Hjá Heilaheilsu starfa sérfræðingar í mati og meðferð heilahristingseinkenna og sálfræðingar með víðtæka reynslu af því að sinna ráðgjöf, greiningum og meðferð. Heilaheilsa sinnir meðferð á háls- og höfuðáverka miðstöðinni að Urðarhvarfi 14. Miðstöðin er samstarfsverkefni Heilaheilsu, K!M endurhæfingar, Heilsuverndar og NeckCare. Markmið þjónustunnar er að veita þverfaglega og árangurstengda þjónu
stu við bráðum og langvarandi einkennum hálsvanda og heilahristings. Langvarandi einkenni heilahristings geta haft gríðarleg áhrif á líðan og lífsgæði. Því fyrr sem gripið er inn í ferlið með sérhæfðri þjónustu því meiri líkur á fullnægjandi bata. Ef þú hefur fengið heilahristing og einkenni eru enn til staðar eftir 14 daga er mælt með að þú bókir tíma hjá sérfræðingi hjá Heilaheilsu í mati og meðferð heilahristings einkenna. Viðeigandi sjúkraþjálfun er ákveðin með sjúkraþjálfurum hjá K!M endurhæfingu sem sérhæfa sig m.a. í greiningu og meðferð hálsvanda
Hreyfing og áreynsluþjálfun er árangursríkasta meðferðin við langvarandi einkennum heilahristings. Íþróttafræðingar framkvæma mælingar, gefa leiðbeiningar um viðeigandi hreyfingu og stýra áreynsluþjálfun. Íþróttafræðingar sinna þjálfun í tækjasal á móttökunni að Urðarhvarfi 14, en einnig í nærumhverfi skjólstæðinga og/eða í samstarfi við aðra þjálfara eða sjúkraþjálfara. Heilaheilsa býður einnig upp á fræðsla um háls- og höfuðáverka, en rannsóknir sýna að fræðsla um einkenni, orsakir og batahorfur eftir heilahristings sé einn af lykilþáttum í árangursríkri meðferð. Fræðsluna er hægt að kaupa á vefsíðu Heilaheilsu og fer fram í gegnum netið. Nánar: https: //heilaheilsa.is/
Bókaðu tíma: https://heilaheilsa.is/boka/
Simi: 510-6500