Að bæta eigin líðan, efla samskipti við fjölskyldumeðlimi/aðra, vinna úr erfiðri reynslu eða uppræta neikvæð mynstur, allt krefst þetta framvindu sem bætir líf þitt. / Family therapy & hypnotherapy practice based in Iceland Rakel hefur starfað sem forstöðumaður í sjálfstæðri búsetu geðfatlaðra hjá Hafnarfjarðarbæ síðan 2009. Fjölskyldumál spila stóran þátt í þeirri starfsemi og bætti hún því við s
ig fjölskyldufræðum og hefur boðið upp á ráðgjöf og meðferðir undanfarin 3 ár á stofu sinni á Lífsgæðasetri St. Einnig hefur hún unnið fyrir MSS í Reykjasnesbæ með viðtöl og sett upp og kennt námskeið fyrir þeirra hönd. Reynsla Rakel er nokkuð víðtæk en hún snýr alltaf fyrst og fremst að fólki og þeirra vellíðan og hvernig hægt sé að auka lífsgæði með samtali og styrkja tengsl milli fjölskyldumeðlima. Fjölskyldumeðferð hentar einstaklingum, fjölskyldum, hjónum og pörum.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir er klínískur dáleiðari og Havening meðferðaraðili sem getur aðstoðað þau sem vilja draga úr streitu, bæta andlega líðan sína og vinna úr atvikum fortíðar sem valda ama í daglegu lífi. Þórdís Elva hefur starfað að ofbeldisforvörnum í 15 ár og þekkir vel til afleiðinga ofbeldis og áfalla. Þórdís Elva er höfundur verðlaunaðra bóka, fræðslumynda og leikverka sem hafa verið þýdd yfir á 20 tungumál, auk þess sem hún veitir yfirvöldum sérfræðiráðgjöf um kynbundið ofbeldi. Sem fimm barna móðir, þ.ám tvíbura sem lifðu af gríðarlega áhættusama meðgöngu, er Þórdís Elva kunnug daglegu amstri og streitu. Hún trúir því að allt fólk verði fyrir áföllum á lífsleiðinni og að öll eigum við rétt á að ná bata á eigin forsendum. Hún býður einnig upp á fjarviðtöl í gegnum Zoom á íslensku, ensku eða sænsku.