14/04/2026
Kæru Yoga Lífs vinir
Það er enn hægt að bætast í hópinn á þetta frábæra námskeið hjá okkur sem hófst í morgun 🌸 yndisleg leið að hefja daginn💞🧘♀️
🌿 NÝTT HJÁ YOGA LÍF – MORGUNYOGA & STYRKUR 🌿
FRÍR PRUFUTÍMI 9.APRÍL
Langar þig að fara inn í sumarið sterk, orkumikil og í frábæru jafnvægi?

Við hjá Yogalíf kynnum glænýtt morgunnámskeið sem stendur yfir í 4 vikur á þriðju-og fimmtudögum kl. 07:30 – 08:30. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 14.apríl en við bjóðum upp á frían prufutíma 9.apríl.
Á námskeiðinu blöndum við saman yoga og styrk á skemmtilegan og áhrifaríkan hátt.
Við sameinum styrktaræfingar sem tóna líkamann og byggja upp sterkan kjarna við mjúkt orkugefandi yoga sem eykur jafnvægi, liðleika og kemur þér feskri út í daginn. Þú verður sterkari, liðugri og orkumeiri.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum þar sem æfingarnar eru aðlagaðar að hverjum og einum.
Gefðu sjálfri þér bestu sumargjöfina og byrjaðu daginn á besta mögulega hátt.
✨ Takmarkað pláss – skráðu þig núna og tryggðu þér dýnu!
Kennari námskeiðsins er Jóhanna Benediktsdóttir yogakennari.
Skráning á yogalif@yogalif.is