Klíníkin Ármúla 7-9

Klíníkin Ármúla 7-9 Læknamiðstöð með áherslu á sérfræðiþjónustu innan skurðlækninga. Klíníkin er sérhæfð lækninga- og heilsumiðstöð og er staðsett í Ármúla 9, 108 Reykjavík.

Við Klíníkina starfa þrautreyndir sérfræðilæknar og hjúkrunarfræðingar sem öll leggja sig fram við að veita persónulega þjónustu og hafa skjólstæðinga sína ávallt í öndvegi. Markmið Klíníkurinnar er að greina vanda, ráðleggja um leiðir til lausna og framkvæma nauðsynlegar aðgerðir. Samstarf reyndra lækna og hjúkrunarfræðinga með mikla starfsreynslu hérlendis og erlendis tryggir gæði þjónustunnar o

g öryggi sjúklinga. Aðbúnaður er til fyrirmyndar í Klíníkinni hvort sem um er að ræða læknamóttöku eða á skurðstofum og er mikil áhersla lögð á að tækjabúnaður uppfylli ströngustu kröfur á alþjóðlegan mælikvarða. Hugmyndafræði Klíníkurinnar byggist á teymisvinnu og því að sinna sérþörfum sjúklinga og veita heildarþjónustu frá greiningu, skurðaðgerð og þar til annari meðferð lýkur. Aðgangur er að sjúkraþjálfun og endurhæfingu ef þörf krefur.

24/04/2026

Hvað viltu segja við næstu manneskju?

10/04/2026

Kristján Skúli brjóstaskurðlæknir og einn af stofnendum Klíníkurinnar fræðir okkur um sína sérgrein og segir frá helstu aðgerðum sem hann framkvæmir🩵

31/03/2026

1. APRÍL! Smá sprell hjá okkur😆 Takk Einar og Baldur fyrir að vera með okkur í þessu!🤝 Eina sem þarf er skýr samningshugur, þá gerast hlutirnir. Hlökkum til spennandi samstarfs! Allir áhugasamir velkomnir í Klíníkina á miðvikudaginn milli 13-16🩵 Eða hringja í síma 519-7000 og velja 3 fyrir nánari upplýsingar.

27/03/2026

Engum leiðist á biðstofunni hér🕺🏼🩵

23/03/2026

Hér fáum við aðeins að kynnast offitu- og efnaskiptateyminu okkar. Þau útskýra fyrir okkur ferlið sem fylgir aðgerðum. Teymið samanstendur af skurðlæknum, hjúkrunarfræðingum, næringarfræðing og sjúkraþjálfara🩵

Vinnum að hag sjúklinga - og förum rétt með staðreyndir 🩵
20/03/2026

Vinnum að hag sjúklinga - og förum rétt með staðreyndir 🩵

Klíníkin hefur undanfarnar vikur vakið athygli á hagræði og sparnaði sem falist getur í að framkvæma efnaskiptaaðgerðir á vegum Landspítalans hér á landi í stað þess að senda sjúklinga erlendis.

20/03/2026

Eins og sést eru allir starfsmenn Klíníkurinnar mjög sáttir í starfi🩵😂

Spennandi tímar framundan💚„Klíníkin er í örum vexti og opnun apóteks Lyfjavers í húsinu er liður í að efla þjónustu við ...
20/03/2026

Spennandi tímar framundan💚
„Klíníkin er í örum vexti og opnun apóteks Lyfjavers í húsinu er liður í að efla þjónustu við skjólstæðinga okkar og hlökkum við til samstarfsins,“

Lyfjaver hefur opnað nýtt apótek í Klíníkinni við Ármúla 7–9. Þetta er fyrsta útibú fyrirtækisins frá því að apótek Lyfjavers við Suðurlandsbraut var opnað árið 2002.

09/03/2026

Ægir Amin og skósveinarnir hans🤓

Skemmtileg umfjöllun um Klíníkina í Ísland í dag í gær🩵
03/03/2026

Skemmtileg umfjöllun um Klíníkina í Ísland í dag í gær🩵

Við í Íslandi í dag fengum að skyggnast inn í starfsemi Klíníkurinnar sem þrefaldaði nýverið húsakynni sín. Fóru úr 2400 fermetrum í 7600 í Ármúlanum. Við kíkjum til að mynda á rýmin sem standa auð og gætu nýst sjúklingum sem bíða á Landspítala.

26/02/2026

Alltaf líf og fjör á Klíníkinni!🕺🏼🤩

Address

Ármúli 7-9
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 07:30 - 17:00
Tuesday 07:30 - 17:00
Wednesday 07:30 - 17:00
Thursday 07:30 - 17:00
Friday 07:30 - 16:00

Telephone

+3545197000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Klíníkin Ármúla 7-9 posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share