Lára ∞ Móar

Lára ∞ Móar Lára 🌱 Móar bjóða upp á rými vitundar í gegnum iðkun & sköpun.

Lára býður í samveru með cacao, raddopnun, yin & restorative, sjálfsnuddi, slökun og tónheilun í reyr studio sunnudaginn...
10/04/2026

Lára býður í samveru með cacao, raddopnun, yin & restorative, sjálfsnuddi, slökun og tónheilun í reyr studio sunnudaginn 19. apríl frá kl. 11-13.

Allir fá gjafapoka

09/04/2026

Það gleður mig svo að kynna að næsta Möntrusession fer fram í Fríkirkjunni Reykjavík þann 20. maí.

Miðsala hefst í næstu viku.

X
L

Síðasta möntrugusan í bili annað kvöld kl. 18.30.Svo næs að kyrja í hitanum 🎶Skráning í gegnum moarheima@gmail.com
08/04/2026

Síðasta möntrugusan í bili annað kvöld kl. 18.30.

Svo næs að kyrja í hitanum 🎶

Skráning í gegnum moarheima@gmail.com

Ég hef fengið aðgang að svo fallegu rými í Hafnarfirði fyrir einkatíma.Ég hef opnað fyrir bókanir í gegnum moarheima@gma...
06/04/2026

Ég hef fengið aðgang að svo fallegu rými í Hafnarfirði fyrir einkatíma.

Ég hef opnað fyrir bókanir í gegnum moarheima@gmail.com.

Í tímanum leiði ég í gegnum rólegar og nærandi æfingar sem geta meðal annars falið í sér:

- líkamsvitund og somatíska vinnu
- öndunaræfingar
- djúpa slökun / Yoga Nidra
- mjúka hreyfingu
- hljóð, rödd eða tónskálar
- sjamaníska heilun
- cranio sacral snertingu

Markmiðið er ekki að laga eða ýta ferlum áfram heldur að skapa rými þar sem líkaminn getur slakað á, losað spennu og fundið ró.

Tíminn tekur 75 - 90 mínútur & kostar 18.000.

🌹

Nokkur laus pláss í möntrugusuna á fim kl. 18.30 🔥Skráning í gegnum moarheima@gmail.com.Vúbb vúbb
06/04/2026

Nokkur laus pláss í möntrugusuna á fim kl. 18.30 🔥

Skráning í gegnum moarheima@gmail.com.

Vúbb vúbb

Nýja uppáhalds orðið mitt: RitualList ✨Ég elska að sitja í samveru, hlusta og skapa með fólki.Nota efnivið náttúrunnar o...
31/03/2026

Nýja uppáhalds orðið mitt: RitualList ✨

Ég elska að sitja í samveru, hlusta og skapa með fólki.
Nota efnivið náttúrunnar og líkamans – röddina til að spinna og komast í snertingu við hið yfirnáttúrulega.

Ég held að það sem veldur okkur sársauka í lífinu sé þegar hugmyndir, draumar og þrár stoppa einhvers staðar á leiðinni.
Til dæmis vegna ótta, samanburðar eða lágs sjálfsmats.
Eða þegar við raungerum draumana – en festumst svo í útkomunni, væntingum og vonbrigðum.

Stundum veljum við, meðvitað eða ómeðvitað, að hlaupa hraðar frá því sem okkur er raunverulega ætlað að gera.
Því sem nærir andann og kveikir neistann.
Kannski af því að það krefst þess að við yfirgefum eitthvað sem við þekkjum vel.

En mín reynsla er sú að meiri sársauki felst í því að loka augunum.

Það hefur hjálpað mér mikið að vinna með höfuðáttirnar, hringrásirnar og lækningahjólið –
sem spegil á því hvar ég er stödd,
hvar gömul mynstur og skilyrðingar halda mér aftur,
og hvar ég er að þagga niður ástríðu mína.

Allt má gera í litlum skrefum.
Hvað get ég gert í dag til að næra tilganginn minn?

Það er ástríða mín að hjálpa fólki að muna virði sitt.

Við ætlum að máta hugmyndir okkar og drauma inn í lækningahjólið á námskeiðinu RitualList sem hefst á mánudaginn.

❤️‍🔥

📷 .s.petursdottir

29/03/2026
24/03/2026

Jörðin kallar á mig
Hún biður mig að sjá sig
Komdu nær – komdu nær
Heyrðu mig!

♥️ 🌏

Lára býður í samveru með cacao, raddopnun, möntrum, slökun og tónheilun í reyr studio laugardaginn 28. mars frá kl. 11-1...
23/03/2026

Lára býður í samveru með cacao, raddopnun, möntrum, slökun og tónheilun í reyr studio laugardaginn 28. mars frá kl. 11-13.

Eins og blandan af möntruhádegi & laugardagsslökun í Móum.

Verð: 4.900.-
skráning: moarheima@gmail.com

18/03/2026

Með tímanum verða allar möntrurnar aðgengilegar inn á Móar Heima.

Ég er að klára að smíða nýja heimasíðu & tryggja skilvirkt & notendavænt kerfi.

Síðan opnum við dyrnar.

Ég minni á að það er ennþá hægt að forskrá sig í áskriftaleið 2 sem inniheldur ekki bara tíma á netinu heldur einnig 2 viðburði í raunheimum á mánuði.

(Sönghringur, dekurstund, möntrugusa, kirtan og margt fleira).

Sendu mér skilaboð ef þú vilt tryggja þér pláss. Alveg að fyllast 😊

Hlakka til að vera með ykkur,
X
L

17/03/2026

Þá daga sem ég vakna inn í miðjum spíral neikvæðra hugsana.

Í nótt dreymdi mig part af mér sem ég á erfitt með að sættast við.
Í dag situr hann með mér.

Ég ætla að hlusta á hann – því hann hefur sögu að segja.

Síðan ætla ég að bjóða inn öðrum pörtum.

Sérstaklega þessum uppátækjasama, blíða og fyndna.
Þessum sem finnst lífið snilld.

Og þessum sem er góður í praktík –
því ég þarf að klára heimasíðuna í dag.

X
L

Stillur morguns ❄️🏔️🏞️Stilla hugans — stilltur hugur.Leyfir mér að njóta hins smáa.Æfi mig í að vingast við viðbrögð lík...
16/03/2026

Stillur morguns ❄️🏔️🏞️

Stilla hugans — stilltur hugur.
Leyfir mér að njóta hins smáa.

Æfi mig í að vingast við viðbrögð líkamans við eigin hugsunum.
Finnst það áhrifameira en að temja hugann.
Markmiðið er að uppskera meiri nánd við andartakið.

Nýt einveru og finn næringu vináttu.

Sakna þess besta — fjölskyldunnar.

Plana ævintýri til fjarlægra landa.
Plana ævintýri heim og inn í eigið land.

Hlakka til alls.

X
L

Address

Bolholt 4, 2. Hæð
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lára ∞ Móar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Lára ∞ Móar:

Share