Sara Pálsdóttir trúarlæknir

  • Home
  • Sara Pálsdóttir trúarlæknir

Sara Pálsdóttir trúarlæknir Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Sara Pálsdóttir trúarlæknir, Therapist, .

Líf í öruggu trúartrausti  😊Lestur og hugleiðslubæn🔥Í kvöld, fimmtudagskvöld 12. mars kl. 21:00LIVE á zoom, facebook og ...
12/03/2026

Líf í öruggu trúartrausti 😊

Lestur og hugleiðslubæn🔥

Í kvöld, fimmtudagskvöld 12. mars kl. 21:00

LIVE á zoom, facebook og tiktok

Ertu með fyrirbænarefni? Sendu á okkur og við biðjum fyrir þér í lok stundar 🥰

Allir hjartanlega velkomnir !

Linkur á fundinn er hér (opnum fund kl. 20:55, byrjum kl. 21:00)
https://us02web.zoom.us/j/88008296100?pwd=EidPYF9INQKWmbxvC64Gm1bzt8kw9i.1

Beint streymi á fundinn er í grúppunni hér: 👇👇😊
https://www.facebook.com/groups/405974234145941/

11/03/2026

Þú veist hvað stendur í orðinu, en það að taka næsta skref í raunveruleikanum getur samt verið ótrúlega erfitt 🔥

Að ganga í trú þýðir oft að taka skref áður en kringumstæðurnar staðfesta það sem Guð talar til þín. Að halda í Guðs hönd þegar þú sérð ekki 100% hvert þú ert að fara.🥹

Trú er ljós - vantrúin myrkur. Vissirðu að þú getur breytt trú þinni og öðlast meiri trú? 🥰

Með því að hlusta daglega á vefþætti Frelsiskirkjunnar og hugleiðslubænir um trú, lækningu og lífið með Guði, fer líf þitt, trú og heilsa að umbreytast hratt til hins betra ❤️💫

Spotify 🎧
https://open.spotify.com/show/6oC6khSg122A0SDFU5Ynts?si=wgL9KmyeSZywD7paxdEZ7g

YouTube 📻
https://youtube.com/playlist?list=PLCO1wMUP-v91U624IfKcOqB_lsDdVqpPQ&si=5zrpoo0wv8Dpg4OA

„því að við lifum í trú án þess að sjá.“
Síðara Korintubréf 5:7

11/03/2026

Líf í öruggu trúartrausti 🕊️

Guð hefur ekki ætlað þér líf í vantrú, vantrausti og óöryggi! 😔

Óttinn hefur ekkert vald yfir þér.

Taktu á móti lækningu Guð í hjartað þitt❤️

Lestur og hugleiðslubæn fimmtudaginn 12 mars kl 21:00

Live á facebook, zoom og tiktok🕊️🔥❤️

Sendu mer skilaboð ef þú vilt komast inn í grúppuna á fb 🥰

Kannski þarftu ekki nýja byrjun. Aðra vinnu. Meiri pening. Meira frí.....Kannski þarftu nýtt hjarta..❤️💫Við reynum svo o...
11/03/2026

Kannski þarftu ekki nýja byrjun. Aðra vinnu. Meiri pening. Meira frí...
..Kannski þarftu nýtt hjarta..❤️💫

Við reynum svo oft að laga lífið og okkur sjálf með því að breyta kringumstæðum okkar.
En raunveruleg og varanleg breyting byrjar alltaf innan frá, í hjartanu ❤️🩹

Jesús endurnýjar hjarta og anda.🔥
Það er þar sem friðurinn, lækningin og frelsið byrjar.☺️

„Ég mun taka steinhjartað úr líkama yðar og gefa yður hjarta úr holdi.“
– Esekíel 36:26

👉 Horfðu á vefþætti og hugleiðslubænir Frelsiskirkjunnar og hleyptu ljósinu inn í hjartað:

🔗 á Spotify: https://open.spotify.com/show/6oC6khSg122A0SDFU5Ynts?si=wgL9KmyeSZywD7paxdEZ7g

🔗 Youtube: https://youtube.com/playlist?list=PLCO1wMUP-v91U624IfKcOqB_lsDdVqpPQ

Í heiminum er mikill ófriður.😵💫Órólegar hugsanir, áhyggjur, ótti og kvíði 😨Stress, of mikið að gera, veikindi, ósætti og...
09/03/2026

Í heiminum er mikill ófriður.😵💫
Órólegar hugsanir, áhyggjur, ótti og kvíði 😨
Stress, of mikið að gera, veikindi, ósætti og vonleysi.
Við leitum að friði í hlutum, fólki, árangri, vinnu …
En friðurinn rennur í gegn um fingurna eins og sandur.

Það er vegna þess að sannur friður er ekki ástand.
Hann er ekki tilfinning.

Sannur friður er Persóna.💙
Og nafnið Hans er Jesús.🔥

Þegar Jesús kom í heiminn, kom ekki aðeins barn í jötu.
Friðurinn sjálfur gekk inn í mannheima.
Friðurinn sem lægir stormana.
Friðurinn sem getur læknað sár sem enginn sér.
Friðurinn sem gefur gleði sem stendur óháð öllu.

Jesús sagði:
„Frið minn gef ég yður. Ekki eins og heimurinn gefur.“🤍

Þessi friður er ekki brothættur.
Hann brotnar ekki þó lífið skjálfi.
Hann dofnar ekki þó dagarnir verði dimmir.🖤

Friður Jesú flæðir inn í hjartað þegar við hleypum Honum inn.
Þegar við segjum:
„Jesús, komdu inn í hjartað mitt og gefðu mér þinn frið.“
Þá hættir stormurinn að stjórna. Ófriðurinn hverfur.
Ljós brýst inn þar sem myrkrið réð áður.
Og gleði sem á sér himneskar rætur kviknar.

Þetta er boðskapur Guðs:🔔
Friðurinn sem við öll þráum er nær en við höldum.
Hann heitir Jesús.❤️
Og Hann kemur til hvers sem ákallar Hann 🥰

Vertu með okkur LIVE öll fimmtudagskvöld á zoom eða facebook:
👉https://www.facebook.com/groups/405974234145941/

08/03/2026

Gengur þú um með sektarkennd, skömm eða minningar sem þú vilt helst aldrei hugsa um aftur? 😮💨

Margir upplifa stöðuga sektarkennd, að þeir séu rangir eða hafi gert eitthvað rangt. Rótin að þessu er að hafa ekki tekið við verki Jesú Krists á krossinum, þegar hann afmáði alla okkar synd, fyrirgaf og gerði okkur réttlát í augum Guðs 💫

Í stórkostlegum og lífsbreytandi hugleiðslubænum Frelsiskirkjunnar leggjum við áherslu á að taka við Jesú, verkinu sem hann vann og trúa orði Guðs í hjarta okkar ❤️

Hlustaðu daglega á hugleiðslubænirnar, þar sem þú ferð með Jesú í gegnum fyrirgefningu, frið og lækningu🥰

Hugleiðslubænir á Spotify 🎧
https://open.spotify.com/show/67U8Eddp7jr9RX0IOwn6Dp?si=snm5ftaCSbuCxqQ5aV3Cyg

„Hann fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein.“
Sálmur 103:3

Ég fór oft inn í nýtt ár með loforð um að verða „betri manneskja“ því mér fannst ég aldrei nóg.😢Það breyttist þegar ég b...
08/03/2026

Ég fór oft inn í nýtt ár með loforð um að verða „betri manneskja“ því mér fannst ég aldrei nóg.😢

Það breyttist þegar ég byrjaði að sjá mig með augum Jesú í stað eigin dóms.
Þá hætti niðurifið og í staðinn kom sjálfsvirðing og kærleikur.❤️

Ef þú þarft að heyra sannleikann um hver þú ert í augum Guðs, þá hjálpa hugleiðslubænir og orð Guðs til að endurnýja hugann👇

Hlustaðu daglega og finndu léttinn, gleðina og stundum (læknandi) gráturinn! 🥹

Hugleiðslubænir 🎧
https://open.spotify.com/show/67U8Eddp7jr9RX0IOwn6Dp?si=snm5ftaCSbuCxqQ5aV3Cyg

07/03/2026

Þú lest um kraftaverk í Biblíunni og hugsar: „Af hverju gerist svona ekki lengur í dag?“🤔🥰

Nýja testamentið er ekki bara saga, það opinberar hjarta og eðli Jesú Krists. Hann gekk um, kenndi, elskaði og læknaði. Sama hjarta slær enn í dag – líka fyrir þig❤️💫

Í vefþáttum Frelsiskirkjunnar skoðum við hvernig Jesús læknar sjúka og þjáða og hvað það þýðir fyrir líf þitt núna.😍

Hlusta hér:

Spotify 🎧
https://open.spotify.com/show/6oC6khSg122A0SDFU5Ynts?si=wgL9KmyeSZywD7paxdEZ7g

YouTube 📻
https://youtube.com/playlist?list=PLCO1wMUP-v91U624IfKcOqB_lsDdVqpPQ&si=5zrpoo0wv8Dpg4OA

„Jesús fór nú um allar borgir og þorp og kenndi í samkundum þeirra. Hann flutti fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi.“
Matteusarguðspjall 9:35

06/03/2026

Ef ein tilfinning hefur reynt að stjórna lífi þínu, þá er það kannski skömm:

„Ég er ekki nóg, ég er ekki eins og ég á að vera, Guð hlýtur að vera svekktur.“😢

Biblían kennir okkur að horfa á Jesú sjálfan og hvernig hann mætir skömminni.
Hann snertir þann sem allir forðast, talar við þá sem aðrir afskrifa og lyftir þeim upp sem aðrir hafa rifið niður ❤️💫
Jesús þráir að lyfta þér upp líka 🥰

Ef þú vilt upplifa þetta í beinni, fá fyrirbæn og heyra lifandi orð Guðs, þá skaltu vera með okkur LIVE á fimmtudagsfundum Frelsiskirkjunnar kl. 21:00.💙

Beint streymi á fundinn er hér í grúppunni okkar 👇
https://www.facebook.com/groups/405974234145941/

06/03/2026

Hefurðu beðið um lækningu en finnst ekkert gerast?💙

Þegar vonin dofnar getur verið erfitt að trúa að bænin hafi áhrif... 😟

Það er bein tenging á milli trúar og lækningar. Í því felst að við treystum Guði, að þú megir koma veik/ur, brotin/n, óörugg/ur – og treysta því að Jesús mætir þér þar sem þú ert ❤️🩹

„Trúarbænin mun gera hinn sjúka heilan og Drottinn mun reisa hann upp“
Jakobsbréfið 5:15

Viltu heyra meira um trúarlækningu og vitnisburði um kraft Guðs? 👇
Hlustaðu á vefþætti Frelsiskirkjunnar hér:

Spotify 🎧
https://open.spotify.com/show/6oC6khSg122A0SDFU5Ynts?si=wgL9KmyeSZywD7paxdEZ7g

YouTube 📻
https://youtube.com/playlist?list=PLCO1wMUP-v91U624IfKcOqB_lsDdVqpPQ&si=5zrpoo0wv8Dpg4OA

05/03/2026

Náð Guðs - lestur og hugleiðslubæn

Address


Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sara Pálsdóttir trúarlæknir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Sara Pálsdóttir trúarlæknir:

  • Want your practice to be the top-listed Clinic?

Share

Share on Facebook Share on Twitter Share on LinkedIn
Share on Pinterest Share on Reddit Share via Email
Share on WhatsApp Share on Instagram Share on Telegram