17/11/2025
Heimilisfriður var á Vísi um helgina - hvetjum alla til að lesa þetta viðtal við okkar reyndasta mann, Andrés Proppé Ragnarsson
„Fólk sem er gerendur er líka fólk og það er þeim sem leita til okkar til sóma að leita til okkar af því að það að gangast við og takast á við ofbeldishegðun getur aldrei verið annað en jákvætt,“ segir Andrés Proppé Ragnarsson sálfræðingur og stofnandi meðferðarúrræðisins Heimilisfriðar en þar geta þau sótt meðferð sem beita ofbeldi í nánu sambandi.