
02/07/2024
Ég er samt ekkk hætt en verð á öðrum stað. Best er að hafa samband við mig beint hér fyrir þá sem vilja tíma í haust.
Kæru viðskiptavinir, það er með trega sem við verðum að tilkynna að Tulip snyrti- og fótaaðgerðastofa mun loka þann 30. september næstkomandi. Þessi ákvörðun var ekki auðveld og við erum svo þakklátar fyrir ykkur öll sem hafið valið að koma til okkar í gegnum árin. Við metum ykkur mikils og erum ævinlega þakklátar fyrir viðskiptin og alla þá vináttu sem þið hafið sýnt okkur.❤️
Að því er varðar gjafabréf þá hvetjum við alla sem eiga slík að nýta þau, það eru ekki margir lausir tímar fram að lokun svo að endilega heyrið beint í þeirri sem þið eigið gjafabréf hjá og við finnum lausn.❤️ Við viljum einnig taka það fram að ykkur er velkomið að taka gjafabréfin út í vörum fyrir þá sem það hentar.❤️
Athugið að Hafdís fótaaðgerðafræðingur hefur störf á annarri stofu í október. Viðskiptavinir hennar geta haft beint samband við hana til að fá tíma eftir að Tulip lokar.
Með bestu kveðju og stútfullt hjarta af þakklæti,
Stelpurnar á Tulip.❤️