Sjúkraþjálfun Selfoss

Sjúkraþjálfun Selfoss Sjúkraþjálfun - Kiropraktor

Birgitta Ýr Sævarsdóttir starfar sem móttökuritari í Sjúkraþjálfun Selfoss. Hún er hjartað í hópnum og sú sem stjórnar ö...
14/04/2026

Birgitta Ýr Sævarsdóttir starfar sem móttökuritari í Sjúkraþjálfun Selfoss. Hún er hjartað í hópnum og sú sem stjórnar öllu dagsdaglega. Hún er tveggja barna móðir og er Dalamaður, einnig mikill dani í sér, en hún er einmitt uppalin í Búðardal og Odense í Danmörku. Áhugamál hennar eru dýr, crossfit, lestur, gott sjónvarpsefni, verja tíma í sumarbústaðnum sínum og að sjálfsögðu að verja tíma með fjölskyldunni. Hún er með stúdentspróf og menntaður Landbrugsassistent.

Stefán Magni Árnason er sjúkraþjálfari og íþróttafræðingur og einn af eigendum Sjúkraþjálfun Selfoss. Hann er fæddur á S...
09/03/2026

Stefán Magni Árnason er sjúkraþjálfari og íþróttafræðingur og einn af eigendum Sjúkraþjálfun Selfoss. Hann er fæddur á Selfossi en alinn upp á Skeiðum. Áhugamál hans er hverslags hreyfing og íþróttir ásamt því að eyða tíma með fjölskyldunni og vinna með höndunum. Hann hefur áhuga á allri almennri sjúkraþjálfun ásamt því að sérhæfa sig í endurhæfingu eftir hjarta- og lungnavandamál, krabbameinsveikra og Long covid/ME/Pots.

Við hjá Sjúkraþjálfun Selfoss munum nú á næstu vikum kynna okkur aðeins fyrir ykkur. Hjá okkur starfar frábært fólk sem við viljum svo gjarnan að þið fáið að sjá meira af og kynnast betur.

Við starfsfólk og makar hjá Sjúkraþjálfun Selfoss og Tindi sjúkraþjálfun skelltum okkur norður á Siglufjörð á gönguskíða...
20/02/2026

Við starfsfólk og makar hjá Sjúkraþjálfun Selfoss og Tindi sjúkraþjálfun skelltum okkur norður á Siglufjörð á gönguskíðanámskeið nú á dögunum. Þetta var hin mesta skemmtun!

Aldís kírópraktor verður með fræðslu um bakverki fimmtudaginn 26. febrúar
17/02/2026

Aldís kírópraktor verður með fræðslu um bakverki fimmtudaginn 26. febrúar

Þá er loksins komið að áður auglýstum fyrirlestri!

Ég verð með fyrirlestur um bakverki þar sem við förum vel yfir eðli og ástæður bakverkja og kíkjum á ýmis bjargráð.

Markmiðið er að dýpka skilning á því sem er að gerast í bakinu og leiðbeina með ýmsa þætti sem snúa að hreyfingu og daglegu lífi. Einnig verður tækifæri fyrir spurningar og vangaveltur.

Fyrirlesturinn ætti að nýtast öllum þeim sem eru að glíma við bakverki en líka þeim sem vinna með fólki með bakverki eins og td. þjálfarar sem vilja verða öruggari í að nálgast þjálfun hjá bakveikum.

Fyrirlesturinn er ókeypis en skráning er nauðsynleg hjá aldis@sjukrasel.is

Hlakka til að taka á móti ykkur!

Starfsfólk Sjúkraþjálfunar Selfoss óskar ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum fyrir árið sem er að l...
22/12/2025

Starfsfólk Sjúkraþjálfunar Selfoss óskar ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum fyrir árið sem er að líða.

01/12/2025

Mig langar að benda á gjafabréfin hjá mér. Upplagt fyrir þá sem eiga allt en þyrftu að forgangsraða eigin heilsu. Bæði hægt að fá gjafabréf fyrir fyrsta tímanum og líka endurkomu ef viðkomandi hefur verið hjá mér áður! 🎄🎁

Við vorum að sjálfsögðu bleik í dag 🎀 ...og erum rosalega bleik í október í fínu bolunum okkar frá Krabbameinsfélaginu 💕...
22/10/2025

Við vorum að sjálfsögðu bleik í dag 🎀 ...og erum rosalega bleik í október í fínu bolunum okkar frá Krabbameinsfélaginu 💕🌸🎀

Við í Sjúkraþjálfun Selfoss og Tindi Sjúkraþjálfun fengum hann Sigurjón til okkar í gær með skyndihjálparnámskeið þar se...
27/09/2025

Við í Sjúkraþjálfun Selfoss og Tindi Sjúkraþjálfun fengum hann Sigurjón til okkar í gær með skyndihjálparnámskeið þar sem við fórum meðal annars yfir endurlífgun. Okkur finnst mikilvægt að rifja skyndihjálpina upp reglulega, við vitum aldrei hvenær við munum þurfa að bregðast við og nýta hana 🚨

✨Nýtt mömmu grunnnámskeiðið byrjar 16.september✨Hildur er að fara aftur af stað með mömmunámskeiðið sitt og býður nýbaka...
04/09/2025

✨Nýtt mömmu grunnnámskeiðið byrjar 16.september✨
Hildur er að fara aftur af stað með mömmunámskeiðið sitt og býður nýbakaðar mæður velkomnar að byrja hreyfa sig af öryggi og meðvitund eftir meðgöngu og fæðingu 👶🏼
Hafið samband við Hildi hjà hildur@sjukrasel.is fyrir skráningu og frekari upplýsingar

Við viljum vekja athygli á því að aðgengi að bílastæðum aftan við Austurveg 9 (þar sem við erum til húsa) hefur breyst. ...
04/09/2025

Við viljum vekja athygli á því að aðgengi að bílastæðum aftan við Austurveg 9 (þar sem við erum til húsa) hefur breyst. Nú skal keyra inn á bílastæðið í gegnum Sigtún (bakvið Kaffi Krús).

Við biðjumst velvirðingar á þessu raski.

11/08/2025

Símkerfið hjá okkur er eitthvað að klikka og það hringir ekki hjá öllum sem eru að reyna ná á okkur.

Ef þið eruð í vandræðum með að ná inn þá getið þið sent póst á afgreidsla@sjukrasel.is

Við vonum að þetta komist í lag sem fyrst

Starfsfólk Sjúkraþjálfunar Selfoss og Tinds sjúkraþjálfunar, ásamt mökum, skellti sér í vel heppnaða ársátíðarferð til S...
13/06/2025

Starfsfólk Sjúkraþjálfunar Selfoss og Tinds sjúkraþjálfunar, ásamt mökum, skellti sér í vel heppnaða ársátíðarferð til Split í Króatíu 🇭🇷☀️Þar var dásamlegt veður, góð stemning og nóg af hlátri, góðum mat og samverustundum. Takk fyrir okkur Split☀️🌊🌴

Address

Austurvegur 9
Selfoss
800

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3544822828

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sjúkraþjálfun Selfoss posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Sjúkraþjálfun Selfoss:

Share