14/11/2022
Sjúkraþjálfaravaktin hefur störf 18.11.22 og mun bjóða upp á vakt sjúkraþjálfara frá klukkan 17.00 til 22.00 alla virka daga í aðstöðu Læknavaktarinnar. Sjúkraþjálfarar vilja hjálpa til við að minnka álagið á Bráðamótttöku Landspítala og bjóða upp á úrræði fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna verkja eða minniháttar áverka.
Sjúkraþjálfari skoðar, greinir og fræðir einstakling um hvað sé hægt að gera til að flýta bata og mögulega minnka verki. Hvaða æfingar má gera og hvað skal forðast, og hvers megi vænta á næstu vikum.
Öll sem hafa lent í slysi, meiðslum eða þurfa á fræðslu og aðkomu sjúkraþjálfara að halda eru velkomin. Það þarf ekki beiðni frá lækni til að hitta sjúkraþjálfara á vaktinni þar sem þjónustan er án aðkomu sjúkratrygginga Íslands
Til að hitta sjúkraþjálfara á vaktinni, er farið í afgreiðslu Læknavaktarinnar. Þar er tekið við greiðslu og þér vísað inn til sjúkraþjálfara. Ef það er bið, færðu númer. Ef þörf er á mati læknis þá er hann kallaður til. Ef læknir Læknavaktar vísar á sjúkraþjálfara þá er gjald til sjúkraþjálfara og læknis aðskilið og greiða þarf fyrir hvoru tveggja
Verðskrá
Viðtal sjúkraþjálfara: 18.000 kr. (Sjúkratryggingar Íslands taka ekki þátt í kostnaði)