Iðjuþjálfun - Lífsbrunnur

Iðjuþjálfun - Lífsbrunnur Lífsbrunnur býður upp á þjónust bæði í gegnum fjarfundabúnaði og á stofu. Iðjuþjálfun, PEERS félagsfærni, lesblinda.

Næstu PEERS félagfærninámskeið verða í byrjun maí 2026.

09/04/2026
Upplifun af PEERS félagsfærni námskeiði 16 - 24 ára. Sæl, Kærar þakkir fyrir gott námskeið. Við Hlífar Óli erum mjög ánæ...
04/04/2026

Upplifun af PEERS félagsfærni námskeiði 16 - 24 ára.

Sæl, Kærar þakkir fyrir gott námskeið.

Við Hlífar Óli erum mjög ánægð með námskeiðið og finnst við hafa haft mjög gott af því að vera með. Það er mjög gott að fá áminningu um það hvernig gott er að bera sig að í ákveðnum aðstæðum. Eftir þennan tíma upplifir Hlífar Óli sig öruggari í aðstæðum þar sem hann er meðal fólks sem hann þekkir ekki vel. Hann er farinn að eiga auðveldara með að eiga frumkvæði af því að hitta félaga sína og vini og skipuleggja hittinga með þeim.
Okkur foreldrunum finnst uppbygging námskeiðisins mjög góð, það er mjög hjálplegt að foreldrar/forráðamenn hittist fyrst og fari yfir efni námskeiðisins til að geta fylgt því eftir með sínu barni/ungmenni. Sem kennari í grunnskóla (Þyrey) þar sem ég vinn meðal annars við sérkennslu tel ég að þetta námskeið nýtist mér mjög vel í starfi.
Við þökkum kærlega fyrir okkur og mælum sannarlega með þessu námskeiði við fólk í kringum okkur.

PEERS® er gagnreynt félagsfærninámskeið sem styður ungmenni í að mynda, styrkja og viðhalda félagslegum tengslum. Námskeiðið er ætlað ungmennum sem vilja auka félagsfærni sína, öryggi í samskiptum og skilning á félagslegum aðstæðum í daglegu lífi.

Frá móður drengs sem var á PEERS félagsfærni námskeiðinu fyrir 13 - 15 ára unglinga.Þú færð mín allra bestu meðmæli enda...
04/04/2026

Frá móður drengs sem var á PEERS félagsfærni námskeiðinu fyrir 13 - 15 ára unglinga.
Þú færð mín allra bestu meðmæli enda frábært og mjög faglegt námskeið og þú virðist ná afar vel til krakkanna.

PEERS® er gagnreynt félagsfærninámskeið sem styður unglinga í að mynda og viðhalda vinatengslum. Námskeiðið er sérstaklega hannað fyrir unglinga sem vilja styrkja félagsfærni sína og öðlast meira öryggi í samskiptum við jafnaldra.Einstakt við PEERS® er að bæði unglingar og...

Upplifun föðurs af PEERS félagsfærni námskeiðinu fyrir börn á aldrinum 10 - 12 ára. Almenn upplifun var góð. Mér fannst ...
04/04/2026

Upplifun föðurs af PEERS félagsfærni námskeiðinu fyrir börn á aldrinum 10 - 12 ára.
Almenn upplifun var góð. Mér fannst gagnlegast að nálgast aðrar leiðir í samskiptum.
Það sem hefur gagnast okkur í daglegu lífi er að núna ræðum við öðruvísi saman og alltaf hægt að ná saman með sameiginlegri reynslu.
Námskeiðið hefur haft áhrif á samskipti dóttur minnar við önnur börn. Af því leiti að hún hefur notað aðferðir til að takast á við eineltistilburði með árangri fyrir bekkjarvinkonu sína.
Það sem er gott við skipulagið er að það er sniðugt að foreldrar gangi í gegnum það sama og börnin.
Efnið hefur hægt og sígandi verið að síast inn hjá henni og hún talar á öðruvísi nótum núna. Hún er mun rólegri í samskiptum og getur tekið á málunum.
Það hafa orðið framfarir hjá henni bæði í skólanum og heima.
Ég myndi benda á þetta námskeið fyrir alla þá sem eiga krefjandi börn sem eiga í vandræðum með félagslífið.
Ég tel að þetta námskeið gagnist þeim sem það þurfa

PEERS® er gagnreynt félagsfærninámskeið sem styður börn í að eignast vini og halda í vinatengsl. Námskeiðið er einstakt að því leyti að bæði börn og forsjáraðilar taka virkan þátt, svo færnin nýtist áfram í daglegu lífi eftir að námskeiði lýkur.

Móðir lýsir sinni upplifun af PEERS félagsfærni námskeiðinu fyrir 13 - 15 ára. Allt við námskeiðið hefur hjálpað. Sérsta...
04/04/2026

Móðir lýsir sinni upplifun af PEERS félagsfærni námskeiðinu fyrir 13 - 15 ára.
Allt við námskeiðið hefur hjálpað. Sérstaklega einfaldir hlutir eins og að kenna að hringja símtal, er eitthvað sem ég hafði ekki hugarflug um að þyrfti að gera.
Núna segir hann mér að fyrra bragði, að honum finnist námskeiðið hafa kennt honum eitthvað, og hann er ekki eins neikvæður að mæta og fyrst. Það er mjög sjaldgjæft að hann tjái sig svona svo þetta er mjög gott fyrir hann og hefur greinilega hjálpað honum.
Við höfum einnig lært meira inná hans styrkleika og veikleika og sjáum betur hvað er að hamla honum í daglegu lífi.
Námskeiðið hjálpaði okkur og mun koma betur í ljós síðar.
Mæli með þessu við þá sem spyrja
Fjarnámskeið er mjög gott, sé ekki hvernig það hefði verið betra öðruvísi. Hann í öruggu umhverfi, að meðtaka miklar upplýsingar sem eru líklega nýjar fyrir honum. Svo þetta var allt mjög gott
Svo bara vel gert og takk fyrir allt.

PEERS® er gagnreynt félagsfærninámskeið sem styður unglinga í að mynda og viðhalda vinatengslum. Námskeiðið er sérstaklega hannað fyrir unglinga sem vilja styrkja félagsfærni sína og öðlast meira öryggi í samskiptum við jafnaldra.Einstakt við PEERS® er að bæði unglingar og...

Upplifun móður drengs sem var á námskeiðinu fyrir 13 - 15 ára unglinga.Heildar Upplifun mín af PEERS félagsfærni námskei...
04/04/2026

Upplifun móður drengs sem var á námskeiðinu fyrir 13 - 15 ára unglinga.
Heildar Upplifun mín af PEERS félagsfærni námskeiðinu var mjög góð og ég er afar ánægð með það. Námskeiðið var bæði fræðandi og hagnýtt og mér finnst sérstaklega gagnlegt að fá skýrar og einfaldar leiðir til að leiðbeina barninu mínu í félagslegum aðstæðum. Ég lærði margt sem ég hef getað nýtt í daglegu lífi og hef nú betri skilning á því hvernig ég get stutt barnið mitt í samskiptum á markvissan hátt. Ég hef tekið eftir jákvæðum breytingum, þar sem barnið virðist öruggara í samskiptum við önnur börn og á auðveldara með að taka þátt í félagslegum aðstæðum.
Kennslan og skipulag námskeiðsins fannst mér gott og aðgengilegt, og fjarkennslan virkaði vel þar sem þægilegt var að taka þátt að heiman og fara yfir efnið á eigin hraða. Barnið mitt hefur verið að nýta það sem það lærði, sérstaklega í samskiptum við jafningja og í daglegum aðstæðum heima, og ég hef séð framfarir bæði í því að hefja og viðhalda samskiptum. Ég finn einnig að barnið er orðið léttara í skapi og almennt líður því betur, sem er mjög ánægjulegt að sjá.
Það kom mér á óvart hversu hagnýtt námskeiðið var og hversu auðvelt var að yfirfæra efnið yfir á raunverulegar aðstæður. Ég myndi hiklaust mæla með námskeiðinu fyrir foreldra barna sem þurfa stuðning í félagsfærni. Það sem stendur upp úr er hversu gott er að hafa bókina sem hjálpartæki sem hægt er að grípa í aftur og aftur og halda áfram að nota til að styðja barnið við að takast á við ýmsar aðstæður. Ég tel ekki að það hafi vantað meira rými fyrir umræðu þar sem fyrirkomulagið hentaði mér vel.

PEERS® er gagnreynt félagsfærninámskeið sem styður unglinga í að mynda og viðhalda vinatengslum. Námskeiðið er sérstaklega hannað fyrir unglinga sem vilja styrkja félagsfærni sína og öðlast meira öryggi í samskiptum við jafnaldra.Einstakt við PEERS® er að bæði unglingar og...

Upplifun einstaklings sem var að ljúka PEERS félagsfærni námskeiðinu fyrir ungt fólk á aldrinum 25 - 34 ára. Upplifunin ...
04/04/2026

Upplifun einstaklings sem var að ljúka PEERS félagsfærni námskeiðinu fyrir ungt fólk á aldrinum 25 - 34 ára.

Upplifunin af námskeiðinu var góð. Mér fannst gagnast mér best að átta mig á hvernig samræður virka. Ég hef lært margt sem gagnast mér vel. Ég er farin að hafa betri samræður við fólk.
Það kom mér á óvart hvað margar smá reglur eru í samræðum.
Skipulagið á námskeiðinu var gott.
Mér finnst eins og allir ættu að fara á svona námskeið.

PEERS® er gagnreynt félagsfærninámskeið sem styður fullorðna í að mynda, styrkja og viðhalda félagslegum tengslum í daglegu lífi. Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem vilja efla félagsfærni sína, auka öryggi í samskiptum og ná betri fótfestu í félagslegum aðstæðum.

Var að berast þessi yndislega reynslusaga frá móður sem var á námskeiðinu fyrir 16 - 24 ára.Sæl Guðrún Jóhanna,Takk kærl...
04/04/2026

Var að berast þessi yndislega reynslusaga frá móður sem var á námskeiðinu fyrir 16 - 24 ára.

Sæl Guðrún Jóhanna,
Takk kærlega fyrir mjög gott og vel skipulagt námskeið – það hefur verið virkilega dýrmætt að fá að taka þátt á námskeiðinu með dóttur minni.
Heildarupplifun mín af PEERS námskeiðinu var mjög jákvæð. Mér fannst sérstaklega gott að fá skýra leiðsögn um hvernig ég g*t stutt dóttur mína í að æfa ýmsa þætti tengda félagsfærni.
Ég lærði ýmislegt sem ég hef getað nýtt beint með henni í daglegu lífi. Námskeiðið hefur hjálpað okkur að vinna markvisst með samskipti og ég sé jákvæðar framfarir hjá henni.
Kennslan var skýr, hagnýt og vel uppsett. Mér fannst gott jafnvægi á milli fræðslu og verkefna sem hægt var að vinna með heima. Fjarkennslan virkaði vel og var þægileg fyrir okkur.
Það sem kom mér kannski mest á óvart var hversu skipulagt og aðgengilegt efnið var, og hvað það gaf mér skýr verkfæri til að styðja hana áfram.
Ég myndi hiklaust mæla með námskeiðinu, bæði fyrir þátttakendur og foreldra. Það gefur raunhæf og gagnleg verkfæri sem nýtast vel í daglegu lífi.
Takk kærlega fyrir okkur!

PEERS® er gagnreynt félagsfærninámskeið sem styður ungmenni í að mynda, styrkja og viðhalda félagslegum tengslum. Námskeiðið er ætlað ungmennum sem vilja auka félagsfærni sína, öryggi í samskiptum og skilning á félagslegum aðstæðum í daglegu lífi.

Ný yndisleg reynslusaga sem mér var að berast🥰Vil þakka fyrir frábært námskeið. Sonur minn 12 ára er lesblindur og með A...
04/04/2026

Ný yndisleg reynslusaga sem mér var að berast🥰
Vil þakka fyrir frábært námskeið. Sonur minn 12 ára er lesblindur og með ADHD hefur átt í erfiðleikum með lestur alla sína skólagöngu og hefur lestur verið mjög neikvæð upplifun hjá honum.
Á námskeiðinu hefur hann ekki bara lært tækni til að bæta lesturinn heldur hefur hann einnig öðlast sjálfstraust til þess að geta nýtt sér aðferðirnar sjálfur og þar með gert lesturinn öruggari og liprari. Einnig frábært að læra boltaleikina sem upphitun fyrir lesturinn sem gerir lesturinn heima skemmtilegri og jákvæða byrjun á annars krefjandi verkefni.
Netnámskeið hentaði einnig mínu manni vel þar sem hann g*t verið í sínu örugga umhverfi.
Við foreldrar hafa einnig fengið verkfæri sem nýtast við frekari þjálfun heima og gert okkur betri í að styrkja og ýta undir jákvæðari upplifun af lestrarþjálfun.
Takk fyrir okkur

Lestur er iðja er sérhæft námskeið í iðjuþjálfun fyrir lesblind börn, unglinga og ungmenni. Námskeiðið fer fram í fjarþjónustu og byggir á einstaklingsmiðaðri þjálfun þar sem unnið er markvisst með áskoranir tengdar lestri.

Næsta námskeið hefst fyrstu vikuna í september. Skráning á Abler eða á www.lifsbrunnur.is
01/04/2026

Næsta námskeið hefst fyrstu vikuna í september. Skráning á Abler eða á www.lifsbrunnur.is

Address

Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Iðjuþjálfun - Lífsbrunnur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Iðjuþjálfun - Lífsbrunnur:

Share