Kría fargufa

Kría fargufa Kría fargufa er ný 6 manna fargufa staðsett við bryggjuna í Gufunes🔥 Einnig er hægt að bóka einkagufu fyrir hópa utan auglýstra opnunartíma.

Kría fargufa er sex manna fargufa við bryggjuna í Gufunesi og eigandi og upphafskona er Brynja Dögg Friðriksdóttir. Hægt er að bóka pláss fyrir 1-6 manns í einu í almenna gufu sem veitir aðgang að er Kríu fargufu í eina klukkustund. Fyrirmynd Kríu fargufu er finnsk sánaböð (í sundfötum þó), þar sem hver og einn gestur nýtur gufunnar á sínum forsendum. Gufan er þurrgufa og hitastigið ca. 75°c-95°c

að jafnaði. Kría fargufa er ekki með leiddar sánur eða sánugús, hvorki í almennri gufu né einkagufum. Gufugestgjafi tekur á móti gestum við komuna til Kríu fargufu og veitir upplýsingar um aðstöðuna og fyrirkomulagið. Gestir eru útaf fyrir sig í gufunni en gufugestgjafi er fyrir utan gufuna, sér um að bæta við eldivið og er alltaf til taks fyrir gesti. Kría fargufa er með búningsherbergi fyrir framan gufuna þar sem gestir geta skipt um föt fyrir og eftir gufu og geymt eigur sínar. Stakt skipti í Kríu fargufu er ein klukkustund þá er líka hægt að kaupa sex skipta og tólf skipta klippikort sem gilda bæði fyrir eiganda kortsins sem og fyrir hóp hans. Frá Kríu fargufu er gott aðgengi í sjóinn og mikil sandströnd. Gufunesið er óslípaður demantur í borgarlandi Reykjavíkur en svæðið nýtur vinsælda meðal þeirra sem þar búa og starfa og er í miklum vexti.

Á vefsíðu Kríu fargufu er að finna nánari upplýsingar og ýmsan fróðleik um ávinning gufubaða og einnig bókunar- og viðskiptaskilmálar Kríu fargufu og reglur Kríu fargufu; https://www.kriafargufa.is/

Verið velkomin í Kríu fargufu í Gufunesinu!

Ertu að plana páskafríið?!Páskaopnun Kríu fargufu verður eftirfarandi:Þriðjudagur 31. marskl. 18:00 / 19:30 / 21:00Miðvi...
29/03/2026

Ertu að plana páskafríið?!

Páskaopnun Kríu fargufu verður eftirfarandi:

Þriðjudagur 31. mars
kl. 18:00 / 19:30 / 21:00

Miðvikudagur 1. apríl
kl. 18:00 / 19:30 / 21:00

Fimmtudagur 2. apríl
- Skírdagur -
kl. 16:30 / 18:00 / 19:30

Fösturdagur 3. apríl
- Langi Fösseh -
kl. 16:30 / 18:00 / 19:30

Laugardagur 4. apríl
kl. 10:30 / 12:00 / 13:30

Sunnudagur
- Páskadagur -
kl. 10:30 / 12:00 / 13:30

Mánudagur
- 2. í páskum -
kl. 18:00 / 19:30

Verið velkomin í Kríu fargufu!

Hver er sérstaða Gufunesins fyrir gufu-og sjósundsfólk?! Þú finnur svörin hér👆🏻
15/03/2026

Hver er sérstaða Gufunesins fyrir gufu-og sjósundsfólk?! Þú finnur svörin hér👆🏻

Langar þig að dekra við konuna -eða konurnar í lífi þínu?Konudagurinn er á sunnudaginn og að því tilefni verður Kría far...
16/02/2026

Langar þig að dekra við konuna
-eða konurnar í lífi þínu?

Konudagurinn er á sunnudaginn og að því tilefni verður Kría fargufa með tilboð á 60 mín einkagufum bæði laugardag og sunnudag!

60 mín einkagufur f. 1-6 kr. 21.900
Innifalið er vatn og snarl fyrir gesti, ilmkjarnaolíublöndur.

Aðeins 6 gufustundir eru í boði:
Laugardagur 21. feb.: kl. 10:30 / 12:00 / 13:30
Sunnudagur 22. feb: kl. 10:30 / 12:00 / 13:30

Einkagufur þar af bóka í gegnum samfélagsmiðla Kríunnar eða með því að senda póst á kriafargufa@gmail.com

Verið velkomin í Kríu fargufu!

Kría fargufa óskar vinum, velunnurum og síðast en ekki síst viðskiptavinum gleðilegs nýs árs! Kærar þakkir fyrir frábæra...
06/01/2026

Kría fargufa óskar vinum, velunnurum og síðast en ekki síst viðskiptavinum gleðilegs nýs árs! Kærar þakkir fyrir frábærar móttökur á þessu fyrsta starfsári Kríunnar. Það sem stendur uppúr er allt skemmtilega fólkið sem lagði leið sína í Kríuna, allar ánægjulegu samverustundirnar og áhugaverðu samtölin. Náttúran, birtan og dýralífið í Gufunesinu gaf margar eftirminnilegar stundir og það var ánægjulegt að njóta þessa alls með ykkur kæru vinir. Megi gufu- og gæðastundirnar verða enn fleiri 2026. Hér eru nokkur vel valin augnablik frá árinu.
Kærar þakkir og sjáumst í Kríu fargufu!
Brynja, eigandi Kríu fargufu

Dimmir dagar - tilboðsdagar Kríu fargufu 28. nóv-1. des. Tilboð 1: Gjafabréf fyrir 2 í 60 mín almenna gufustund kr. 7.90...
28/11/2025

Dimmir dagar - tilboðsdagar Kríu fargufu 28. nóv-1. des.

Tilboð 1: Gjafabréf fyrir 2 í 60 mín almenna gufustund kr. 7.900 (fullt ver kr. 9.000).

Tilboð 2: Gjafabréf fyrir 60 mín. einkagufu á opnunartíma fyrir allt að 6 gesti kr. 19.900 (fullt verð kr. 24.300).

Hægt er að kaupa gjafabréfin á bókunarvef Kríunnar; www.sinna.is/kriafargufa. Gjafabréfin eru rafræn en hægt er að fá þau sem skjal til prentunar. Gjafabréfin eru tilvalin jólagjöf eða einfaldlega dekur fyrir þig og þína! Tilboðin gilda til og með 1. des en gjafabréfin renna ekki út.

24/11/2025
Ert þú í björgunarsveit eða þekkir einhvern í björgunarsveit?!Flettu þá áfram!Desember er annasamur mánuður hjá björguna...
24/11/2025

Ert þú í björgunarsveit eða þekkir einhvern í björgunarsveit?!

Flettu þá áfram!

Desember er annasamur mánuður hjá björgunar-sveitarfólki og því hefur Kría fargufa ákveðið að veita félögum í björgunarsveitum um allt land sérstakan afslátt út desember.

Öll sem eru í björgunarsveit fá 15% afslátt af miðum í 60 mín almenna gufustund og tilboðið gildir út desember.

Það eina sem félagsmenn og konur þurfa að gera er að fara á mínar síður Landsbjargar og skoða tilkynningar til allra félagsmanna, en þar er að finna afsláttarkóða sem sleginn er inn þegar bókað er á bókunarsvæðinu.

Verið velkomin í Kríu fargufu!

Kría fargufa er ekki með sánugusur eða leiddar sánur…-HA?! En hvað þýðir það?! Kann einhver að spyrja sig.Einfaldleiki g...
15/10/2025

Kría fargufa er ekki með sánugusur eða leiddar sánur…
-HA?! En hvað þýðir það?! Kann einhver að spyrja sig.

Einfaldleiki gufunnar er í fyrirrúmi í Kríu fargufu, þetta er einfaldlega sána eða gufa að norrænni fyrirmynd. Gestir eru út af fyrir sig í gufunni à meðan á gufustund stendur og sjá sjálfir um að ausa vatni á steinanna. Gufugestgjafi er alltaf á staðnum og til taks fyrir gesti. Og það má tala!

Hver og einn stjórnar tíma sínum inni í gufunni en mælt er með að gestir taki 3x15 mín í gufunni og kæli sig inn á milli. Hitinn í gufunni er að jafnaði 75-95°c. Þú stjórnar þinni upplifun.

Og það besta…
Samtölin, hláturinn og samveran í gufunni nærir andann á meðan hitinn nærir líkamann.
Meiri sána - minna stress!

Verið velkomin í Kríu fargufu!

06/10/2025

Kveik verður á Friðarsúlunni í Viðey fimmtudaginn 9.okt kl 20:00. Krían mælir að sjálfsögðu með að fylgjast með þeim viðburði úr heitum sætum sínum, en hægt er að bóka pláss í almenna gufustund kl 19:30-20:30 og 21:00-22:00 þetta kvöld.🔥

Frábær grein SUITCASE Magazine um sánur og vaxandi vinsældir þeirra vítt og breitt um Evrópu. Áhugafólk um gufubaðsmenni...
02/10/2025

Frábær grein SUITCASE Magazine um sánur og vaxandi vinsældir þeirra vítt og breitt um Evrópu. Áhugafólk um gufubaðsmenningu annarra landa ætti að nótera þessar flottu sánur hjá sér og heimsækja í næstu helgarferð!

Address

Gufunes
Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kría fargufa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Kría fargufa:

Share

Category