Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - HSS

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - HSS Frá árinu 1954 hefur Heilbrigðisstofnun Suðurnesja veitt íbúum Suðurnesja heilbrigðisþjónu

Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er rekin heilsugæsluþjónusta, sjúkradeild, hjúkrunardeild, ljósmæðravakt og Slysa- og bráðamóttaka.

Á heimasíðu HSS eru að finna upplýsingar um einkenni og meðferð við inflúensu.Þar kemur einnig fram munur á inflúensu og...
08/04/2026

Á heimasíðu HSS eru að finna upplýsingar um einkenni og meðferð við inflúensu.
Þar kemur einnig fram munur á inflúensu og kvefipest.
Endilega kynnið ykkur það á hss.is

vinsamlega deilið

Grímuskylda á Heilbrigðisstofnun SuðurnesjaNú er mikið um öndunarfærasýkingar í samfélaginu. Inflúensan er aftur í gangi...
08/04/2026

Grímuskylda á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Nú er mikið um öndunarfærasýkingar í samfélaginu. Inflúensan er aftur í gangi. Endilega kynnið ykkur einkenni og meðferð við Inflúensu á heimasíðu HSS hss.is

Ef þú ert með einkenni inflúensu og telur þig þurfa læknisaðstoð, vinsamlega hringdu á undan þér, ekki mæta á staðinn. Annars er best að halda sig heima.

HSS biðlar til fólks sem kemur á stofnunina að vera með andlitsmaska og passa vel upp á almennar sóttvarnir ef þið eruð með einkenni frá öndunarfærum.

Ekki er æskilegt að fara í heimsóknir til inniliggjandi skjólstæðinga ef þið eruð með einkenni frá öndunarfærum.

Hægt er að fá andlitsmaska í afgreiðslu HSS þegar komið er inn á stofnunina.

Vinsamlega deilið

Ársfundur HSS - uppbyggjandi og faglegt samtal við samfélagið.Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) var haldin...
01/04/2026

Ársfundur HSS - uppbyggjandi og faglegt samtal við samfélagið.

Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) var haldinn föstudaginn 27. mars í Samkomuhúsinu í Sandgerði.

Ársfundurinn er árlegt tækifæri íbúa, samstarfsaðila og starfsfólks til að líta til baka, meta árangur og horfa fram á veginn. Fundurinn var vel sóttur.

Heilbrigðisráðherra ávarpaði fundinn og kjarnaði vel þau verkefni sem liggja fyrir og þann árangur sem hefur náðst á HSS á undanförnu ári. Ráðherra lagði sérstaka áherslu á þau verkefni sem fram undan eru í þjónustu við aldraða, aukna húsnæðisþörf og uppbyggingu húsnæðis HSS.

Forstjóri, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, gerði grein fyrir starfsemi ársins 2025, árangri og áskorunum.

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrar, Kjartan Kjartansson, kynnti drög að ársreikningi og rekstrarniðurstöðu ársins.

Skólaheilsugæsla og rannsókn HSS voru heiðruð á fundinum fyrir umbætur á árinu sem aukið hafa þjónustu við samfélagið á Suðurnesjum.

Stofnunin þakkar það traust sem íbúar Suðurnesja hafa sýnt og komið hefur fram í niðurstöðum kannana. Með sameiginlegu átaki, mennsku og myndugleik að leiðarljósi munum við halda áfram að efla þjónustuna til hagsbóta fyrir skjólstæðinga, aðstandendur og samfélagið í heild.

Opnunartími yfir páska 🐣Læknavakt Heilsugæslu HSS er opin frá kl. 10:00–15:00 yfir páskahátíðina og laugardaginn 4. aprí...
01/04/2026

Opnunartími yfir páska 🐣

Læknavakt Heilsugæslu HSS er opin frá kl. 10:00–15:00 yfir páskahátíðina og laugardaginn 4. apríl.
Tímapantanir eru samdægurs frá kl. 10:00.

Við minnum á að slysa- og bráðamóttakan er opin allan sólarhringinn fyrir slys og bráð veikindi.

StreptókokkarHálsbólga er oftast af völdum veira. Aðeins 1 af hverjum 10 fullorðnum og 3 af hverjum 10 börnum eru með st...
01/04/2026

Streptókokkar

Hálsbólga er oftast af völdum veira. Aðeins 1 af hverjum 10 fullorðnum og 3 af hverjum 10 börnum eru með streptókokkahálsbólgu.

Streptókokkahálsbólga er bakteríusýking í koki sem orsakast af Streptococcus pyogenes. Hún er algengasta bakteríusýkingin sem veldur hálsbólgu, sérstaklega hjá börnum og unglingum.

👉 Sjá nánar á heimasíðu HSS: hss.is

Appelsínugul veðurviðvörunÞar sem búist er við slæmu veðri og færð í fyrramálið gæti þjónusta heilsugæslu HSS og heimahj...
25/03/2026

Appelsínugul veðurviðvörun

Þar sem búist er við slæmu veðri og færð í fyrramálið gæti þjónusta heilsugæslu HSS og heimahjúkrunar raskast fyrir hádegi fimmtudaginn 26. mars.

Þeir sem eiga bókaðan tíma hjá heilsugæslulækni í fyrramálið mega eiga von á símtali frá lækninum.

Bráðamóttakan er opin allan sólarhringinn fyrir slys og bráðatilfelli.

Vinsamlega deilið
hss.is

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur opnað heilsueflandi móttöku barna. Móttakan styður við börn og fjölskyldur þeirra ba...
13/03/2026

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur opnað heilsueflandi móttöku barna.

Móttakan styður við börn og fjölskyldur þeirra barna sem eru að bregða út af vaxtarkúrfu.

Í móttökunni starfar þverfaglegt teymi sem samanstendur af hjúkrunarfræðingi, næringarfræðingi og lækni ásamt stuðningi frá sálfræðingum og sjúkraþjálfara.

Unnið er náið með skólaheilsugæslu.

Verklag móttökunnar er samkvæmt alþjóðaleiðbeiningum varðandi meðferð við hraðri þyngdaraukningu barna og góð tengsl eru við Heilsuskólann á Landspítala og aðrar móttökur á landinu sem sinna slíkri meðferð.

Sjá nánar á hss.is

Þann 27. febrúar var sá ánægjulegi viðburður að Landspítali og HSS undirrituðu formlegt samstarf um sérnám í bráðalæknin...
05/03/2026

Þann 27. febrúar var sá ánægjulegi viðburður að Landspítali og HSS undirrituðu formlegt samstarf um sérnám í bráðalækningum. Báðar stofnanir skuldbinda sig til samhæfingar varðandi gæði náms og framkvæmd þess.

Það er gríðarlega mikilvægt fyrir þjónustu á bráðamóttöku á HSS að vera viðurkennd bráðamóttaka fyrir sérnám í bráðalækningum. Þessi áfangi er mikilvægt skref í vegferð HSS að verða viðurkennt kennslusjúkrahús en mikilvægt er að lyflækningar á HSS verði einnig viðurkenndar, en heilsugæsla HSS hefur um árabil verið viðurkenndur kennslustaður fyrir sérnám í heimilislækningum.

Sérnám í greinum innan læknisfræðinnar fer samkvæmt gildandi reglugerð nr. 856/2023 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Sérnám fer fram samkvæmt marklýsingu hverrar einstakrar greinar sem samþykktar hafa verið af mats- og hæfisnefnd, sem starfar á forræði heilbrigðisráðuneytisins.

Sérnámslæknar er stór og jafnframt vaxandi hluti af starfandi læknum landsins. Á undanförnum árum hefur mikil þróun átt sér stað í uppbyggingu sérnáms á Íslandi í samræmi við viðurkennda alþjóðlega staðla.

Til hamingju með þennan áfanga.

hss.is

HPV bólusetning er í boði í Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir drengi í árgangi 2008-2009 dagana 12.-15. janúar.HPV (Human...
14/01/2026

HPV bólusetning er í boði í Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir drengi í árgangi 2008-2009 dagana 12.-15. janúar.

HPV (Human Papilloma Veira) getur valdið krabbameini í hálsi og víðar ásamt vörtum á kynfærum, sjá nánar frétt á heimasíður hss.is

Við hvetjum alla drengi í þessum árgöngum að þiggja bólusetningu. Ef þeir eru ekki nemendur í FS, eða komast ekki á þessum dagsetningum þá er hægt að bóka tíma á heilsugæslu sem þeir eru skráðir á og fá bólusetningu þar.

Með bestu kveðju
Heilsugæsla HSS

Vinsamlega deilið :)

23/12/2025
🎄Opnunartími læknavaktar HSS yfir hátíðarnar🎆Læknavakt HSS er opin alla hátíðisdaga kl. 10:00 til 15:00.📞Tímabókanir sam...
22/12/2025

🎄Opnunartími læknavaktar HSS yfir hátíðarnar🎆

Læknavakt HSS er opin alla hátíðisdaga kl. 10:00 til 15:00.

📞Tímabókanir samdægurs í síma 422-0500.

🚑 Bráðamóttaka HSS er opin allan sólarhringinn vegna slysa og bráðra veikinda.

👉Sjá nánar á hss.is

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til fyrirmyndar
26/11/2025

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til fyrirmyndar

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er orðin fremst meðal jafningja í árlegri könnun á þjónustu ríkisstofnana. Til hamingju með það, íbúar á Suðurnesjum og starfsfólk og stjórnendur HSS.

,,Þegar niðurstöður könnunarinnar eru bornar saman við árangur annarra heilbrigðisstofnana má sjá að HSS er deilir annað hvort hæstu eða næst hæstu einkunn með öðrum heilbrigðisstofnunum. HSS er að fá á bilinu 4,2 til 4,6 stig af fimm mögulegum í öllum þáttum könnunarinnar".

Nánar um niðurstöðurnar, sjá tengil í fyrstu athugasemd.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - HSS

Address

Skólavegi 6
Keflavík
230

Telephone

+3544220500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - HSS posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - HSS:

Share

Category

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Á HSS er rekin heilsugæsluþjónusta og sjúkradeild auk hjúkrunardeildar fyrir aldraða í Víðihlið í Grindavík.