Sálfræðisetrið

Sálfræðisetrið Sálfræðileg greining og meðferð fullorðinna. Hjá Sálfræðisetrinu ehf.

starfar einn sálfræðingur á sviði klínískrar sálfræði fullorðinna sem einnig hefur samning við Sjúkratryggingar Íslands um meðferð barna undir 18 ára.

- Sigríður Karen Bárudóttir, cand.psych, sérfræðingur í klínískri sálfræði og réttarsálfræði. S: 894-3323

Hægt er að bóka tíma með því að hringja í símanúmer okkar: 537 3033, eða með því að senda tölvupóst til timabokun@salfraedisetrid.is og þú verður skráður á bið eftir meðferð hjá Karen.

Fylgjum þessu eftir
08/04/2025

Fylgjum þessu eftir

Efla á for­varnir og setja börn í önd­vegi með 5,7 milljarða niðurskurði

Geðheilbrigðismál komust á dagskrá í aðdraganda síðustu kosninga og voru frambjóðendur flestra flokka sammála að málaflokkurinn hefði verið vanræktur sl. ár og jafnvel áratugi. Geðhjálp hefur tekið saman tölur um útgjöld til geðheilbrigðismála á árunum 2014 til 2023 og hversu mikil innviðaskuldin við málaflokkinn er miðað þau lönd sem við viljum bera okkur saman við. Niðurstöðurnar eru þær að við vanræktum geðheilbrigðiskerfið um 190 ma.kr. á þessum 10 árum.

Eftir kosningar var mynduð ríkisstjórn flokka sem höfðu talað með nokkuð afgerandi hætti um að geðheilbrigðiskerfið hefði setið á hakanum. Í málefnasamningi flokkanna eru sett fram markmið samstarfsins og þar segir í 14. markmiði: „Sérstök áhersla verður lögð á að stytta biðlista barna, auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og fjármagna meðferðarúrræði vegna fíknivanda.“

Fjármálaáætlun til 2030

Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, sem lögð var fram í síðustu viku, má lesa eftirfarandi fyrirheit í tengslum við geðheilbrigðismál:

• Þá er áhersla lögð á að stytta biðlista barna, auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og efla meðferðarúrræði vegna fíknivanda. (Bls. 55)
• Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar verður aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu aukið, óháð aldri og meðferðarúrræði vegna vímuefnavanda efld. (Bls. 169)
• Sérstök áhersla verður á að efla almenna og sérhæfða heimahjúkrun, fjölbreytta geðheilbrigðisþjónustu og nýsköpun þar sem hún getur stuðlað að betri meðferð, þjónustu og nýtingu mannafla. (Bls. 169)
• Sérstaklega skal efla aðgengi barna og ungmenna að íþróttum, listum og frístundastarfi. (Bls. 155)
• Ríkisstjórnin setur málefni barna og ungmenna í öndvegi og hefur boðað sókn í menntamálum með áherslu á bætt umhverfi nemenda og kennara, íslenskukennslu, læsi og aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum, stuðning við menntakerfið, inngildingu, snemmtæka íhlutun, sí- og endurmenntun og raunfærnimat. Stefna málefnasviðs 22 endurspeglar þær áherslur. (Bls. 164)
• Forvarnir verða efldar til að bæta heilsu og unnið verður að því að draga skipulega úr skriffinnsku í heilbrigðis- og velferðarkerfinu og hagnýta betur tæknilausnir og nýsköpun á sviði heilbrigðis- og velferðarmála til hagsbóta fyrir landsmenn alla óháð búsetu. (Bls. 185)

Góð fyrirheit en lítið fjármagn

Allt eru þetta góð fyrirheit en því miður fylgja þessum áherslum afar takmarkaðir fjármunir. Það er ljóst að áralöng vanræksla málaflokksins verður ekki leiðrétt á nokkrum mánuðum enda innviðaskuldin mjög stór en málaflokkurinn hefði þurft miklu afgerandi viðbragð frá stjórnvöldum. Öryggisvistun, sem átti til skamms tíma að rísa í Reykjanesbæ en hefur ekki náð í gegn sl. fimm ár, kemst loksins á áætlun og auk þess er gert ráð fyrir að fjölga legurýmum á réttargeðdeild. Þetta tvennt kostar samkvæmt áætluninni 5 ma. kr. samtals á tímabilinu. Einnig er gert ráð fyrir 2,3 ma.kr. „vegna áherslumála ríkisstjórnarinnar svo sem í geðheilbrigðismálum og til styrkingar heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa.“(Bls. 169).

Hvað varðar að efla aðgengi barna og ungmenna að íþróttum, listum og frístundastarfi að þá er dregið úr framlögum til málaflokksins um 3,5 ma.kr. á tímabilinu. Sóknin í málefnum barna og áherslan á bætt umhverfi í þeirra er verðlögð með sparnaði upp á 1,5 ma.kr. Það á einnig að efla forvarnir með því að draga úr framlögum til málaflokksins um 700 m.kr. tímabilinu. Það segir sig sjálft að aðgengi verður ekki aukið, umhverfi barna verðir ekki bætt og forvarnir ekki efldar með tæplega 10% niðurskurði fjármagns.

Nýtt húsnæði geðdeildar ekki á dagskrá

Í fjármálaáætlun til ársins 2030 er hvergi að finna nýja geðdeild. Vafalaust verður þeirri skýringu haldið á lofti að enn sé verið að vinna í staðsetningu en sú skýring er aum. Fjármálaáætlun endurspeglar áherslur ríkisstjórnar á hverjum tíma. Með því að segjast ætla að gera eitthvað og eyrnamerkja verkefninu um leið fjármagn þá er það komið á dagskrá. Það að segjast ætla að stytta biðlista og setja geðheilbrigðismál í forgang en eyrnamerkja enga eða takarkaða peninga verkefninu þá eru málin ekki komin á dagskrá.

Fjármálaáætlun gerir ráð fyrir aukningu upp 7,3 ma.kr. samtals til málaflokksins til ársins 2030 en af því eru framkvæmdir 5 ma.kr. og 2,3 ma.kr. sem á að auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og til styrkingar heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa. Þetta er í raun eina viðbótar fjármagnið sem sett verður í málaflokk sem hefur verið sveltur um 190 ma. kr. sl. 10 ár. Framlög í forvarnir, lýðheilsu og umhverfi barna í grunnskólum er skorin niður um 5,7 ma.kr. Á sama tíma er gert ráð fyrir 11 ma.kr. innspýtingu til öryggis- og varnarmála.

Skrifum nýja fjármálaáætlun sem setur geðheilbrigði í öndvegi

Það hefur legið fyrir í áraraðir að heilbrigðiskerfið á Íslandi hefur verið vanfjármagnað og geðheilbrigðiskerfið alveg sérstaklega. Þessi staða er ekki vegna óheppni eða tilviljunar. Þetta er ákvörðun okkar sem samfélags. Afleiðingarnar af fjársvelti geðheilbrigðiskerfisins blasa við. Viðvörunaljósin hafa blikkað í mörg ár. Skortur á fagmenntuðu starfsfólki, langir biðlistar, skortur á úrræðum, takmörkuð 1. stigs þjónusta (samfélagsgeðþjónusta) og einsleit 3. stigs þjónusta (spítali), skortur á þjónustu við börn, áhugaleysi fagmenntaðs fólks á að sérhæfa sig á sviðinu, mönnunarvandi, þjónustuskortur heilt yfir, fjöldi alvarlegra atvika, skortur á framþróun og aukin geðlyfjanotkun allra aldurshópa og þá sérstaklega meðal barna og ungs fólks. Fjármálaáætlun til ársins 2030 er ekki svarið sem vanfjármagnað geðheilbrigðiskerfið þurfti. Það þarf að skrifa þessa áætlun aftur og forgangsraða upp á nýtt.

Höfundur: Grímur Atlason framkvæmdastjóri Landssamtakanna Geðhjálpar

Við hvetjum stjórnvöld eindregið til að sýna mótmæla röddum fagfólks í landinu hlustun og skilning í málum sem snerta Ja...
31/03/2025

Við hvetjum stjórnvöld eindregið til að sýna mótmæla röddum fagfólks í landinu hlustun og skilning í málum sem snerta Janus endurhæfingu og Virk.

Kærar jólakveðjur til ykkar allra og þakkir fyrir samfylgd á árinu.
24/12/2024

Kærar jólakveðjur til ykkar allra og þakkir fyrir samfylgd á árinu.

Uppbyggileg réttvísi sem miðlar málum milli gerenda og þolenda kynferðisbrota.
15/11/2024

Uppbyggileg réttvísi sem miðlar málum milli gerenda og þolenda kynferðisbrota.

Á vefmiðlinum Vísir birtist áhugaverð grein að morgni 12. nóvember s.l. undir yfirskriftinni „Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið af fenginni reynslu“.

Sumar fréttir eru mjög góðar. Kærleikur í kaos gæti verið stuðningur fyrir marga foreldra sem vilja styðja vel við börn ...
15/11/2024

Sumar fréttir eru mjög góðar. Kærleikur í kaos gæti verið stuðningur fyrir marga foreldra sem vilja styðja vel við börn með ADHD.

Kærleikur í kaos - nýtt rafrænt foreldranámskeið opnað!
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra opnaði námskeiðið með formlegum hætti og er það nú öllum aðgengilegt á vef ADHD samtakanna - sjá frétt hér að neðan.

Ofbeldi hefur ýmsar birtingamyndir.  Hér er gott að lesa sig til.
19/07/2024

Ofbeldi hefur ýmsar birtingamyndir. Hér er gott að lesa sig til.

Visit the post for more.

Address

Sundagarðar 2
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Telephone

+3545373033

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sálfræðisetrið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Share on Facebook Share on Twitter Share on LinkedIn
Share on Pinterest Share on Reddit Share via Email
Share on WhatsApp Share on Instagram Share on Telegram

Category

Our Story

Sálfræðisetrið var stofnað árið 2015, fékk einkaleyfi á nafninu ,,Sálfræðisetrið” árið 2018 og hefur farið í gegnum nokkrar breytingar í starfsmannahaldi og staðsetningu frá stofnun. Setrið hóf starfsemi með einum starfsmanni en síðar bættust við góður hópur sálfræðinga sem starfaði hjá okkur í nokkur ár. Fyrst í stað var Sálfræðisetrið í Þverholti en flutti svo á Suðurlandsbraut 46.

Nú, árið 2019 hafa svo verið gerðar þær breytingar að Sálfræðisetrið flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði að Vallarkór 4, 3. hæð, en einungis stofnandi og eigandi flutti þangað á meðan aðrir sálfræðingar færðu sig annað eða fóru í leyfi. Það hefur því verið horfið aftur til upphafs og nú starfar hjá Sálfræðisetrinu einn sálfræðingar á sviði klínískrar sálfræði fullorðinna.

- Sigríður Karen Jochums Bárudóttir, cand.psych, sérfræðingur í klínískri sálfræði og réttarsálfræði, EMDR meðferðaraðili. S: 894-3323 Hægt er að bóka tíma með því að fylla út beiðnablað á heimasíðunni: salfraedisetrid.is/contact. Athugið að nokkur bið er eftir því að komast að í meðferð hjá Karen en þegar að þér kemur mun ritari hafa samband við þig og finna hentugan tíma.