Lífið - Heimafæðingar

Lífið - Heimafæðingar We are a team of three midwifes who attend homebirths in Iceland. If you are thinking about having y Við erum þrjár ljósmæður sem sinnum heimafæðingum.

Við sinnum fjölskyldum frá 34 viku meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu. Ef þú stefnir á heimafæðingu getur þú haft samband við okkur fyrir frekari upplýsingar. heimafaedingarlifid@gmail.com
www.lifidheimafaedingar.com

07.12.2025 - Upplifun föður á heimafæðinguAð vera pabbi í fæðingu snýst, að mínu mati, um eitt: að vera til staðar fyrir...
13/01/2026

07.12.2025 - Upplifun föður á heimafæðingu

Að vera pabbi í fæðingu snýst, að mínu mati, um eitt: að vera til staðar fyrir makann sinn. Mitt hlutverk var að vera stuðningur fyrir Bergþóru - hlaupa eftir því sem hún þurfti, nudda, halda utan um hana, leyfa henni að kreista mig og vera sú stoð sem hún g*t treyst á í gegnum allt ferlið.

Eins notaleg og aðstaðan á fæðingardeild HSS er, þá jafnast ekkert á við það að vera heima. Öryggið, róin og nándin sem fylgir því að vera í eigin umhverfi er ólýsanleg.
Ljósmæðurnar hjá Lífið heimafæðingar eru algjörlega einstakar – þær vinna af fagmennsku og hlýju og hafa mjög góða nærveru. Þær gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að móðir, faðir og aðrir stuðningsaðilar upplifi þessa stund á sem bestan hátt, á þessum krefjandi, viðkvæmu og um leið mögnuðu augnablikum.

Ég hafði stóru hlutverki að gegna í fæðingunni og að fá að vera heima, í umhverfi sem ég þekki og líður vel í, gerði mig mun öruggari. Ég var rólegri,
meira til staðar og ég upplifði mig vera virkilega hluti af fæðingunni - en ekki áhorfandi.

Eftir að hafa upplifað fæðingu heima og á fæðingardeild HSS með tólf mánaða millibili get ég með fullri sannfæringu sagt að ég mæli eindregið með því að feður skoði möguleikann á heimafæðingu og séu óhræddir við tilhugsunina. Ljósmæðurnar eru til staðar í öllu ferlinu og eru þvílíkur stuðningur fyrir alla sem við koma þessum mögnuðu tímamótum. Þegar barnið er síðan fætt, á meðan þið njótið saman upp í rúmi, ganga þær frá öllu því sem við kom fæðingunni. Þær skilja heimilið eftir snyrtilegt og engin merki eru um að fæðing hafi verið að eiga sér stað.

Þið eruð bæði í umhverfi sem ykkur líður best í, og það skiptir öllu máli.

Árni G. Fossádal Rúnarsson

Lífið heimafæðingar óskar fjölskyldunni alls hins besta í framtíðinni og sendi henni endalaust af hamingjuóskum ❤️

Í gærmorgun fæddist fyrsta barn ársins í heimahúsi hérlendis. Stúlkan, sem er þriðja barn foreldra sinna, kom með hraði ...
09/01/2025

Í gærmorgun fæddist fyrsta barn ársins í heimahúsi hérlendis.
Stúlkan, sem er þriðja barn foreldra sinna, kom með hraði kl 8:49 þann 8.janúar
Við óskum fjölskyldunni innilega til hamingju með þessa fallegu viðbót ❤️

Þann 23/12 fæddist þessi fullkomna stúlka í fallegri heimafæðingu. Við hjá Lífinu óskum fjölskyldunni til hamingju með þ...
31/12/2024

Þann 23/12 fæddist þessi fullkomna stúlka í fallegri heimafæðingu. Við hjá Lífinu óskum fjölskyldunni til hamingju með þessa fallegu viðbót. 🥰
Hér er einnig frásögn móðurinnar ❤️

23.desember - 40v6d
Ég byrjaði að fá óreglulega verki 18.desember sem duttu svo niður um kvöldið og gekk þetta þannig næstu daga, var alltaf vongóð um að nú færi hún að mæta en nei alltaf á milli 22 og 23 á kvöldin datt allt niður og ekkert gerðist. Þann 22.des var ég með smá seyðing um kvöldið og taldi ég það bara vera þreyta eftir daginn þar sem ég hafði farið í Reykjavík að vesenast þennan dag. Ég og maðurinn minn förum að sofa um 00:30 en svo kl 01:30 sirka vakna ég með mjög slæma verki, ákveð að fara fram og leyfa manninum að sofa svo ég er ein frammi að taka tíman í sirka 30 mín og voru verkirnir alltaf að versna og versna og styttist mjög hratt á milli þeirra. Þannig að ég vek karlinn og hringi í Hullu kl 2. þegar Hulla kemur og metur stöðuna þá hringir hún um leið í Rut og kemur Rut stuttu seinna til okkar því þegar Hulla skoðar mig svo kl 2:30 er ég komin með 9-10 í útvíkkun svo það var farið á fullt í það að blása upp og fylla laugina. Ég kemst svo loksins ofan í laugina kl 3 og fannst mér það himnasending að komast í vatnið, kl 03:03 þá fer legvatnið og rembingurinn byrjar nánast um leið og er litla daman okkar mætt í heimin kl 03:28 og vóg 4220gr og 53cm🥰 Stóru systkinin (8ára og 4 ára) voru vakin rétt áður en ég fer ofan í vatnið og fengu að vera frammi með okkur sem þeim fannst alveg magnað en á sama tíma svolítið skrítið en stóðu þau sig ótrúlega vel❤️
Nú hef ég upplifað tvær heimafæðingar og er þetta það besta sem ég veit, eitt það magnaðasta sem ég veit er að taka á móti barninu sínu sjálfur heima í sínu umhverfi og er ég endalaust þakklát fyrir að hafa Hullu og Rut hérna heima hjá okkur og eru þær algjör gull❤️

Þann 11.ágúst fæddist þessi dásamlegi drengur í ljúfri heimafæðingu. Auk ljósmæðra voru systkyni, amma, langamma og vink...
22/08/2024

Þann 11.ágúst fæddist þessi dásamlegi drengur í ljúfri heimafæðingu. Auk ljósmæðra voru systkyni, amma, langamma og vinkonur, til að bjóða snáðan velkominn í heiminn ❤️
Við óskum þessar frábæru fjölskyldu innilegrar hamingju ❤️❤️❤️

Yndislegur drengur kom í heiminn föstudaginn 5 apríl í faðm fjölskyldu sinnar 🥰🥰 eldri systirin fæddist líka heima fyrir...
12/04/2024

Yndislegur drengur kom í heiminn föstudaginn 5 apríl í faðm fjölskyldu sinnar 🥰🥰 eldri systirin fæddist líka heima fyrir tæpum 3 árum með okkur ❤️ yndislegt að fylgja fjölskyldum aftur.

❤️
08/04/2024

❤️

Lífsins Tré býður upp á sónarskoðun fyrir verðandi mæður. Hægt er að velja á milli kynjasónar/tvívíddarsónar frá viku 16 og þrívíddarsónar frá viku 26 til 32 á meðgöngu. Skoðunin fer fram í hlýlegu og notalegu umhverfi og eftir hana eru myndir og myndbönd send rafrænt.

Þann 6/12 2023 fæddist þessi fallegi drengur ❤️ við hjá Lífinu óskum fjölskyldunni til hamingju og látum hér fylgja mynd...
25/12/2023

Þann 6/12 2023 fæddist þessi fallegi drengur ❤️ við hjá Lífinu óskum fjölskyldunni til hamingju og látum hér fylgja myndir og frásögn móður (með hennar leyfi)

5.desember 2023 40v+4d
Hulla kom heim og hreyfði við belgnum um kl 17. Við fjölskyldan förum svo heim til foreldra minna í mat og á meðan ég var að elda um 18:30 þá byrja ég að finna fyrir óþægilegum verkjum en þar sem ég byrjaði líka að finna fyrir verkjum viku áður og allt datt niður þá að þá fór ég í afneitun og sagði engum frá því að verkirnir væru byrjaðir, um 19:10 sirka þá tekur mamma mín eftir því að ég væri eitthvað öðruvísi og spyr mig hvort að það séu byrjaðir einhverjir verkir og ég játa það. Ákveðið var þá að ég og Óli færum heim og myndum fara í nálarstungurnar sem ég átti pantað í kl 20:30 og að krakkarnir yrðu hjá foreldrum mínum yfir nóttina svona ef ske kynni að þetta væri allt að fara af stað fyrir alvöru. Eftir nálarstungurnar förum við bara heim og Óli vill að ég fari að taka tíman á milli verkja því honum leyst ekkert á þetta, þá voru sirka 3-5mín á milli. Um kl 23 vildi Óli að ég myndi hringja í Hullu og ég var ekki alveg sammála því vegna þess að jú ég var í afneitun og sagði við hann að þetta væri pottþétt að fara að detta niður en ég lét eftir og hringdi kl 23:14. Í samráði við Hullu var ákveðið að bíða í klukkutíma og heyra í henni aftur. Hulla hringir svo kl 00:00 og eftir smá spjall þá ákvað hún að koma og kíkja á okkur. Hulla kemur 00:20 og eftir skoðun þá var útvíkkun orðin 4cm, þá voru 3-4mín á milli og verkirnir voru að standa yfir í sirka 60sek. Þegar líður á nóttina að þá fóru verkirnir versnandi og ég áttaði mig á því að þessir verkir væru ekkert að fara að detta niður og að drengurinn væri á leiðinni svo ég loksins leyfði Óla að hringja í vinnuna og láta vita að hann væri ekki að fara að mæta kl 5:30.
Kl 03 var útvíkkun orðin 6cm og verkirnir ennþá verri. Það hjálpaði svo að hafa Óla og fékk ég svo mikinn stuðning frá honum og var mjög gott þegar hann kreysti mjaðmirnar og þrýsti á bakið þegar hríðarnar voru. Kl 4:40 þá fer vatnið og verkirnir urðu ennþá verri og rembingsþörfin kom kl 4:50 og í kjölfarið af því fer ég ofan í vatnið. 5 rembingum seinna tók ég sjálf á móti fullkomna drengnum okkar. 6.desember 2023 kl 05:12. Litli stóri okkar vóg 4490g, 55cm og 18 merkur.
Þetta var svo mögnuð upplifun að hafa gert þetta heima í mínu umhverfi með fólkið mitt hjá mér og yndislegu ljósurnar í teyminu hjá Lífið – heimafæðingar. Hápunkturinn á allri þessari upplifun var þegar ég greip drenginn minn sjálf og tók hann upp úr vatninu. Hef aldrei á ævinni verið eins stolt af sjálfri mér fyrir að hafa getað gert þetta og er ég viss um að ég hefði ekki þorað þessu nema fyrir stuðninginn frá elsku Hullu, Rut og Rebekku.

Yndisleg stúlka fæddist hratt og örugglega i fang foreldra sinna 11 janúar ❤️ óskum fallegu fjölskyldunni innilega til h...
13/01/2023

Yndisleg stúlka fæddist hratt og örugglega i fang foreldra sinna 11 janúar ❤️ óskum fallegu fjölskyldunni innilega til hamingju

Þann 5.janúar sl vorum við kallaðar út í fyrstu heimafæðinguna hjá Lífinu á þessu ný byrjaða ári. Móðirin tók sjálf á mó...
08/01/2023

Þann 5.janúar sl vorum við kallaðar út í fyrstu heimafæðinguna hjá Lífinu á þessu ný byrjaða ári. Móðirin tók sjálf á móti þessum yndislegia pjakki ❤️Honum lá svo mikið á að mæta í eigið afmæli, að eldri systkyni rétt náðu heim úr skólanum til að fylgjast með þessu fyrsta ferðalagi hans ❤️ við hjá Lífinu óskum fjölskyldu hans til hamingju með snáðann ❤️

Yndisleg stúlka fæddist í faðm foreldra sinna þann 20 október kl 13:47 ❤️❤️ óskum þeim til hamingju með prinsessuna sína
22/10/2022

Yndisleg stúlka fæddist í faðm foreldra sinna þann 20 október kl 13:47 ❤️❤️ óskum þeim til hamingju með prinsessuna sína

Address

Njarðvík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lífið - Heimafæðingar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Lífið - Heimafæðingar:

Share

Share on Facebook Share on Twitter Share on LinkedIn
Share on Pinterest Share on Reddit Share via Email
Share on WhatsApp Share on Instagram Share on Telegram