15/07/2022
Sálfræðiþjónusta fyrir fólk með þroskaraskanir sem glíma við kvíða, þunglyndi og/eða slaka tilfinningastjórnun.
Ég útskrifaðist sem klíniskur sálfræðingur árið 2021 frá Háskólanum í Reykjavík. Síðan þá hef ég verið að vinna í geðheilsuteymi taugaþroskaraskana á vegum heilsugæslunnar fyrir fólk með þroskahömlun og/eða hamlandi einhverfu.
Ég hef verið að vinna með fólki með þroskaraskanir og aðrar skyldar raskanir í 8 ár og hef því góða reynslu í því að vinna með þessum hópi.
Í viðtölum styðst ég við gagnreyndar aðferðir í meðferð en þar sem þær henta ekki öllu fólki með þroskaraskanir legg ég mikinn metnað í það að aðlaga þær að hverjum og einum.