30/11/2021
Kæru vinir.
Við hjá Lýðheilsusetrinu erum komin á Instagram. Endilega ýtið á "Follow" og fylgist með því sem er framundan á komandi ári.
Við erum núna að klára netnámskeiðið
"Seigla sigrar vandann" og er það síðasta námskeiðið á árinu.
Ráðgjafaviðtöl verða áfram til
22. des en þá förum við í jólafrí til 5 jan.
Á nýju ári munum við halda áfram að bjóða upp á mörg spennandi námskeið og fyrirlestra og auðvitað verður vinsæla PEPP UPP námskeiðið á sínum stað.
Megið þið öll njóta ykkar á aðventunni.