Stuðningur, fræðsla og ráðgjöf fyrir þolendur ofbeldis eða annarra áfalla. Reikn 537-26-12481 kt 5709190240 Býð upp á stuðingsviðtöl með eða án dáleiðslu.
Bæði boðið er upp á viðtöl og slökunardáleiðslu en einnig dáleiðslumeðferðir og Hugræna endurforritun. Félagsfræðingur og dáleiðandi, sérhæfi mig í afleiðingum ofbeldis og áfalla.
20/04/2025
Gleðilega páska 🌾🍰🐣🐥🌼
25/12/2024
Gleðileg jól öll sem eitt🎄💖🎄
28/11/2024
Nú er það svart 🖤 "Black Friday" afsláttur: 🖤
50% afsláttur af viðtölum og dáleiðslumeðferðum bæði hjá Klínísk dáleiðsla og Líf eftir áföll
11/11/2024
Bjóðum upp á 1111 afslátt, 50% og bjóðum nú upp á að greiða með Aur og Netgíró 💙💚💛 Ef þú vilt panta viðtal og eða dáleiðslu sendu mér bara skilaboð og ég svara fljótt og gef nánari uppl.
28/10/2024
Þið sem tókuð þátt í MA rannsókninni minni fáið áfram sérstakan afslátt. Þið vitið hver þið eruð og nú þegar hafa nokkrir komið.
28/10/2024
10. okt. afslátturinn gildir fyrir alla sem bóka í október, því það eru engir lausir tímar (eins og er allavega) í okt. Þannig að ef bókað er fyrir 1. nóv. þá gildir afslátturinn þó við hittumst í nóv.
02/10/2024
Við bjóðum bæði upp á stuðningsviðtöl og slökunardáleiðslu 1 klst. á kr. 15000 og dáleiðslumeðferðir og Hugræn endurforritun 2 klst. kr. 25.000, endurkomutímar á kr. 20.000.
Öll dáleiðsla er sjálfsdáleiðsla, leidd sjálfsdáleiðsla. Tilgangurinn er að komast að undirvitund og þá er hægt að ná fram ótrúlegum breytingum eins og losa um fastar tilfinningar og svo margt fleira. Þessar meðferðir hafa gagnast vel þeim sem glíma við afleiðingar ofbeldis og annarra áfalla. Oft koma breytingar strax fram, fólk upplifir létti og svo finnur fólk fyrir ýmsum breytingum í margar vikur á efitr. Margir segja frá því að fjölskylda og vinir taki eftir breytingunum sem verða hjá einstaklingnum.
22/09/2024
11/09/2024
Nú er vefsíðan tilbúin svona frumútgáfa allavega. Ekki búið að tengja lifeftirafoll.is en það verður fljótlega. https://www.kliniskdaleidsla.is/
06/09/2024
Vefsíðan er alveg við það að líta dagsins ljós, enn einhver villa svo ekki tekst að tengja hana. Einnig síðan kliniskdaleidsla.is https://daleidsla.is/medferdardaleidsla
Hvað er meðferðardáleiðsla ? Er dáleiðsla gagnreynd meðferð ?
20/08/2024
Frábært viðtal við skólastjóra Dáleiðsluskóli Íslands. Ég stökk sem betur fer á vagninn í fyrra eftir að hafa farið í dáleiðslutíma sjálf og sé ekki eftir því. Þetta nám er eitthvað það gagnlegasta sem ég hef lært og nota það nú til að hjálpa öðrum ❤
Aðsend grein frá Alkastinu: Nýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er engin annar en Ingibergur Þorkelsson dáleiðandi og skólastjóri dáleiðsluskóla Íslands. Ingibergur flutti til Edinborg um síðustu aldamót með konu sinni og fljótlega eftir hóf hann nám í dáleiðslu. Mörgum ár...
15/08/2024
Áhugavert:
In this article you will find out about brain electricity, how hypnosis works on the brain and what hypnosis can do and help you with.I shall start with what hypnosis is. In the quickest terms, hypnosis is a natural state of mind that occurs, for most of us, several times a day. In therapeutic terms...
Nú erum við nýju dáleiðendurnir komin inn á vefsíðuna https://daleidsla.is/medferd Síðan mín verður tilbúin bráðum, bæði kliniskdaleidsla.is og lifeftirafoll.is
Í klínískri dáleiðslu er unnið með undirvitundina, þar sem allar minningar okkar eru, bæði þær sem við munum og hinar sem við höfum gleymt eða lokað inni. Unnið er með okkar innri styrk, sem hefur aðgang að öllum minningum og öllu stjórnkerfi hugans. Vegna þessa er meðferð...
Be the first to know and let us send you an email when Líf eftir áföll - Stuðningur, ráðgjöf og fræðsla posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.
Contact The Practice
Send a message to Líf eftir áföll - Stuðningur, ráðgjöf og fræðsla:
Félagið stendur fyrir stuðningi, fræðslu og ráðgjöf til einstaklinga sem orðið hafa fyrir ofbeldi eða öðrum áföllum. Um lággjaldaþjónustu er að ræða en frjáls framlög eru vel þegin til að halda úti húsnæði, fræðslu og námskeiðum. Reikn.nr. 515-14-2614, kt. 570919-0240.
Stjórn félagsins skipa Ragnheiður J. Sverrisdóttir, Sara Bjarney Ólafsdóttir, Sigmar Freyr Jónsson, Sigríður Ingibjörg Jónsdóttir og Guðmundur Ragnar Guðmundsson.
Ég heiti Ragnheiður, oftast kölluð Jonna tek að mér flest viðtölin eins og er en fljótlega mun bætast við liðsauki. Ég útskrifaðist sem félagsfræðingur haustið 2017.
Ég rannsakaði upplifun og afleiðingar ofbeldis í æsku á heilsu og lífsgæði. Linkur á MS rannsóknina:https://skemman.is/…/1946/29035/4/MA.Ofbeldi.RJSokt.2017.pdf
Ég er einnig með BS í sálfræði frá HÍ og viðbótardiplóma á meistarastigi í afbrotafræði. Auk þess hef ég sótt fjölda námskeiða, nú síðast í: Sálrænum áföllum og ofbeldi í EHÍ. Ég er sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum í Kópavogi í verkefni sem heitir: Félagsvinur eftir afplánun. Ég hef haldið nokkra fræðslufundi og málþing um afleiðingar ofbeldis og áfalla í æsku á heilsu og lífsgæði. Næsta erindi flyt ég á Þjóðarspegli í HÍ þar sem allir eru velkomnir.
Nýjasta viðbótin er kundalini jógakennaranám sem ég stunda núna en það er mjög öflugt form af jóga og stefni ég því næst á kundalini jógaþerapíunám sem sagt er gagnlegt fyrir úrvinnslu áfalla, fíknar og fleira.
Ég hef mikla ástríðu fyrir að styðja þolendur hvers kyns áfalla, ofbeldis og vanrækslu, sem og að vinna gegn ofbeldismenningu almennt. Viðmælendur rannsóknarinnar og þeir fjölmörgu sem hafa sagt mér frá æskuerfiðleikum benda á hvað erfitt sé oft að fá hlustun. Erfitt að fá að segja frá og það jafnvel í sjálfu heilbrigðiskerfinu. Ég legg því mikla áherslu á að hlusta á það sem fólk hefur að segja, það er taka góða sögu eða eins og skjólstæðingur kýs. Fyrsti tíminn fer oftast í að spjalla og skoða hverjar helstu áskoranir eru og eftir það er meira hægt að kortleggja og vinna út frá þeim upplýsingum.
Ég er sjálf reynslubolti þegar kemur að áföllum og afleiðingum þeirra. Ég hef í gegnum tíðina sótt mörg málþing og ráðstefnur um tengd málefni. Ég er í stöðugri endurmenntun og handleiðslu til þess að auka hæfni mína til að styðja aðra.
Sem betur fer hefur þekking á afleiðingum ofbeldis og hvers kyns áfalla aukist. Rannsóknir hafa leitt í ljós að áföll og sérstaklega hjá þeim sem búið hafa við ítrekað ofbeldi og áföll í æsku eru útsettari fyrir fjölmörgum heilsukvillum og sjúkdómum auk félagslegs vanda. Því er mikilvægt að veita stuðning sem fyrst. Það er þó aldrei of seint að leita aðstoðar en það er hægt að bæta lífsgæði verulega með góðri aðstoð þrátt fyrir áföll og erfiðleika. Að hafa brotið af sér sjálf/ur útilokar ekki viðtöl eða ráðgjöf. Eins og margir vita þá eru það oft sömu einstaklingarnir sem framið hafa ofbeldisbrot eða vanrækt börn sín sem hafa orðið fyrir slíku sjálfir. Það hefur reynst mörgum erfitt að vinna úr sig út úr þeim vanda að hafa valdið öðrum skaða en það er mikilvægt ekki síður en að veita þolendum stuðning. Líkurnar á árangursríkri vinnu gegn ofbeldismenningu gæti verið skilvirkari ef gerendur hvers kyns ofbeldis myndu leita aðstoðar en þá þarf hún að vera aðgengileg. En þegar svona eldfimt umræði efni er ritað er mikilvægt að hafa í huga að þolandi ber ekki ábyrgð á því að verða fyrir ofbeldi, gerandinn ber alltaf ábyrgð á því ofbeldi sem hann fremur.
Stofnuð hafa verið opin félagasamtök sem heita Líf eftir áföll og eru til húsa að Hverfisgötu 105, 10 Reykjavík og er ég með viðtölin á sama stað. Starfsemin er enn í mótun því mun ég hafa verðið hófstillt áfram eða kr. 5000 fyrir viðtal og kr. 4000 fyrir öryrkja og eldri borgara.
Einnig er hægt að fá fjarviðtöl í gegnum internet eða síma.
Athugið að um stuðning, fræðslu og ráðgjöf að ræða ekki meðferð en ég bendi á sálfræðinga, félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og marga aðra fagaðila sem sérhæfa sig í úrvinnslu áfalla ef óskað er eftir því.