Sjúkraþjálfun Kópavogs

Sjúkraþjálfun Kópavogs Sjúkraþjálfun Kópavogs er rótgróin sjúkraþjálfunarstofa sem stofnuð var 1980. Hjá fyrirtækinu starfa 11 sjúkraþjálfarar og 2 móttökuritarar. hæð.

Sjúkraþjálfun Kópavogs er staðsett í hjarta Kópavogsbæjar í Hamraborg 12, 2. Gengið er inn um inngang sem er á milli inn- og útkeyrslu Olís bensínstöðvarinnar. Einnig er inngangur sunnan megin við húsið, frá svæðinu framan við Bæjarskrifstofur Kópavogs. Að sunnanverðu er gott aðgengi fyrir fatlaða.

Áfram Ísland
04/12/2025

Áfram Ísland

Starfsfólk Sjúkraþjálfunar Kópavogs er tilbúið fyrir leikinn í kvöld...enn þú ?...

Bleikur október 2025
23/10/2025

Bleikur október 2025

Alla föstudaga í október er Bleikur dagur í Sjúkraþjálfun Kópavogs. Í gær var bleikasti dagurinn.

Jólagleði i Sjúkraþjálfun Kópavogs
06/12/2024

Jólagleði i Sjúkraþjálfun Kópavogs

Bleiki dagurinn hjá Sjúkraþjálfun Kópavogs
23/10/2024

Bleiki dagurinn hjá Sjúkraþjálfun Kópavogs

06/10/2020

Kæru skjólstæðingar

Nú hefur heilbrigðisráðherra gefið út hertar sóttvarnaraðgerðir frá með 5. okt. sem muna vara í a.m.k. 2 vikur.

Það þýðir að:

- Æfingasalurinn verður ekki opinn nema í fylgd með sjúkraþjálfara.
Við leggjum áfram ríka áherslu á sóttvarnir, að minnka snertifleti og minnum á 1 m. regluna milli skjólstæðinga.

- Við biðjum fólk að sýna gott samstarf, aðgát og þolinmæði við innkomu/brottför og við afgreiðslu.

- Skjólstæðingar eiga að koma með grímu með sér.

- Minnum fólk á að breyta bókun tíma sinna ef þeir finna fyrir einhverjum einkennum eða eiga að vera í sóttkví.

- Viðskiptavinir þurfa ekki að skrá sig inn með kennitölu á Ipad við komu.

- Til að minnka fjölda á biðstofu, er auk stóla í biðstofu stólar fyrir utan nokkur meðferðarrými. Þá er fólk beðið að mæta rétt fyrir bókaðan tíma til að minnka biðtíma.

Bestu kveðjur, Sjúkraþjálfun Kópavogs

03/08/2020

Kæru skjólstæðingar Sjúkraþjálfunar Kópavogs!

Nú hefur heilbrigðisráðherra gefið út hertari reglur vegna Covid-19 sem gilda frá og með 31.7.2020

SKJÓLSTÆÐINGUR SKAL NOTA GRÍMU ÞEGAR KOMIÐ ER Í MEÐFERÐ TIL SJÚKRAÞJÁLFARA
– Skjólstæðingar þurfa að mæta með sína eigin grímu við komu til okkar.

BIÐJUM FÓLK AÐ HAFA Í HUGA AÐ:
– Sýna aðgát og virða 2m. regluna.
– Við leggjum áfram ríka áherslu á sóttvarnir og að fólk sótthreinsi hendur við komu og brottför.
– Vinsamlegast mætið rétt fyrir bókaðan tíma til að minnka biðtíma.

VINSAMLEGAST ATHUGIÐ:
- Tækjasalur er opinn en skjólstæðingar beiðnir um að virða 2m reglu, nota hanska, spritta og þurrka handföng og bekki og nota grímur þar sem við á.

Bestu kveðjur, Sjúkraþjálfun Kópavogs

22/04/2020

Kæru skjólstæðingar

Nú hefur heilbrigðisráðherra gefið út að þann 4. maí n.k. er sjúkraþjálfunarstofum heimilt að starfa með rýmri skilyrðum en verið hefur sl. vikur. Það þýðir að aukin starfsemi verður hjá Sjúkraþjálfun Kópavogs frá og með þeirri dagsetningu en með ákveðnum takmörkunum og tilmælum.
- Við leggjum áfram ríka áherslu á sóttvarnir, að minnka snertifleti og minnum á 2 m. regluna milli skjólstæðinga.
- Viðskiptavinir þurfa ekki að skrá sig inn með kennitölu á Ipad við komu, starfsmenn í afgreiðslu sjá um það.
- Til að minnka fjölda á biðstofu, er auk stóla í biðstofu stólar fyrir utan nokkur meðferðarrými. Þá er fólk beðið að mæta rétt fyrir bókaðan tíma til að minnka biðtíma.
- Æfingasalurinn verður ekki opinn nema í fylgd með sjúkraþjálfara.

Frá og með föstudeginum 24.04. verður móttakan opin alla virka daga frá 08:00 – 16:00 og tekið við símtölum í síma 5641766 og 5545488 til að bóka tíma. Einnig hægt að senda tölvupóst á sjk@sjk.is.

Sjúkraþjálfun Kópavogs sinnir áfram bráðaþjónustu og þeirri endurhæfingu sem ekki getur beðið fram til 4. maí á miðvikudögum frá 10:00 – 13:00 eða eftir samkomulagi.

Frá og með 4 maí verður opnunartíminn 08:00 – 17:15 alla virka daga.

Sjúkraþjálfun Kópavogs 😀

26/03/2020

Ágætu skjólstæðingar Sjúkraþjálfunar Kópavogs.

Vegna Covid 19 veirunnar verður Sjúkraþjálfun Kópavogs opin sem hér segir:

Föstudaginn 27.03.20 kl. 8.00-15.00
Mánudaginn 30.03.20 kl. 8.00- 13.00
Þriðjudaginn 31.03.20 LOKAÐ

Frá og með miðvikudeginum 01.04.20 verður Sjúkraþjálfun Kópavogs aðeins opin á miðvikudögum frá kl. 10.00 til 13.00. Þá er hægt að panta bráðameðferð og einnig geta skjólstæðingar Sjúkraþjálfunar Kópavogs pantað viðtal við sjúkraþjálfara í síma 5545488 og 5641766.

Við munum meta stöðuna með tilliti til útbreiðslu Covid 19 veirunnar og sóttvarna.

Bestu kveðjur
Sjúkraþjálfun Kópavogs

09/03/2020

Kæru viðskiptavinir!

Í ljósi þeirra aðstæðna sem upp eru komnar í tengslum við COVID-19 veiruna þá viljum við koma eftirfarandi á framfæri:

Ef þú ert með einkenni sem líkjast flensu, s.s. hita, beinverki, mikinn hósta, þá ertu vinsamlegast beðin/n um að afboða tímana þína á meðan einkennin eru til staðar.

Ef þú hefur verið á hættusvæðum eða í nánum samskiptum við einhvern sem þar hefur verið þá ertu vinsamlegast beðin/n um að bíða með meðferð a.m.k. í 2 vikur.

Við komu inn á stofuna til okkar biðjum við ykkur um að sinna sóttvörnum skv. fyrirmælum Embættis Landlæknis en þær felast fyrst og fremst í handþvotti, handsprittun og notkun sótthreinsiúða í tækjasal á tæki og tól sem þú notar.

Að fara eftir tilmælum og sýna rétt viðbrögð skiptir höfuðmáli.
Stöndum saman og verjum okkur og aðra

Kveðja, Sjúkraþjálfun Kópavogs

Sjúkraþjálfarar hætta að vinna samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar ÍslandsOrðsending til skjólstæðinga sjúkraþjálfara...
10/01/2020

Sjúkraþjálfarar hætta að vinna samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands

Orðsending til skjólstæðinga sjúkraþjálfara

Sjúkraþjálfarar hafa unnið eftir rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) sem sem rann út þann 31. janúar 2019 en framlengdur hefur verið einhliða af hálfu SÍ.
SÍ hafa auglýst útboð á sjúkraþjálfun á höfuðborgarsvæðinu án nokkurs samráðs við sjúkraþjálfara sem veitendur þjónustunnar. Útboðið sem SÍ hefur boðað og skilmálar þess telja sjúkraþjálfarar skaðlegt fyrir sjúkraþjálfun í landinu og ógna fagþróun sjúkraþjálfunar í landinu til lengri tíma litið. Einnig telja þeir það vinna gegn hagsmunum notenda sjúkraþjálfunar.

Við þessar aðstæður sjá sjúkraþjálfarar sér ekki annað fært en að stíga til hliðar og hætta að starfa eftir útrunnum rammasamningi við Sjúkratryggingar Íslands um óákveðinn tíma frá og með 13. janúar næstkomandi.

Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð er varðar lögbundnar endurgreiðslur til sjúkratryggðra skv. gjaldskrá SÍ. Sjúkraþjálfarar munu hafa milligöngu og innheimta greiðsluhluta SÍ beint skjólstæðingum til hagræðis.
Þjónustan gagnvart skjólstæðingum mun ekkert breytast, þetta er ekki verkfall. Öll þjónusta sjúkraþjálfara verður á sínum stað, allir tímar munu standast og hópar munu halda áfram í óbreyttu formi.
Það eina sem breytist gagnvart skjólstæðingum sjúkraþjálfara er að greiða þarf aukalega mismun á gjaldskrá sjúkraþjálfunarstofunnar og gjaldskrá SÍ

Með vinsemd og virðingu
Félag sjúkraþjálfara
10. janúar 2020

Sjá einnig á Heimasíðunni okkar

Heim Sjúkraþjálfun Kópavogs er staðsett í hjarta Kópavogsbæjar. Gengið er inn um inngang milli inn- og útkeyrslu á bensínstöð Olís í Hamraborg. Jafnframt er hægt að komast til okkar sunnan megin við húsið, frá svæðinu framan við Bæjarskrifstofur Kópavogs. Þar er gott aðg...

Skræpótt starfsmannagleði í Sjúkraþjálfun Kópavogs
22/03/2019

Skræpótt starfsmannagleði í Sjúkraþjálfun Kópavogs

Bleikur dagur í Sjúkraþjálfun Kópavogs 🎀
12/10/2018

Bleikur dagur í Sjúkraþjálfun Kópavogs 🎀

Address

Hamraborg 12, 2. Hæð
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 06:00 - 22:00
Tuesday 06:00 - 22:00
Wednesday 06:00 - 22:00
Thursday 06:00 - 22:00
Friday 06:00 - 20:00
Saturday 08:00 - 12:00
Sunday 09:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sjúkraþjálfun Kópavogs posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Sjúkraþjálfun Kópavogs:

Share

Share on Facebook Share on Twitter Share on LinkedIn
Share on Pinterest Share on Reddit Share via Email
Share on WhatsApp Share on Instagram Share on Telegram

Category