15/04/2026
Descartes sagði: „I think, therefore I am“, en hann gerði sér líklega ekki grein fyrir því að taugakerfið þróast ekki fyrst og fremst í heilanum, heldur á rætur sínar í vefjum sem síðar mynda húð líkamans. Því mætti jafnvel segja: „I am, therefore I think.“
Við erum oft með marga bolta á lofti í huganum og hugsum stöðugt fram og til baka í tíma. Það getur leitt til þess að við verðum fjarræn, ótengd og upplifum líðan á borð við kvíða og þunglyndi.
Líkaminn geymir hins vegar lykilinn að því að kyrra hugann. Með því að staldra við, vera meðvitað aðgerðarlaus um stund og tengja hugann aftur við líkamann, geta farið að gerast magnaðir hlutir.
Við Unnur Einarsdóttir höfum í mörg ár verið að kenna Restorative jóga sem gengur einmitt út á að gera sem minnst, ekki vera með tónlist eða mikið tal, heldur leyfa fólki að dvelja með sjálfu sér og finna hvernig hugurinn róast smám saman þegar líkaminn hefur stoppað.
Mæli með að kíkja á þessa tilraun sem sýnt var frá í Kastljósi um daginn - um að gera ekkert í klukkustund.
Faðir þriggja drengja á Egilsstöðum borgaði í fyrra yfir tvær milljónir króna í ferðakostnað vegna þátttöku sona hans á íþróttamótum í Reykjavík. Formaður Hattar segir kostnað farinn að valda misskiptingu í íþróttaiðkun, dæmi séu um heimili sem hafi ekki tök á að ...