Jógasetrið.

Jógasetrið. Jógasetrið, staðsett í Skipholti 50c, er vettvangur fyrir jógaiðkun fyrir alla aldurshópa. byrjendur og lengra komna, börn og Sjá nánar: www.jogasetrid.is

Í Jógasetrinu er boðið upp á jógaflæði, hatha jóga, kundalini, jóga nidra, karlajóga, meðgöngujóga, mömmujóga, krakkajóga, jóga fyrir 60+, gong slökun. Einnig kennaranámskeið og ýmis önnur námskeið í Reykjavík eða utanbæjar. Nánar http://jogasetrid.is/

13/03/2026

Meðgöngujóga by admin | Uncategorized Meðgöngujóga MEÐGÖNGUJÓGA ALLT ÁRIÐ Við skráningu verður kortið þitt virkt og þú getur byrjað strax að mæta.Þú getur valið úr öllum meðgöngutímum í stundatöflu. Í boði er að velja 3 meðgöngutíma í viku, en einnig aukatíma, ...

Kvennakraftur í jóganáminu í Jógasetrinu á alþjóðlegum kvennadegi. Til hamingju konur ! Mögnuð umbreyting þegar við virð...
08/03/2026

Kvennakraftur í jóganáminu í Jógasetrinu á alþjóðlegum kvennadegi. Til hamingju konur ! Mögnuð umbreyting þegar við virðum sköpunarkraftinn og og heiðrum Gyðjuna

ALLIR AÐ HORFA........ þetta er okkar nálgun í Jógasetrinu
07/03/2026

ALLIR AÐ HORFA........ þetta er okkar nálgun í Jógasetrinu

Enjoy the videos and music you love, upload original content, and share it all with friends, family, and the world on YouTube.

Tímar kl. 10 og 11.30 falla niður á laugardag vegna kennaranáms. Velkomið að skoða netpakkana!Verið velkomin í Kundalini...
06/03/2026

Tímar kl. 10 og 11.30 falla niður á laugardag vegna kennaranáms. Velkomið að skoða netpakkana!

Verið velkomin í Kundalini jóga á sunnudag kl. 10.00 og Krakkajóga á sínum stað kl. 11.30 og 12.30

NETJÓGA: Fyrsti tíminn frítt í hverjum pakka1

NETJÓGA - ÞÚ HEIMA MEÐ ÞÉR!
Fjölbreyttir jógapakkar

https://www.jogasetrid.is/netjoga-blandad/

Kæru vinir!Lækkað verð og hagstæðari einstaklingsherbergi. Mikið hlakka ég til. Svo er elsku Guðrún bæði jógakennari, Tó...
06/03/2026

Kæru vinir!
Lækkað verð og hagstæðari einstaklingsherbergi. Mikið hlakka ég til. Svo er elsku Guðrún bæði jógakennari, Tónheilari og mjög reyndur fararstjóri á Krít...... þar sem hún býr og þekkir allt svo vel. Þetta verður dýrð og dásemd! Ertu með?

🧘‍♀️ Jógagleði á Krít – 4.–15. júní
með Auði Bjarnadóttur og Guðrúnu Þorsteins

✨ Kvennaferð – næring fyrir líkama og sál
Tilvalin ferð fyrir vinkonur, systur og mæðgur sem vilja stíga út úr amstri dagsins og fyllast orku, gleði og vellíðan í fallegu umhverfi á Krít.

Í 11 nætur njótum við dásamlegra daga þar sem morgnarnir hefjast með jóga og hugleiðslu á ströndinni og síðdegis slökum við á með mjúku jóga, jóga nidra og tónheilun með kristal skálum. Fræðsla um jógafræðin, djúpslökun og gefandi samvera skapa einstaka stemningu þar sem streitan fær að líða úr okkur og jafnvægið að taka við.

Við sameinum hreyfingu, slökun og gleði – njótum góðs matar, fallegrar náttúru, hita og sólar. Einnig förum við í sérsniðna kynnisferð fyrir hópinn, heimsækjum heillandi strandbæi og njótum sameiginlegs lokahófs.

🏨 Gist verður á fallega hótelinu Porto Platanias Beach Resort & Spa við ströndina í Platanias – með stórum sundlaugargarði, veitingastöðum og heilsulind (aðgangur gegn gjaldi).

Innifalið:

✔️ Flug og skattar
✔️ 20 kg innrituð taska + 8 kg handfarangur
✔️ Akstur til og frá flugvelli
✔️ Jóga, hugleiðsla og tónheilun samkvæmt dagskrá
✔️ 11 nætur á 4★ hóteli með morgun- og kvöldverði
✔️ Sérsniðin kynnisferð og lokahóf

Heimsferðir bjóða einnig upp á fjölbreyttar aukferðir fyrir þær sem vilja meira ævintýri – t.d. í Samaria gljúfrið, Knossos, siglingar, SUP og fleira.

💛 Gefðu þér tíma. Nærðu þig. Andaðu.
Tryggðu þér sæti í þessari einstöku kvennaferð í júní.
👉 Bókaðu hér: https://fitravel.link/fdoqk

26/02/2026

Address

Skipholt 50c
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jógasetrið. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Jógasetrið.:

Share

Share on Facebook Share on Twitter Share on LinkedIn
Share on Pinterest Share on Reddit Share via Email
Share on WhatsApp Share on Instagram Share on Telegram

Category