Jóga til Þín

Jóga til Þín ♡Jóga til Þín♡
er hugsað sem falleg gjöf frá þér til þín.

☆Jóga Nidra Hádegishleðsla☆ Stutt maí námskeiðSkráning hafin! 📩 jogatilthin@samkennd.is ​Mættu á dýnuna til að hlaða bat...
13/04/2026

☆Jóga Nidra Hádegishleðsla☆ Stutt maí námskeið

Skráning hafin!
📩 jogatilthin@samkennd.is

​Mættu á dýnuna til að hlaða batteríin, gefa eftir og finna jafnvægið á ný

Leyfðu þér að stíga út úr amstri dagsins og inn í djúpa slökun. Á þessu hádegisnámskeiði í jóga nidra lærir þú að sleppa tökunum, losa um uppsafnaða streitu og virkja heilunarmátt líkamans.

Námskeiðið hentar öllum og enga reynslu þarf að hafa af jóga eða hugleiðslu.

Þú mætir bara alveg eins og þú ert, leggst niður og leyfir hvíldinni að vinna sitt verk því það besta við jóga nidra er að það er ekki hægt að gera það vitlaust.
Við erum aðeins að æfa okkur í að finna og vera í stað þess að hugsa og gera ✨️


​Næsta námskeið:
4. maí - 18. maí

Mánudagar frá 12.10 til 13.00 ​

Verð: 10.900,- kr. - 3 skipti

Námskeiðið leiðir Hildur í Samkennd Heilsusetri, Tunguhálsi 19.

Aðeins 14 pláss í boði.

Skráning í skilaboðum eða á jogatilthin@samkennd.is

☆ Retreat - Endurræstu taugakerfið þitt ☆Helgina 6.-8. nóvember 2026Forsala hefst fimmtudaginn 9. apríl kl. 20.00Almenn ...
04/04/2026

☆ Retreat - Endurræstu taugakerfið þitt ☆

Helgina 6.-8. nóvember 2026

Forsala hefst fimmtudaginn 9. apríl kl. 20.00
Almenn sala hefst mánudaginn 13. apríl

Hildur og Hekla leiða hóp kvenna í nærandi samveru, mjúkt jóga, bandvefslosun og jóga nidra svo eitthvað sé nefnt. 

Við munum finna líkamann slakna, vöðvana og bandvefinn mýkjast, hugann kyrrast og kviðvöðvana krumpast - já við ætlum nefnilega að hlæja saman líka - neikvæða orkan fær ekki far með okkur út úr bænum 🤍

Þetta retreat verður nærandi fyrir öll skynfæri og við munum m.a. njóta í jógarýminu, náttúrunni, Hraunböðunum og í Hlöðunni í dásemdar hlaðborði. 

Helgin er pökkuð af djúsí dagskrá sem hefst kl 18.00 með samveru í jógasalnum á Miðhrauni.
Þar tökum við á móti hópnum, snæðum saman léttan kvöldmat og kynnumst aðeins hvorri annarri. 

Mjúkir tímar bæði laugardag og sunnudag, dásemdar morgunverðarhlaðborð, náttúrunæring og kvöldverðarhlaðborð á laugardagskvöldinu svo eitthvað sé nefnt. 

Innifalið fullt fæði alla helgina. 

Við sendum svo þátttakendur heim á sunnudagsseinnipart með veglegan gjafapoka og kannski líka fjársjóð úr fjörunni og með einstaka orku í hjarta ✨️

Nánari dagskrá verður kynnt fyrir þátttakendum síðar en við lofum því að þetta verður dásamlegt. 

Herbergin eru 2ja-3ja manna. Sameiginleg baðherbergi, setustofa og eldhús eru í húsunum. 

Aðeins tvö herbergi eru með sér baðherbergi og greitt er aukalega 5.000,- kr. á mann fyrir þau herbergi og fyrstur kemur fyrstur fær. 

Verð fyrir helgina er 94.900,- ef öll ferðin er greidd í einu lagi við skráningu.

Annars er ferðin á 99.900,- og greiðist þá 50.000,-kr.  staðfestingargjald við skráningu og fullri greiðslu þarf að vera lokið í síðasta lagi 1.sept. 

Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt nema hætt verði við ferðina. 

Allar vangaveltur og fyrirspurnir velkomnar 🤍

Sendu okkur línu með netfanginu þínu til að fá tölvupóst þegar salan hefst!

hekla@bandvefslosun.is
jogatilthin@samkennd.is

Með tilhlökkun og fallega orku í hjarta... 

Hildur & Hekla 
✨️🌿💚🌿✨️


01/04/2026

Er spenna í framhandleggjunum þínum?

Það gæti komið þér á óvart hve víða spenna getur leynst í líkamanum.

Þér finnst þú kannski ekkert sérstaklega þreytt eða spennt í handleggjum en finnur svo þegar þú ferð í nudd eða nuddar þig sjálf með boltum hve mikil spenna getur verið á þessu svæði.

Kannski ertu í kröftugri hreyfingu - að lyfta - að standa á höndum eða æfa þig í armbalance stöðum í jóga og þá veistu að þessir vöðvar þarfnast smá ástar og umhyggju.

Nuddaðu framhandleggina með mér með 2 boltum í neti frá

Boltarnir fást m.a. í og í .is

Gott að hafa 2 kubba undir eða sitja við borð. Best að hafa boltana á stömum kubb svo þeir renni ekki til.

-Láttu þumal vísa upp að lofti og rúllaðu boltunum fram að úlnlið og aftur að olnboga nokkrum sinnum, hægt og rólega. Andaðu og taktu eftir spennunni sem er þarna.
Ef þú vilt auka þrýsting geturðu lagt gagnstæðar handlegg ofan á, en passa að geta slakað inn í æfinguna.
- Láttu nú lófa vísa niður og nuddaðu fram og aftur en þó ekki rúlla lengra en að þeim stað þar sem úrið væri á úlnlið
- Láttu svo lófa vísa upp og nuddaðu fram og aftur nokkrum sinnum, hér má rúlla alveg að úlnlið og alveg að olnboga

Mundu að þú vilt geta haldið djúpri öndun og taugakerfinu í ró á meðan þú nuddar þig svo ef þú finnur að þú byrjar að spennast upp, dragðu aðeins úr þrýstingnum.

Bandvefslosun er mjúk nálgun í sjálfsnuddinu þar sem við losum spennu á einum stað án þess að búa til spennu annarsstaðar og þar er lykilatriði að geta slakað og gefið eftir inn í hverri æfingu fyrir sig.

Ætlar þú að prófa?

☆ORKUFLÆÐI☆Jóganámskeið sem kemur þér af stað í hreyfingu sem færir þér góða orku og vellíðan í líkama og sál ✨Næstu tím...
25/03/2026

☆ORKUFLÆÐI☆

Jóganámskeið sem kemur þér af stað í hreyfingu sem færir þér góða orku og vellíðan í líkama og sál ✨

Næstu tímabil hefjast 30. mars og 29. apríl – 4 eða 8 vikur af endurnærandi flæði og gleði á mánudögum og miðvikudögum kl.16.45-17.45.

Langar þig að öðlast meiri orku, meiri ró og aðeins meiri gleði?
Orkuflæði er fjölbreytt jóganámskeið sem blandar saman ólíkum jógaformum, mýkt og styrk — og stundum með skemmtilegu óvæntu tvisti sem hristir upp í líkamanum og kveikir á gleðinni ✨

Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Þú ferð á þínum hraða og færð alltaf rými til að gera æfingarnar á þann hátt sem hentar þér best.

Hvað bíður þín?
•Kraftmikið flæði og mjúkt teygjuflæði
•Nýjar og öðruvísi æfingar sem halda okkur lifandi og forvitnum
•Að minnsta kosti einn Yin tími
•Ein Yoga Nidra djúpslökun
•Létt og uppbyggjandi stemming þar sem hver tími er tími til að njóta og stundum líka ögra sjálfum sér... með brosið og húmorinn fyrir sjálfum sér að vopni!

✨️ Gefðu þér gjöfina að vera með ✨️

Bjóddu líkamanum flæði.
Bjóddu huganum frið.
Bjóddu þér í Orkuflæði.

Skráning er hafin!

Sendu skilaboð á samfélagsmiðlum eða tölvupóst á jogatilthin@samkennd.is

Eitt tímabil - 8 skipti á 25.900,-
2 mánuðir, apríl og maí á 45.000,-

Möguleiki á að vera 1x í viku.
Apríl & maí 8 skipti á 27.800,-

Námskeiðið er kennt í Samkennd Heilsusetri og leiðbeinandi er Hildur Rut jógakennari

✨️ BÆTUM VIÐ! ✨️Bandvefslosun & Jóga nidra með Heklu og Hildi er nýtt námskeið sem haldið verður í Samkennd Heilsusetri....
24/03/2026

✨️ BÆTUM VIÐ! ✨️

Bandvefslosun & Jóga nidra með Heklu og Hildi er nýtt námskeið sem haldið verður í Samkennd Heilsusetri.

Tímabil: 20. apríl - 18. maí- 7 skipti

Ath kennt verður 5 mánud og 2 fimmtud. frá 10.45-11.45. 
Mánudagarnir 20/4, 27/4, 4/5, 11/5 og 18/5
Fimmtudagarnir 30/4 og 7/5
Engin kennsla fim 23/4 og fim 14/5

Verð: 25.400,- kr.

Mýkt og mildi verður í fyrirrúmi í þessum tímum þar sem Hekla og Hildur munu leiða bandvefslosun og jóga nidra djúpslökun. Þessi blanda passar einstaklega vel saman þar sem bandvefskerfi líkamans og taugakerfið tengjast sterkum böndum og hafa mikil áhrif hvort á annað. 
Á námskeiðinu náum við að róa bæði líkama og huga. 

Við byrjum á Bandvefslosun og endum tímana á jóga nidra djúpslökun þar sem þú færð tækifæri til að gefa fullkomlega eftir.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja rólega og endurnærandi hreyfingu sem bæði mýkir líkama og sál.

Í Bandvefslosun er unnið í ró og meðan við nuddum líkamann. Bandvefur og vöðvar líkamans eru nuddaðir með mismunandi boltum og þú lærir að hlusta á þau boð sem líkaminn sendir þér. Við notum svo blöðrubolta til að minnka eða auka þrýsting eftir því sem við á. 
Í kjölfarið muntu finna fyrir aukinni líkamsvitund. 

Farið verður í bandvefslínurnar sem útskýra svo vel hvernig bandvefurinn tengir vöðva líkamans saman eftir ákveðnum leiðum.

Jóga nidra er liggjandi leidd hugleiðsla og djúpslökun. Í tímunum upplifir þú algjörlega áreynslulausa streitulosun og ferð slakari eða orkumeiri út úr hverjum tíma. 
Við leiðum þig inn í djúpa slökun, inn í þögnina og kyrrðina handan hugans þar sem líkaminn,á þessu stigi slökunar, fær m.a. tækifæri til að heila sig og losa út umfram streituhormón sem stuðlar m.a. að betra andlegu jafnvægi.

Til að skrá þig sendu póst á hekla@bandvefslosun.is
eða jogatilthin@samkennd.is

☆ KvöldKyrrð – Jóga Nidra námskeið ☆Láttu dekra við taugakerfið þitt með töfrum jóga nidra djúpslökunar á æðislegum þykk...
20/02/2026

☆ KvöldKyrrð – Jóga Nidra námskeið ☆

Láttu dekra við taugakerfið þitt með töfrum jóga nidra djúpslökunar á æðislegum þykkum dýnum sem fá þig til að gleyma nánast öllum stoðkerfisverkjum á meðan þú liggur í slökuninni ♡

Ef þú ert undir miklu álagi, veist að þú ert með ofþanið taugakerfi en bara sérð ekki leiðina út úr vítahringnum... þá er KvöldKyrrðin fullkomið fyrsta skref 🤍

Ertu kannski búin að vera í veikindaleyfi en átt erfitt með að forgangsraða því sem þú veist að væri gott að gera fyrir heilsuna?
Jóga Nidra hjálpar þér m.a. að ná skýrari hugsun samhliða algjörri endurræsingu svo leyfðu djúpslökuninni að vera fremst á forgangslistanum.

Gefðu þér gott restart á kerfið þitt einu sinni í viku og bókaðu plássið þitt á jogatilthin@samkennd.is

Jóga Nidra er liggjandi leidd hugleiðsla og djúpslökun. Í tímanum upplifir þú algjörlega áreynslulausa streitulosun og ferð slakari eða orkumeiri út úr tímanum.
Hildur leiðir þig inn í djúpa slökun, inn í þögnina og kyrrðina handan hugans þar sem líkaminn, á þessu stigi slökunar, fær m.a. tækifæri til að heila sig og losa út umfram streituhormón og stuðla að betra andlegu jafnvægi.

Það besta við jóga nidra er að það er ekki hægt að gera það vitlaust og þú liggur útaf allan tímann og æfir þig í að slaka á.

✨️Þetta er tími fyrir þig✨️
Tími til að sleppa tökunum, anda og bara finna og vera. 

Næsta námskeið:
Tímabil: 4. mars – 22. apríl
Námskeiðið er 8 skipti og fer fram í Samkennd Heilsusetri. 
Hildur Rut leiðir tímana.

Tímasetning:
Miðvikudagar kl: 18:10 – 19:00

Verð 25.900,- kr.
Skráning á jogatilthin@samkennd.is eða í skilaboðum

✨️ Gefðu þér tíma fyrir þig ✨️

Ef þú ert í starfsendurhæfingu - hafðu samband og við skoðum möguleikana saman 🙏

Mig langar að benda ykkur Árbæingum á opna húsið og afmælishátíðina sem verður hjá okkur í Samkennd Heilsusetur í tilefn...
16/02/2026

Mig langar að benda ykkur Árbæingum á opna húsið og afmælishátíðina sem verður hjá okkur í Samkennd Heilsusetur í tilefni 5 ára afmæli Samkenndar.

Frábær dagskrá þarsem fagaðilar bjóða upp á fræðsluerindi og við í hreyfideildinni bjóðum uppá frían kynningartíma.

Endilega kynnið ykkur dagskrána og komið og fagnið og fræðist með okkur laugardaginn 28. febrúar.
Eða skráðu þig í kynningartímann.. sjá póst f neðan.

Samkennd Heilsusetur er á Tunguhálsi 19 2.hæð ✨️🤍✨️

✨️ Frír kynningartími ✨️Meðvituð líkamsrækt, bandvefslosun, yin & nidraOrkugefandi og nærandi samspil þeirra Sólveigar, ...
16/02/2026

✨️ Frír kynningartími ✨️
Meðvituð líkamsrækt, bandvefslosun, yin & nidra

Orkugefandi og nærandi samspil þeirra Sólveigar, Heklu og Hildar í kynningartíma laugardaginn 28. febrúar milli 10 og 11.30 í tilefni afmælishátíðar Samkenndar.

Sólveig byrjar á að leiða hópinn í gegnum rólegt flæði æfinga með það að markmiði að styrkja og liðka líkamann. Svo tekur Hekla við með bandvefslosun þar sem unnið er á bandvefskerfi líkamans með sjálfsnuddi með sérstökum nuddboltum og að lokum leiðir Hildur inn í yin teygjur og jóga nidra djúpslökun sem hefur góð áhrif á taugakerfið okkar.

Hér er tækifæri til að kynnast þessum þremur hóptímakennurum sem bjóða upp á ólík námskeið í Samkennd Heilsusetri.

Þú gengur út endurnærð, í betra jafnvægi og með vellíðan í líkama og sál.

Skráning hér:
https://forms.gle/roBhdHTDw5zbSrUJ7

Ath. Aðeins 14 komast að í þennan tíma og ef þú nærð plássi færðu sendan staðfestingarpóst frá okkur.
Ef þú lendir á biðlista færðu líka sendan póst frá okkur og við tökum svo inn af biðlistanum ef pláss losna.

Hlökkum mikið til að taka á móti ykkur í dásamlega umvefjandi jógasalnum í Samkennd laugardaginn 28. febrúar 🤍

Hlýjar kveðjur,
Sólveig - Meðvituð líkamsrækt
Hekla - Bandvefslosun
Hildur - Jóga til þín

☆Jóga Nidra Hádegishleðsla☆Skráning hafin! 📩 jogatilthin@samkennd.is ​Mættu á dýnuna til að hlaða batteríin, gefa eftir ...
08/02/2026

☆Jóga Nidra Hádegishleðsla☆

Skráning hafin!
📩 jogatilthin@samkennd.is

​Mættu á dýnuna til að hlaða batteríin, gefa eftir og finna jafnvægið á ný

Leyfðu þér að stíga út úr amstri dagsins og inn í djúpa slökun. Á þessu hádegisnámskeiði í jóga nidra lærir þú að sleppa tökunum, losa um uppsafnaða streitu og virkja heilunarmátt líkamans.

Námskeiðið hentar öllum og enga reynslu þarf að hafa af jóga eða hugleiðslu.

Þú mætir bara alveg eins og þú ert, leggst niður og leyfir hvíldinni að vinna sitt verk því það besta við jóga nidra er að það er ekki hægt að gera það vitlaust.
Við erum aðeins að æfa okkur í að finna og vera í stað þess að hugsa og gera ✨️


​Næsta námskeið:
2. mars - 27. apríl - Ath enginn tími 2. í páskum

Mánudaga frá 12.10 til 13.00 ​

Verð: 25.900,- kr. - 8 skipti

Námskeiðið leiðir Hildur í Samkennd Heilsusetri, Tunguhálsi 19.

Aðeins 14 pláss í boði.

Skráning í skilaboðum eða á jogatilthin@samkennd.is

Address

Tunguháls 19
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 00:00 - 18:00
Wednesday 04:15 - 18:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jóga til Þín posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Jóga til Þín:

Share

Category