Blindravinnustofan

Blindravinnustofan Blindravinnustofan er vinnu- og starfsþjálfunarstaður blindra og sjónskertra einstaklinga í eigu Blindrafélagsins
👨‍🦯‍➡️👩‍🦯👩‍🦯‍➡️👨‍🦯 rúmdýnur og vöggur.

Saga Blindravinnustofunnar


Upphafið
Blindravinnustofan var stofnuð í októbermánuði árið 1941. Markmið hennar og tilgangur var þá að veita blindu fólki stöðuga atvinnu sem það gæti stundað sér til lífsviðurværis. Fram að því hafði margt blint fólk starfað á vinnustofu á vegum Blindravinafélags Íslands, en vinna þar var oft stöpul og vildi blint fólk sjálft ráða fyrir sér í atvinnumálum líkt og þ

að vildi sjálft vera í forsvari fyrir réttindamálum sínum. Hópur blinds fólks hafði þá, tveimur árum fyrr, stofnað Blindrafélagið og Blindravinnustofan var þá, og hefur ætíð verið, í eigu Blindrafélagsins. Fyrstu árin starfaði aðallega blint fólk á vinnustofunni, en þegar fram liðu stundir fjölgaði sjónskertum starfsmönnum. Í dag starfar þar samhentur hópur fólks með skerta sjón eða enga auk þess sem margir starfsmenn hafa einhvers konar viðbótarfötlun eða eru að takast á við sjúkdóma. Húsnæðið
Fyrstu tvö starfsárin var vinnustofan til húsa að Laugavegi 97, en árið 1943 fluttist hún í húsnæði að Grundarstíg 11 sem Blindrafélagið hafði þá nýlega fest kaup á. Árið 1961 var eldri álma húss Blindrafélagsins, að Hamrahlíð 17, tilbúin til notkunar og flutti vinnustofan þangað og er þar enn. Rúmum áratug síðar var nýrri álma Hamrahlíðar 17 tekin í notkun og þá jókst húsplássið enn meira. Verkefnin
Í byrjun voru helstu verkefnin framleiðsla og sala á burstum. Fyrstu starfsár vinnustofunnar var oft erfitt um aðföng þar sem síðari heimstyjöldin var þá í algleymingi og erfitt að kaupa hráefni til burstagerðar frá öðrum löndum. Blindrafélagið brá þá á það ráð að kaupa trésmíðavél til þess að starfsmenn vinnustofunnar gætu sjálfir smíðað burstabök. Síðan drógu menn strá í bökin, í höndunum, og hnýttu og þannig urðu fyrstu burstar vinnustofunnar til. Stundum reyndist erfitt að flytja inn hráefni, strá og annað sem til þurfti, og brugðu menn þá á það ráð að framleiða barnaleikföng úr tré og selja, einkum fyrir jólin. Handídrátturinn var tímafrek og, á stundum, erfið vinna og fljótlega eftir stofnun vinnustofunnar áttuðu menn sig á því að bæta mætti hag hennar og afköst verulega með því að kaupa vélar til burstaframleiðslunnar og fjárfestu í öflugri burstavél sem jók framleiðsluna verulega. Á þeim árum voru einkum framleiddir uppþvottaburstar, en einnig gólfskrúbbar, sópar og fleiri burstategundir.



Á áttunda áratugnum háði vinnustofan harða samkeppni við innflutning á burstum og brugðust menn við minnkandi sölu með því að efla framleiðslugetuna, bæði með frekari vélvæðingu og burstategundum var fjölgað. Handídráttur lagðist alfarið af árið 1985 og eftir það voru burstar eingöngu framleiddir í vélum.



Á 9. áratugnum voru enn keyptar afkastameiri og öflugri framleiðsluvélar og framleiðslan jókst auk þess sem hafinn var innflutningur á öðrum ræstiáhöldum. Tíundi áratugurinn var eitt mesta blómaskeið vinnustofunnar hvað fjárhagslega veltu varðar. Á árunum 1990 til 2000 rak vinnustofan öfluga innflutnings- og söludeild og flutti inn mikið magn af alls kyns ræstiáhöldum sem seld voru á almennum neytendamarkaði auk þess sem mikið af áhöldum voru seld til ýmissa fyrirtækja og stofnanna. Einkum voru þetta skúringamoppusett, rykmoppusett, hanskar, ræstivagnar og ýmislegt sem tengist ræstingu og þrifum.



Árið 2002 var allri burstaframleiðslu vinnustofunnar hætt þar sem kostnaður við framleiðsluna var of hár og verð því ekki samkeppnishæft við innflutta bursta. Blindravinnustofan var, um áratugaskeið, eitt öflugasta burstaframleiðslufyrirtæki landsins og vörumerki hennar og framleiðsla er flestum landsmönnum kunn.



Í dag selur vinnustofan eingöngu innflutta bursta og önnur ræstiáhöld. Sumar vörutegundir eru aðkeyptar frá öðrum innflytjendum en aðrar flytur vinnustofan inn sjálf. Vinnustofan tekur einnig að sér að meðhöndla vöru annarra, eins og flokka, pakka, merkja og þess háttar. Körfugerðin
Eitt af því sem margir landsmenn þekkja vel eru barna- og dúkkuvöggur sem framleiddar voru og seldar hjá Blindravinnustofunni.



Árið 1970 stofnaði einn af félagsmönnum Blindrafélagsins körfugerðarverkstæði og fékk leigða aðstöðu í húsi Blindrafélagsins. Þegar hann féll frá, árið 1982, keypti Blindrafélagið körfugerðarverkstæðið og rak það til ársins 1995 að allri körfugerð á vegum félagsins var hætt. Körfugerðarverkstæði Blindrafélagsins framleiddi m.a. barna- og dúkkuvöggur, körfur undir óhreina tauið, ruslakörfur og tók að sér viðgerðir á körfum og húsgögnum úr tágum. Blindravinafélag Íslands rak einnig körfugerð og seldi framleiðslu sína, barna og dúkkuvöggur, í Ingólfsstræti 16. Sú framleiðsla og sala stóð mun lengur eða fram yfir árið 2000. Þá rak annar af félagsmönnum Blindrafélagsins verkstæði á Akureyri, þar sem hann framleiddi og seldi ýmislegt, s.s. Eftir að Blindravinafélagið lokaði verslun sinni í Ingólfsstrætinu og framleiðslunni á Akureyri var hætt sökum aldurs eigandans kom tímabil þar sem handgerðar vöggur voru ófáanlegar og engin viðgerðarþjónusta var í boði. Í dag rekur einn af félagsmönnum Blindrafélagsins körfugerð þar sem hann fléttar og selur barna- og dúkkuvöggur og tekur einnig að sér viðgerðir á vöggum. Reksturinn
Fyrstu þrjá áratugina var Blindravinnustofan rekin sem eins konar samvinnufélag innan Blindrafélagsins, en síðan yfirtók félagið vinnustofunna sem beinan lið í starfsemi sinni. Varð sú yfirtaka mikil hagsbót fyrir vinnustofunna og upp frá því voru starfsmenn hennar ekki háðir því fyrirkomulagi að fá laun í samræmi við rekstrarafkomu hennar. Árið 1996 var rekstrarformi vinnustofunar breytt og hún gerð að einkahlutafélagi í eigu Blindrafélagsins. Þá varð sú breyting á yfirstjórn vinnustofunnar að stjórn Blindrafélagsins skipaði henni sérstaka stjórn og ráðinn var framkvæmdastjóri sem eingöngu var ætlað að stýra daglegum rekstri hennar, en fram að því hafði stjórn Blindrafélagsins farið með stjórn hennar.

Gleðilega páska frá starfsfólki Blindravinnustofunnar 🐣
16/04/2025

Gleðilega páska frá starfsfólki Blindravinnustofunnar 🐣

Alltaf nóg að gera hjá okkur á Blindravinnustofunni 💙
11/04/2025

Alltaf nóg að gera hjá okkur á Blindravinnustofunni 💙

Jæja! þá er Leiðsöguhundadagatal ársins 2025 farið úr húsi og ætti að detta inn á gólf í öllum helstu verslunum Nettó og...
03/01/2025

Jæja! þá er Leiðsöguhundadagatal ársins 2025 farið úr húsi og ætti að detta inn á gólf í öllum helstu verslunum Nettó og Bónus á næstu dögum!

Blindravinnustofan sá einmitt um að pakka saman þessari einstöku vöru sem í ár skartar afreks sundkappann og tónlistarmanninn Már Gunnarsson og leiðsöguhundinn hans Max.

Dagatalið er ekki einungis gagnlegt til að halda utan um mikilvægar dagsetningar í lífi fólks heldur er það líka leið til þess að styðja við gott málefni. 🦮 🥰

Auðvitað er síðan hægt að nálgast dagatalið inn á vefverslun Blindrafélagsins í eftirfarandi hlekk: https://www.blind.is/is/vefverslun/leidsoguhundadagatalid/dagatal

Allur ágóði dagatalsins fer í kaup og þjálfun leiðsöguhunda en eins og er þá eru sextán leiðsöguhundar starfandi hér á landi og mikilvægt er að geta viðhaldið leiðsöguhundaverkefninu vel!

Fer að líða að jólahreingerningunni?Vörur Blindravinnustofunnar fást Bónus og HagkaupMeð því að kaupa vörur eða þjónustu...
10/12/2024

Fer að líða að jólahreingerningunni?

Vörur Blindravinnustofunnar fást Bónus og Hagkaup

Með því að kaupa vörur eða þjónustu Blindravinnustofunnar leggur þú þitt af mörkum til þess að styðja blint og sjónskert fólk til sjálfstæðis.

Jólin byrja snemma hjá Blindravinnustofunni!Hér er verið að ljúka við pökkun á súkkulaðidagatölum ☺️
15/10/2024

Jólin byrja snemma hjá Blindravinnustofunni!

Hér er verið að ljúka við pökkun á súkkulaðidagatölum ☺️

Gólfklútur, þessi gamli góði!Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og HagkaupMeð því að kaupa vörur eða þjónustu...
30/08/2024

Gólfklútur, þessi gamli góði!

Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og Hagkaup

Með því að kaupa vörur eða þjónustu Blindravinnustofunnar leggur þú þitt af mörkum til þess að styðja blint og sjónskert fólk til sjálfstæðis.

Á að þrífa bílinn um helgina?Plastfötur í mörgum litum!Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og HagkaupMeð því a...
23/08/2024

Á að þrífa bílinn um helgina?

Plastfötur í mörgum litum!

Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og Hagkaup

Með því að kaupa vörur eða þjónustu Blindravinnustofunnar leggur þú þitt af mörkum til þess að styðja blint og sjónskert fólk til sjálfstæðis.

Fægiskófla með gúmmíkanti.Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og HagkaupMeð því að kaupa vörur eða þjónustu Bl...
16/08/2024

Fægiskófla með gúmmíkanti.

Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og Hagkaup

Með því að kaupa vörur eða þjónustu Blindravinnustofunnar leggur þú þitt af mörkum til þess að styðja blint og sjónskert fólk til sjálfstæðis.

Örtrefjaklútar, eru til í mörgum litum og góðir við öll tækifærisþrif.Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og H...
09/08/2024

Örtrefjaklútar, eru til í mörgum litum og góðir við öll tækifærisþrif.

Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og Hagkaup

Með því að kaupa vörur eða þjónustu Blindravinnustofunnar leggur þú þitt af mörkum til þess að styðja blint og sjónskert fólk til sjálfstæðis.

Gólfskrúbba, til í mörgum litum.Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og HagkaupMeð því að kaupa vörur eða þjónu...
02/08/2024

Gólfskrúbba, til í mörgum litum.

Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og Hagkaup

Með því að kaupa vörur eða þjónustu Blindravinnustofunnar leggur þú þitt af mörkum til þess að styðja blint og sjónskert fólk til sjálfstæðis.

Skúringarmoppur fyrir öll tækifæri!Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og HagkaupMeð því að kaupa vörur eða þj...
26/07/2024

Skúringarmoppur fyrir öll tækifæri!

Vörur frá Blindravinnustofunni - fást í Bónus og Hagkaup

Með því að kaupa vörur eða þjónustu Blindravinnustofunnar leggur þú þitt af mörkum til þess að styðja blint og sjónskert fólk til sjálfstæðis.

Blindravinnustofan gegnir mikilvægu hlutverki í því að skapa blindu, sjónskertu og öðru fólki með fötlun atvinnu. Mikilv...
15/01/2024

Blindravinnustofan gegnir mikilvægu hlutverki í því að skapa blindu, sjónskertu og öðru fólki með fötlun atvinnu. Mikilvægasti hluti starfseminnar er pökkun á hreinlætisvörum sem seldar undir merkjum Blindravinnustofunnar.

Hér má sjá þær helstu ræstingarvörur frá Blindravinnustofunni uppsettar í Bónus.

Með því að kaupa vörur eða þjónustu Blindravinnustofunnar leggur þú þitt af mörkum til þess að styðja blint og sjónskert fólk til sjálfstæðis.

Address

Reykjavík

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3545250025

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Blindravinnustofan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Blindravinnustofan:

Share