06/06/2024
Síðastliðinn laugardag lauk ég námi við Dáleiðsluskóla Íslands og er útskrifaður þaðan sem klínískur dáleiðandi og sérfræðingur í Hugrænni endurforritun sem er einstök dáleiðslumeðferð og á sér enga hliðstæðu í heiminum. Auðvitað mæli ég með að hver sem er lesi bókina eftir Ingiberg Þorkelsson, lærimeistara minn og vin, en hér má sjá stutta yfirferð um meðferðina: daleidsla.is/hef
Þrátt fyrir þennan áfanga hef ég verið iðinn við dáleiðslumeðferð undanfarna mánuði og árangurinn hefur ekki staðið á sér. Fjöldi ánægðra skjólstæðinga og það er ákaflega ánægjulegt að sífellt fjölgar í hópnum sem ég hef alltaf stefnt að því að sinna - karlmenn sem eiga við kynferðistengdan vanda að stríða, til að mynda klámvanda. Það hefur tæplega farið framhjá neinum sem þekkir mig að þetta hefur verið aðalatriðið í öllum mínum störfum og námi undanfarin ár, með tilheyrandi ritgerðarskrifum, viðtölum og fjölmiðlaumfjöllun.
Núna er staðan er hins vegar sú að ég get sagt að ég sé byrjaður að vinna með það sem ég ætlaði mér. Styðja við tiltekinn hóp sem hefur enga athygli fengið. Það segir kannski eitthvað að hver einasti karlmaður sem hefur komið til mín vegna þessa hefur tekið sérstaklega fram hversu ánægjulegt er að einhver sé að gera þetta. Ég verð að viðurkenna að það kemur ekkert á óvart, ég vissi alveg hvað ég var að fara út í. Núna hins vegar skiptir máli að það fjölgi í þeim hópi sem kemur til mín og fá þessa aðstoð. Meðfylgjandi umsögn er sérstaklega lýsandi fyrir árangurinn.
Þrátt fyrir þennan markhóp sem ég vil sérstaklega fá til mín eru dyrnar opnar fyrir hvers kyns vandamál, stór sem smá! Hugræna endurforritun og dáleiðslumeðferð almennt er hægt að nýta á svo óheyrilega fjölbreyttan máta, þar á meðal fyrir íþróttafólk. Aftur, þeir sem þekkja mig vita að ég hef nánast alla ævi verið í einhvers konar íþróttum. Þess vegna er kannski engin furða að ég hef sérstakan áhuga á að vinna með íþróttafólki, sérstaklega íþróttafólki í hæstu þrepunum þar sem smæstu smáatriði geta fleytt þeim úr efri lögum hópsins upp á toppinn.
Eins og mér einum er lagið er þetta orðið allt of langt.
Ef einhver vill fræðast um dáleiðslu, dáleiðslumeðferð og Hugræna endurforritun þá skal ekki hika við að hafa samband!👌