Þraut - miðstöð vefjagigtar og tengdra sjúkdóma

Þraut - miðstöð vefjagigtar og tengdra sjúkdóma Þraut ehf býður upp á heilbrigðisþjónustu fyrir fólk með vefjagigt og tengda sjúkdóma ti

Háskólinn í Reykjavík óskar eftir þátttakendum í rannsókn.
21/10/2024

Háskólinn í Reykjavík óskar eftir þátttakendum í rannsókn.

GETA býður líka upp á verkjanámskeið sem er sérstaklega sniðið að fólki með slitgigt. Skráning er á netinu á geta.health
10/05/2024

GETA býður líka upp á verkjanámskeið sem er sérstaklega sniðið að fólki með slitgigt. Skráning er á netinu á geta.health

Þeir sem eru að kljást við sífellda höfuðverki vita hversu hamlandi það getur verið. GETA býður upp á námskeið sem getur...
10/05/2024

Þeir sem eru að kljást við sífellda höfuðverki vita hversu hamlandi það getur verið. GETA býður upp á námskeið sem getur hjálpað til við að auka vellíðan. Skráning er á netinu á geta.health

Örfá sæti laus :)
19/01/2024

Örfá sæti laus :)

Heilsueflandi dagskrá með fræðslu til að bæta heilsu kvenna. Tilvalin ferð fyrir þær sem eru með vefjagigt og tengda sjúkdóma. Gleði og glens er stór hluti af dagskránni því að það bætir, hressir og kætir ásamt því að gera þig fallega og hraustlega. Gist er á Spring Hotel...

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.  Jólakveðjur frá starfsfólki Þrautar
20/12/2023

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Jólakveðjur frá starfsfólki Þrautar

Viltu taka þátt í rannsókn varðandi þjónustu heilsugæslunar við fólk með vefjagigt? Sjá auglýsingu hér að neðan
23/10/2023

Viltu taka þátt í rannsókn varðandi þjónustu heilsugæslunar við fólk með vefjagigt? Sjá auglýsingu hér að neðan

Nú endurtökum við leikinn!!Sigrún sjúkraþjálfari og Inga hjúkrunarfræðingur verða með námskeið fyrir konur á Tenerfie í ...
19/09/2023

Nú endurtökum við leikinn!!

Sigrún sjúkraþjálfari og Inga hjúkrunarfræðingur verða með námskeið fyrir konur á Tenerfie í apríl nk. Í samvinnu við ferðaskrifstofuna Skotgöngu. Námskeið ber heitið „af líkama og sál“ og verður haldið á morgnana (einn frídagur) og síðan verða í boði rútu og gönguferðir eftir hádegi með hinni einu og sönnu Ingu Geirsdóttir hjá Skotgöngu. Síðan er bara sól og sæla þess á milli. Hótelið er á besta stað á amerískuströndinni.
Sjá nánari upplýsingar hér:

https://www.skotganga.co.uk/thraut-tenerife?fbclid=IwAR10h8DKPhcnE3xSabfW1uCAZNWT9SdGeyW5Np3LfSzuHBdUaLzSE5WBZiw

ATH það er takmarkað framboð á einstaklingsherbergjum þannig fyrstu kemur fyrstur fær.

Síðast var uppselt!!!

Lifum og njótum 😊

Hugleiðsluhópar fyrir konur með vefjagigt
24/08/2023

Hugleiðsluhópar fyrir konur með vefjagigt

Gleðilegt nýtt ár 2023Nú  er Þraut að hefja sitt  12. starfsár þar sem við höfum að leiðarljósi að  bæta þekkingu, heils...
03/01/2023

Gleðilegt nýtt ár 2023

Nú er Þraut að hefja sitt 12. starfsár þar sem við höfum að leiðarljósi að bæta þekkingu, heilsu og lífsgæði fólks sem til okkar leita. Ár hvert koma um 240 manns í greiningu- og endurhæfingarmat og stór hluti þessa hóps kemur síðan í endurhæfingu. Ásókn í Þraut eykst jafnt og þétt sem hefur valdið því að biðlistinn lengist og lengist. Nú erum um 740 manns sem bíða eftir þjónustu hjá Þraut.

Hjá Þraut er boðið upp á grunnnámskeið um vefjagigt sem er einnig ætlað aðstandendum. Lengri endurhæfingarúrræði sem boðið er upp á er Morgunþraut þar sem endurhæfing fer fram á 11 vikna tímabili og Síðdegisþraut sem fer fram síðdegis eins og nafnið bendir til og stendur yfir í 5- 6 mánuði.

Vefjagigt er krónískur verkjasjúkdómur sem læknast ekki með skurðaðgerð eða lyfjatöku. Markmið meðferðar er að hindra frekari versnun sjúkdómsins og jafnframt vinna markvisst að því að gera vefjagigtina betri frá einum tíma til annars.

Á Íslandi eru amk 1500 vefjagigtarsjúklingar með 75% örorku.

Vefjagigt er grafalvarlegt mál sem þarf að taka föstum tökum.

Það verður að stytta biðlista!

Þekking, hugvit, tæki og tól eru nú þegar til staðar innan íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Sérhæft vefjagigtarteymi er til staðar sem þarf á vilja og stuðningi heilbrigðisyfirvalda að halda.
Nýtt ár með nýjum áskorunum og von um að hægt sé að veita vefjagigtarfólki rétta þjónustu á réttum tíma.

Nýárskveðja frá Þrautarteyminu

11/10/2022

Address

Höfðabakki 9
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 14:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Þraut - miðstöð vefjagigtar og tengdra sjúkdóma posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Þraut - miðstöð vefjagigtar og tengdra sjúkdóma:

Share