Jóhanna Magnúsdóttir - Heilun og ráðgjöf

Jóhanna Magnúsdóttir - Heilun og ráðgjöf Býð upp á einstaklings-og pararáðgjöf. Hugleiðslutíma. Heilun. Fyrirlestra og námskeið.

17/03/2024

"Þú færð meira út úr því að tala við steinvegg en að reyna að ræða við narsissista." .. Sumt fólk er bara, því miður, ekki hægt að tala við vegna þess það GETUR EKKI sett sig í þín spor. Það hefur ekki þennan eiginleika sem kallaður er empathy eða samhygð.
--
Verkfæri narsissista er gaslýsing og hún virkar svona:

Þegar þú reynir að ræða við narsann (stytting á narissisti) snýr hann ÖLLU við.
Ef þú gagnrýnir þá, spyrð þá út í það sem þeir sögðu (confront them), reynir að leysa vandamál með þeim, eru þeir fljótir að snúa því upp á þig og áður en þú veist af ert ÞÚ vandamálið. Og það er nú þannig hjá narsanum að hvað sem fer illa er ÞÉR að kenna og meira að segja þegar þeir beita ofbeldi, þá er það eitthvað sem ÞÚ gerðir. Það versta er að oft er sá sem verður fyrir gaslýsingunni farinn að trúa narsanum, því eftir langa samveru með narsa er örugglega búið að höggva verulega í sjálfstraustið.

Þessar setningar eru rauð flögg að þú sért í samskiptum við narsissista.

"Ég sagði þetta aldrei"
"Ég man ekki eftir að hafa sagt þetta"
"Ég er ekki reiður"
"Hvers vegna ertu svona viðkvæm?"
"Þetta er ekki svona stórt mál"
...

Vil taka það fram að við erum ÖLL með narsissistísk einkenni - erum á narsissísku "rófi" - ef svo má að orði komast. En svo eru sumir sem tékka í öll boxin og það er hreinlega hættulegt fólk. Narsissismi er að mínu mati, einhvers konar heilaskaði sem því miður verður til þegar börn fá afbrigðilegt uppeldi; vanrækt andlega eða "ofrækt" - þetta eru eins og blóm sem fá ekki vatn eða eru ofvökvuð. Þess vegna má alveg vorkenna narsanum, en alveg eins og við myndum ekki leyfa manneskju í hjólastól keyra yfir okkur - megum við heldur ekki "leyfa" narsanum að valta yfir okkur vegna þess að við sjálf höfum skilning á hvers vegna hann er eins og hann er. :-(

Ég væri ekki að skrifa um þetta nema vegna þess að þetta eru aðstæður sem ég hef ítrekað upplifað. Á seinni árum helst í yfirmönnum, enda hef ég kynnt mér það að forstjórar/framkvæmdastjórar og aðrir leiðtogar eru oft með mikil narsissistísk einkenni. Í einni grein er talað um "clergy" eða presta. Það er þessi þörf á viðurkenningu, aðdáun o.s.frv. sem er sammannleg - en gengur í öfgar hjá narsanum.

Fólk sem hefur veikst illilega af myglu er óvenju næmt þegar það kemur inn í húsnæði þar sem er vottur af myglu. Það er þess vegna, að í dag er ég fljót að koma mér úr aðstæðum - eða hreinlega veikjast þegar ég kem í návígi við fólk sem sýnir narsissíska hegðun og þekki þessi rauðu flögg mjög vel.

Ég reyni alltaf að finna tilgang með því sem kemur fyrir mig í lífinu, - og ég tel að það sé rétt að útskýra narsissismann því hann er eitraður (eins og myglan) og það hlýtur að vera rétt að vara við eitri. Tek fram að sumir virðast þola mygluna betur en aðrir - og það er gott mál, en það er ekki hægt að ásaka þau sem eru næm fyrir henni fyrir þessa næmni.

Þetta er afar sorglegt í mannlegum samskiptum og því miður ber fólk þess sjaldan fullar bætur - að hafa lent í þessum samskiptum. Tala nú ekki um að hafa alist upp sem börn við þessar aðstæður.

30/03/2023

Ég hef ákveðið að opna aftur heilun og ráðgjöf - en bara heima í stofu á Fálkó. Það kallar á mig að hjálpa fólki á þennan máta :-)

Það sem virkar best er blanda af heilun og ráðgjöf, þá byrjar viðkomandi á "bekknum" - og svo setjumst við niður eftir það og ræðum saman um það sem hefur komið upp á meðan ég hef unnið með viðkomandi. - Þarna nota ég auðvitað blöndu af því sem ég hef lært í praktík auk meðfæddrar næmni, sem mér er gefin.

03/10/2022

Minni á mig - er með þessa fínu aðstöðu á Heilunarloftinu. Þú færð 100% athygli, bæði mína og þína eigin. - Það sem þú veitir athygli vex og dafnar. -
--
Ef þú vilt vaxa og dafna - þá vertu velkomin/n að panta prufutíma í Access Consciousness heilun.

Prufutími er 40 mínútur og kostar 6000.- krónur. Þú getur í framhaldinu ákveðið þig hvort þú pantar annan tíma eða að þú hefur fengið næga athygli í bili.

Það er farið að "togna" aðeins úr viðtalstímunum mínum /heilunartímunum - svo ég ætla að fara að bjóða  mismunandi verð ...
29/09/2022

Það er farið að "togna" aðeins úr viðtalstímunum mínum /heilunartímunum - svo ég ætla að fara að bjóða mismunandi verð eftir tíma.

Hægt er að koma í styttri tíma - 40 mín - og viðtal 20 mín á eftir = 60 mín. - verð 8000.- krónur

Heilun 50-60 mín og 30 mín viðtal á eftir - alls 90 mín 10.000.- kr.

Heilun 60 mín og viðtal 60 mín á eftir eða 120 mín = 16.000.- krónur

(Tíminn verður nú oftast aðeins lengri en gefið er upp :-))

---
Er á Fiskislóð 24, 2 hæð = Heilunarloftið

Pantið hjá mér í skilaboðum - eða johanna.magnusdottir@gmail.com

27/09/2022

Elsku vinir - væri þakklát fyrir "testimonials" eða endurgjöf sem ég má birta til að auglýsa þjónustuna mína. - Ég veit að ég er góður ráðgjafi og margir hafa fengið hjálp (sem er nú markmiðið) en ég er alls ekki sú flinkasta í markaðssetningu. - Þarf svolítið að bretta upp ermar í því og datt í hug hvort að einhver væri til í að birta opinberlega - eða nafnlaust - smá frásögu á hvernig þeim leið að koma í ráðgjöf og/eða heilun - hvað þið eruð að upplifa o.fl. -
Ég fengi svo að nota það til að kynna mig.

Yrði ævinlega þakklát

Knús og kram :-) (Má senda mér í einkaskilaboðum)

27/09/2022

Bréne Brown - félagsráðgjafi og sögukona (storyteller) m.meiru, segir að við séum "wired for love and belonging" - eða víruð fyrir elsku (að vera elskuð og elska) og að tilheyra. - Ef við upplifum að við tilheyrum ekki, eða upplifum ekki að við séum elskuð - eða höfum tækifæri til að elska, líður okkur illa og verðum jafnvel þunglynd. -

Margir telja einmanaleika einn versta faraldur vestrænnar menningar.

En hvernig lýsir þessi einmanaleiki sér? -

Hann getur verið þannig að við hreinlega búum ein og umgöngumst ekki annað fólk - og séum jafnvel félagsfælin.

En birtingarmynd einmanaleika getur lika verið sú að okkur finnst að við séum öðruvísi en annað fólk og engin/n geti mögulega skilið okkur eða sett sig í okkar spor. -

Margir upplifir ákveðna "alien" tilfinningu. Fólki finnst eins og það tilheyri ekki hér á jörðinni. Passi ekki í "kerfið" - langi ekki að taka þátt í kerfinu eða samfélaginu eins og það er byggt upp. -

Það er svo margt sem er í raun óþarfi. Eins og t.d. að sumt fólk eigi svo stór hús að þau bara "hringli" inni í þeim á meðan aðrir eru heimilislausir - ekki satt?
Sá sem er heimilislaus getur verið einmana - en það er ekki samasemmerki á milli þess og einmanaleikans. Hann getur átt góða vini í sömu stöðu - sem hann hittir og ræðir við, á meðan sá sem er einn í stóra húsinu er tengslalaus. Það var þetta með mikilvægi þess að tilheyra og tengjast öðru fólki.

Í flestum námskeiðum þar sem ég er með hópavinnu, t.d. eins og námskeið fyrir fólk eftir skilnað - þar sem fólk upplifir einmitt oft einmanaleika, þá kemur að því að einhver í námskeiðinu segir: "Ég er svo fegin/n að ég er ekki ein/n" - Þá er það þessi tilfinningalegi léttleiki að finna fólk sem skilur hvað þú ert að upplifa og ganga í gegnum. Við leitum að okkar "klani" - sem skilur okkur. -

Einu sinni kom til mín ung kona sem upplifði sig sem "alien" eða geimveru í þessum heimi. Þetta hafði ég heyrt annað fólk tala um líka, - og kannski þyrfti allt þetta fólk sem líður eins og það sé geimverur á jörðinni eða tilheyri ekki að finna þau sem þau tilheyra?....

Ég er hugsi yfir hvert stefnir. - Þegar ég var að alast upp voru mun meiri fjölskyldutengsl. Við heimsóttum móðurömmu á laugardögum og föðurömmu-og afa á sunnudögum. Jafnvel þegar ég var flutt að heiman og byrjuð að búa - fórum við í sunnudagslæri til foreldra okkar nær hvern sunnudag. - Er ekki orðið minna um þetta? - Er fjölskyldan að sundrast - hver á bak við sinn skjá? Er það ný tegund tengingar að tilheyra hópi á netinu? Dugar það. Hvað með orkuna - nærveruna?

Hvað með þig - upplifir þú þig einhvern tímann einmana? Jafnvel þó þú sért í parasambandi/hjónabandi - eigir vinkonur eða vini. Ef við skiljum ekki hvað hin eru að ganga í gegnum (flestir eru að ganga í gegnum eitthvað) þá eigum við það til að upplifa einmanaleika. Við einangrum okkur jafnvel þegar erfiðleikar steðja að.

Ef þú hefur þörf fyrir að ræða þín mál, hvort sem þú ert að pæla í sjálfum þér/sjálfri þér eða öðrum - býð ég upp á viðtalsþjónustu - á Fiskislóð 24, 2. hæð Jóhanna Magnúsdóttir

s. 8956119 eða sendu tölvupóst á johanna.magnusdottir@gmail.com
Tek alltaf vel á móti þér

(Viðtalið kostar kr. 9000.- og fyrsta viðtal er ca. 90 mín en síðan 60 mín).

Það var árið 2012 að ég gaf út hugleiðsludiskinn RÓ út frá hugtökum Æðruleysisbænarinnar. Nú býð ég námskeið þar sem við...
25/09/2022

Það var árið 2012 að ég gaf út hugleiðsludiskinn RÓ út frá hugtökum Æðruleysisbænarinnar.

Nú býð ég námskeið þar sem við erum í nánd - út frá þessum hugtökum og ætla að bjóða tvær dagsetningar: 4. og 13. október. Nánari upplýsingar í meðfyljandi pistli.

Hugleiðslunámskeið út frá hugtökum Æðruleysisbænarinnar. Hægt er að velja um tvær dagsetningar: Þriðjudag 4. október EÐA fimmtudag 13. október (Vinsamlega látið vita hvorn daginn þið veljið þegar þ…

25/09/2022

Heil og sæl - lausir tímar í Heilun/ráðgjöf
27. september þriðjudagur
kl. 11:00 - 13:00 og 16:00
28. september miðvikudagur
kl. 14:00 og 17:00
4. október þriðjudagur
kl. 14:00 og 16:00
5. október miðvikudagur
kl. 13:00 og 17:00
7. október föstudagur
kl. 10:00 og 14:00

Tíminn er í heildina ca. 90 mínútur - verð 9000.-
Októbertilboð kaupir 3 tíma í einu á 23.000.-

(Allir viðskiptavinir fá bónus "englaspá" ef þeir óska ;-)) ..

Verið hjartanlega velkomin

22/09/2022

Örlítið um lífið og dauðann. -
--
Dauðinn ætti í raun ekki að koma okkur á óvart. Ef við fylgjumst með fréttum þá erum við alltaf að lesa um fólk sem er að deyja. Því miður er það ekki bara fólk sem deyr satt lífdaga, eins og Bretadrottning. Fólk er að deyja í blóma lífsins. Nýfædd börn deyja - ungir foreldrar deyja frá börnum sínum. -
Við reiknum bara ekki með að það gerist hjá okkur.
Þegar það svo gerist fyrir okkur, eitthvað sem við flokkum sem óréttlæti - en auðvitað flokkum við það sem óréttlæti þegar ungt fólk deyr - slasast eða veikist alvarlega.
Lífið er "óréttlátt" á svo marga vegu, - en að sem við tölum um sem réttlæti er okkar skilgreining á réttlæti. Ef lífið væri réttlátt myndu engin börn deyja eða veikjast og bara gamalt fólk deyja. -
En þegar við förum að fatta að þetta er ekki bara svoleiðis, hvað eigum við að gera við það? -
Jú, kannski vera meira þakklát fyrir hvern dag sem við eða ástvinir lifa? Að við tökum ekki lífinu sem sjálfsögðum hlut? Að við lifum heiðarlega við okkur sjálf og annað fólk. Að við setjum ekki ljós okkar = líf okkar undur mæliker, en við verðum besta útgáfan af okkur sjálfum, á meðan við höfum líf? Hugsum vel um þessa gjöf sem lífið er? -
--
Hvað er dauði? Í mínum huga er dauði umbreyting = transformation. Dauðinn er líkamlegur, en ekki andlegur. Það er eitthvað sem lifir áfram, hugmyndin lifir áfram. Orkan sem fylgdi manneskjunni lifir áfram.

"Ég lifi og þér munuð lifa" - er sagt að Jesús hafi sagt. Við höfum flest einhverja mynd í höfðinu af Jesú þó við höfum aldrei hitt hann, - og jafnvel fólk sem trúir ekki á tilvist hans - eða að hann hafi verið svona máttugur, á einhvers konar ímynd af Jesú. Kristin trú er upprisutrú. Það er meira að segja kjarninn í trúarboðskapnum. -

Mér finnst það, persónulega, mjög huggandi - að lífið haldi áfram eftir líkamsdauða. Ég hef upplifað það að dáið fólk hefur heimsótt mig - og tvisvar hef ég fengið faðmlag frá látnu fólki sem er ólíkt öllum öðrum faðmlögum.

Hreinn og tær kærleikur.

Hvers vegna sorg ef fólkið lifir áfram í anda? Jú, við söknum þess sem líkaminn gerir fólki kleift að gera. Við söknum snertingarinnar, raddarinnar, lyktarinnar o.s.frv. - Þessarar leiðar til að hafa samskipti með hjálp líkama.
Ég trúi að þegar við erum opin fyrir möguleikanum á að finna faðmlagið - eða í kyrrðinni að heyra röddina, þá gerist það stundum. Það þarf ekki að loka fyrir það, nema við viljum það. -

Opið hús í kvöld í Heilunarloftinu (Litlu kirkju)  fimmtudag 22. 9.  frá 20:00 -21:0     Blessunar-og heilunarhugleiðsla...
22/09/2022

Opið hús í kvöld í Heilunarloftinu (Litlu kirkju) fimmtudag 22. 9. frá 20:00 -21:0 Blessunar-og heilunarhugleiðsla (ca. 30-40 mín) - síðan hamingjute og notalegt rabb sem ég mun leiða.

Gjaldfrjálst - en verð með bauk á staðnum fyrir frjáls framlög fyrir kostnaði ;-) .

Er á Fiskislóð 21 2. hæð. Verið hjartanlega velkomin, má mæta án þess að láta vita - en líka gott að vita um þátttöku.

Set hér inn mynd af mér þar sem ég er að blessa, en ekki allir vita að þegar prestur biður um blessun fyrir söfnuðinn er hann að miðla frá Guði.

Hvort sem fólk trúir á Guð eða Æðri mátt - eða einhvers konar orku - þá er það nú þannig að eitthvað afl vinnur í gegnum okkur þegar við hleypum því að. -
Ég er svo margbúin að upplifa það - þegar ég er með fólk á bekknum, að ég verð sjóðandi heit eins og hleðslutækið í tölvuna mína. - (Og það hafa þau sem liggja á bekknum flest fundið).

Ég býð þér að koma og þiggja

21/09/2022

Á lausa tíma í heilun á morgun 22. september kl. 11:00 og kl. 17:00
:-) hafið samband í einkaskilaboðum
(Verð f. tímann er 9000.- )

https://johannamagnusdottir.com/2022/08/30/er-lif-eftir-daudann-fyrirlestur/4 sæti laus -  fyrirlesturá persónulegum nót...
21/09/2022

https://johannamagnusdottir.com/2022/08/30/er-lif-eftir-daudann-fyrirlestur/

4 sæti laus - fyrirlesturá persónulegum nótum kl. 20:00 í kvöld - Fiskislóð 24, 2. hæð
Hafðu samband ef þetta er eitthvað fyrir þig

Sæl verið þið, það sækir á mig að tala um sorgina, áföllin, lífið og dauðann. Þegar ég spyr: „Er líf eftir dauðann?“ – þá er spurningin bæði um þau sem hafa dáið – og hvers …

Address

Fálkagata 22
Reykjavík
107

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jóhanna Magnúsdóttir - Heilun og ráðgjöf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Jóhanna Magnúsdóttir - Heilun og ráðgjöf:

Share