
18/09/2025
Skynörvunarstóll að gjöf
Við á Hrafnistu Sléttuvegi fengum afhentan skynörvunarstól frá Fastus að gjöf frá aðstandendum Guðbjargar Höllu Björnsdóttur úr minningarstjóði Guggu.
Gugga eins og hún var alltaf kölluð flutti á Hrafnistu Sléttuveg í mars 2020 og var einn af fyrstu íbúum hjúkrunarheimilisins og bjó hún þar til hennar síðasta dags sem var 19.desember 2023. Þessi gjöf mun nýtast íbúum hjúkrunarheimilisins vel og er nýjung í velferðartækni en hann sameinar skynörvun með hljóði, snertingu og hreyfingu með því að beita skynörvandi meðferð er hægt að auka vellíðan og bæta líðan einstaklings. Við þökkum aðstandendum Guggu hjartanlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf, hún er okkur ómetanleg.