Birta Heilsa

Birta Heilsa Heilsunudd, ráðgjöf og hópatímar

Ég heiti Kristín Berta Sigurðardóttir og er eigandi Birtu - Heilsu. Ég býð upp á hópatíma, heilsunudd, heilsuráðgjöf og heilsutengda fyrirlestra fyrir fyrirtæki.

Ég er útskrifaður heilsunuddari frá heilbrigðisskóla FÁ.

Ég legg mikla áherslu á fagleg vinnubrögð og vinn heildrænt með nuddþegum mínum að lausn þeirra mála.

22/04/2026

Styrkur er svo ótrúlega mikilvægur, sérstaklega með aldrinum!💙

21/04/2026

Elska þetta stöff!💪🤸🏻

19/04/2026

Er að vinna markvisst með að styrkja latsa og brjóstvöðva. Er veikari hægra megin og fæ stundum seiðing í hægri öxl. Nú hættum við því!💪🤸🏻

17/04/2026

60 fo….. kíló! Gleðilegan föstudag💪🫶 💙

16/04/2026

Þarf nudd alltaf að vera vont til að virka?

Frábær vinnuvika að baki💙Fullt af nuddi og heilsuráðgjöf. Tveir fyrirlestrar á fimmtudaginn, þar af annar á ensku. Ég þu...
10/04/2026

Frábær vinnuvika að baki💙

Fullt af nuddi og heilsuráðgjöf. Tveir fyrirlestrar á fimmtudaginn, þar af annar á ensku. Ég þurfti að stíga vel út fyrir þægindarammann þar og hafði bara gott af því, alltaf svo hollt að ögra sér og fullkomnunaráráttunni! Endaði svo vinnuvikuna mína með dásamlegu englunum mínum í yoga nidra áðan og nú getur helgin komið🙏🏻 Mikið ofboðslega er ég þakklát fyrir lífið mitt og ykkur sem gerið mér kleift að vinna við það sem ég elska mest💙🫶🙏🏻

Fyrir hvað ert þú þakklát/ur?

Góða helgi☺️💙

08/04/2026

Teygjur, triggerpunktar og yoga nidra hefst í næstu viku!

Viltu losna við stoðkerfisverki, vinna með bandvefinn og fá góða slökun inn í taugakerfið?

Þá er þetta námskeið klárlega fyrir þig, unnið með liðleika, styrk og djúpslökun í lok hvers tíma💙🫶

Vídeó fyrir athygli🥳 ég og besti í kósakkalimbói í hádeginu. ! 💙💪🫶

Nánari upplýsingar og skráning:

ps://book.sinna.is/birtaheilsa/scheduled/services/137424

Heilsudjamm!Alveg glænýtt í boði fyrir smærri hópa (12-14 manns)Býð upp á sérsniðið hópefli fyrir vinkonu/vina hópa, sau...
02/04/2026

Heilsudjamm!

Alveg glænýtt í boði fyrir smærri hópa (12-14 manns)

Býð upp á sérsniðið hópefli fyrir vinkonu/vina hópa, saumaklúbba, fjölskyldur, bókaklúbba, vinnustaði og bara alla sem vilja💙

Heilsudjamm er klárlega besta djammið💙🫶

Allar upplýsingar á Sinna🥳

Ykkar, KB

29/03/2026

Síðustu námskeið fyrir sumarið💙

Nokkrar dýnur lausar🫶

TAKK öll fyrir að koma og vera með og treysta mér fyrir ykkur💙 Vinnan mín er ein stærsta gjöf sem mér hefur hlotnast. Það er fátt jafn gefandi og að hjálpa fólki að líða betur🙏🏻💙

Ást og ylur, ykkar KB

Birta Heilsa býður upp á vinnustofu í apríl fyrir konur sem hafa fengið brjóstakrabbamein og lokið meðferð.Vinnustofan e...
24/03/2026

Birta Heilsa býður upp á vinnustofu í apríl fyrir konur sem hafa fengið brjóstakrabbamein og lokið meðferð.

Vinnustofan er sambland af fræðslu og æfingum. Fjallað verður um:

🩷Bandvefinn og mikilvægi þess að vinna með hann eftir áföll og aðgerðir eins og brjóstakrabbamein.

🩷Öndun/taugakerfið og leiðir til að ná betri slökun inn í það

🩷Sogæðakerfið og hvernig hægt er styrkja það með ýmsum leiðum.

🩷Teygjur og æfingar fyrir allan líkamann sem miða að því að hjálpa til við að losa um stífan bandvef, sem getur dregið úr leiðniverkjum og sérstök áhersla verður lögð á bringu- og axlarsvæði.

🩷Æfingar sem styðja við og styrkja sogæðakerfið

🩷Yoga nidra djúpslökun, sem hvílir hugann og gefur líkamanum tækifæri til að vinda ofan af sér eftir mikið álag.

Um kennarann:
Kristín Berta greindist sjálf með brjóstakrabbamein árið 2021 og byggir á eigin reynslu.

Nánari upplýsingar og skráning:

https://www.sinna.is/birtaheilsa

Apríl dagskrá Birtu Heilsu komin í loftið💙*Teygjur, triggerpunktar og yoga nidra, 6 vikna námskeið - síðustu námskeið fy...
23/03/2026

Apríl dagskrá Birtu Heilsu komin í loftið💙

*Teygjur, triggerpunktar og yoga nidra, 6 vikna námskeið - síðustu námskeið fyrir sumarfrí, 2 tímasetningar í boði

*Brjóstakrabbamein og hvað svo? - Vinnustofa fyrir allar konur sem hafa fengið brjóstakrabbamein og hafa lokið meðferðum , helgina 11.-12. apríl.

*Yoga nidra - 10. apríl

Skráning og nánari upplýsingar

https://www.sinna.is/birtaheilsa eða í appinu💙

Hlýjar, KB

18/03/2026

Nýtt sem ég er að uppgötva eftir 2 umferðir af lifrarhreinsun!!🥳🫶💙

Address

Borgartún 28, 2. Hæð
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Birta Heilsa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Birta Heilsa:

Share