjar á að greina hreyfinguna í mænuvökvanum með því að þreifa eftir henni á nokkrum stöðum á líkamanum, finnur hann hvar spenna liggur sem hin
drar hreyfinguna. Einnig leitar hann eftir staðbundinni spennu í bandvef. Meðferðin felst í því að losa um spennuna í bandvefnum og því að liðka til fyrir hreyfingu höfuðbeina og spjaldbeins. Síðan eru þessi bein notuð til að toga léttilega í himnurnar sem festast við þau. Þannig næst að losa um spennu í þessu himnukerfi. Algengt er að þessi meðferð taki um klukkustund í senn en það er mjög misjafnt eftir einstaklingum hve oft þarf að koma til að liðka vel um kerfið. Langflestir finna fyrir verulega bættri líðan á fyrstu 1-3 skiptunum. Hafa mjög margir gert þessa meðferð að reglubundnum þætti í sinni heilsueflingu. Yfirleitt er notaður léttur þrýstingur eða tog sem hefur að markmiði að meta og meðhöndla himnurnar sem umlykja miðtaugakerfið. Þessi meðferð vinnur með líkamanum í að auka eigin getu til að efla starfsemi miðtaugakerfisins, minnkar neikvæðar afleiðingar streitu, eflir almennt heilsufar og eykur viðnám gegn sjúkdómum. Meðferð í vatni
Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð losar um verki, bólgur, spennu og önnur líkamleg vandamál. Í vatni er meðferðin mun kröftugri en þegar unnið er á meðferðarbekk. Það er manninum eðlilegt að líða vel í vatni sem hefur lengi verið viðurkennt sem ákjósanlegt umhverfi til hverskyns heilunar. Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð í vatni er kröftugt meðferðarform og árangursríkt, því hæfni meðferðaraðilans nýtist margfalt.
Í vatninu getur þiggjandi meðferðarinnar hreyfst óhindrað eins og í þrívídd. Það þýðir að líkaminn nær að losa um spennu og vandamál sem oft er ekki auðvelt að komast að þegar unnið er á meðferðarbekk.